Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.1951, Side 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
547
Forspdir menn
Sjera
SJERA ILLUGI JÓNSSON, sem síðast
var prestur í Kirkjubólsþingum á
Langadalsströnd, var sonur Jóns bónda
.Þorsteinssonar á Blikalóni á Melrakka-
sljettu og konu hans Þorgerðar Illuga-
dóttur (systur sjera Grímúlfs í Glaum-
bæ). Sjera Illugi var faeddur að Ási
I Kelduhverfi 1728 (?), útskrifaðist úr
Hólaskóla 1750, varð prestur að Árnesi
1754, kvæntist 1760 Sigríði dóttur
Magnúsar prófasts Teitssonar í Vatns-
firði og varð s. á- aðstoðarprestur hjá
tengdaföður sínum, og fór hann nauð-
ugur frá Árnesi. í Vatnsfirði var hann
20 ár og fekk þá Kirkjubólsþing (1780).
Var heldur kalt milli þeirra sjera Guð-
laugs Sveinssonar, er þá hafði fengið
Vatnsfjörð.
Sjera Illugi bjó á ljensjörðinni Bakka
á Langadalsströnd. Hann var vel að
sjer, vitur og forspár, góður kennimað-
ur og jafnan virtur og elskaður af
sóknarfólki sínu, því hann var mesta
Jjúfmenni. Hann sagði fyrir dauða sinn
og með hverjum atvikum verða mundi;
einnig sagði hann fyrir hvað mundi
koma fram við börn sín, og rættist það.
En um Jón son sinn sagði hann það
einungis, að sjer væri það hulið, hvað
fyrir honum lægi. Á nýársdag 1782
JÓBltSSOIB
sagði hann um tvo heldri bændur í
sókn sinni, að það væri sveitinni mik-
ill skaði að þeir yrði báðir látnir fyrir
næstu sumarmál, ,,en þó lifa þeir mig,“
sagði hann.
Skömmu síðar fór hann sjóveg í
kaupstað vestur á Skutulsfjörð. Var á
skipi með honum Jón sonur hans og
Jón stúdent son Jóns prófasts Sveins-
sonar á Stað í Steingrímsfirði og 3
menn aðrir. Að kveldi 14. janúar komu
þeir að Reykjanesi til Jóns sýslu-
manns Arnórssonar, og ætlaði prestur
að gista þar um nóttina, en formaður-
inn, sem Hinrik hjet, vildi það fyrir
engan mun, og kallaði þá alla til
ferðar. Kvað prestur ekki mundu duga
að fresta því, sem fram ætti að koma.
Skipið fórst um nóttina á skeri fyrir
framan lendinguna á Arngerðareyri.
Fundust skipverjar allir látnir á sker-
inu, nema Hinrik, og með þeim um-
merkjum sem þeir hefði komist lifs
upp á skerið, en dáið af vosi og kulda.
Sjera Guðlaugur í Vatnsfirði flutti
konu sjera Illyga tíðindin með óþýðum
orðum, gvo að hún leið í ómegin. Hún
lifði þó lengi eftir þetta, dó 8. sept.
1830. Þau sjera Illugi áttu 14 börn
(sumir segja 16). Eitt var Ingibjörg,
Illugi
í Viðey, af þeim 55 bókum er
klaustrið þar átti 1397,
5. Engin kirkna þessara hefur átt
veggtjöld, til að hylja nekt grjóts
og moldar. Eigi hejdur nokkurn hlut
til fegurðarauka eða uppörfunar,
nema fáar þeirra altaristöflur.
Áður átti fjöldi kirkna „tjöld um-
hverfis sig“, og í katólskum sið, áttu
rjett allar kirkjur eitthvað af kross-
um, skriftum og líkneskjum helgra
rnanna, ásamt fleiri góðum gripunt
og klæðum.
í meiriháttar kirkjum voru þá líka
fleiri en eitt altari, hvert með sín-
um búningi og Ijósum fyrir dýrðl-
ingum þeirra. En upp úr siðaskipt-
unum, á 16. öld, var flest af þessu
tæi rifið og ruplað, brotið og braml-
að, og sumir kjörgripir, sem Danir
voru ekki búnir að ræna, með silfr-
inu og gullinu, voru síðar seldir út
úr landinu,
6. Víða hafa þá (um 1632) verið
orðin ömurleg umskipti frá blóma-
tímanum, þótt núnnu munaði en á
Strönd í Selvogi. Árið 1397 átti kirkj-
an róðukrossa tvo (Krist á krpssi.
— Annan vantaði þá) og 2 krossa
aðra, Maríuskrift og Tómásskrift,
auka altari 1 eða tvö. Og í skrýða:
Auk veggtjalda og prestskrúða, 5
hökla, 6 kantarakápur, 6 altarjsklæði,
bríkarklæði — með bastarð og silki,
og annað tij, altarisbrún ( og „lagð-
ur á borgarbúnaður gylltur með silf-
ur“), 5 altarisklæði fyrir krossi og
Mariualtari, 2 klæði rauð með sæi,
2 græn, 2 forn, 4 smádúkar, 4 slopp-
ar, messuserkur. Enníremur 4 gler-
gluggar, bækur margar og fjöldi ann-
arra kirkjugripa. (Sbr. muni Strand-
arkirkju hjer áður, og Fornbrs. IV.
bls. 100). V. G.
sem var bústýra hjá Bjarna riddara
Sivertsen, annað Karitas, er átti Jón
rektor í Lambhúsum, föður sjera Mark-
úsar í Odda og sjera Ásmundur í Odda.
Einn sonur sjera Illuga var Þorsteinn
er fór utan og tók sjer nafnið Hjalta-
lín. Hann varð kunnur listmálari í
Þýskalandi og er ævisaga hans prentuð
í „Allgemeine Deutsche Biographie“.
(Eftir Daða fróða o. fl.)
w & w w
SKJOL
Upp um haga, út við sjá
assku lag við þráum,
þar langa daga lesa má
ljóð af blaði og stráum.
Englnn meinar anda manns
ýmsa leynistígi,
stundum eina útlagans
allra meina vígi.
Þiggja eigum heigan heim.
— Huldan leigur gefur —
Byggja megum guðageim,
gamail beigur sefur.
Eigi hönd á engu val,
allt í böndum snjóa
flug á önd í fjarran dal
finnur lönd sem gróa.
BJÖRN DANÍELSSON
& & ® ®
Karföf lur
Á FRAICKLANDI hafa menn þessa að-
ferð til að geyma kartöflur: Fyrst eru
þær þvegnar, síðan er þeim (í körfum
eða netj) brugðið niður í sjóðandi vatn
og ekki haldið lengur niðri í en svo
sem 4 sekúndur. Svo eru þær teknar
upp og helt á gólfið. Eftir það eru þær
strjájbreiddar til þurks á þerrilofti eða
þurrum stað. Skal síðan geyma þær á
dimmum stað. Með þessum hætti má
halda kartöflum óspíruðum og óskemd-
ura og bragðgóðum fram á sumar.