Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.1951, Qupperneq 9
LEStíÓK MORGUNBLAÐSINS
541
\
Frá ferðum Kötlu 1. grein
PappLrsverksmiðjan í Corner Brook
M.s. Katla var íyrir nokkru leigð útgerðarfjelagi á Kúba um eins árs
skeið og verður í siglingum meðfram austurströnd Ameríku og kannar
ókunna stigu. Höfundur þessarar greinar er loftskeytamaður á skipinu
og segir hann svo í brjefi til Lesbókarinnar dags. 2. þ. m.: „Síðan við
vorum í Corner Brook höfum við komið víða við á Kúba, en auk þess
í Venezuela og Bandarikjunum og munum einnig eiga að sigla á hafn-
ir í Mexikóflóa í framtíðinni. En nú lentum við hjer í verkfalli „Villi-
kattanna", eins og svo mörg önnur skip, og verður frá því sagt í næstu
grein.“
T, Katla á höfninni í Reykjavík
Eftir Magnús Jensson
Á VESTURSTRÖND Nýfundna-
lands er lítill og ósjálegur bær, eða
rjettara sagt þorp. Húsin eru all-
flest bygð úr timbri. Lítil, gömul
og illa viðhaldið. Þau standa afar
óreglulega, rjett eins og þeim hafi
rignt niður og tilviljun ein ráðið
hvar þau lentu, enda snúa þau í
allar áttir. Göturnar eru svo auð-
vitað eftir þessu. Smá stigir í bugð-
um og beygjum, í allar áttir, að
undanteknum smá spotta, sem
kalla mætti stræti ef viljinn væri
með. Þarna lifa um 3000 manns,
góðu lífi, er manni sagt, því at-
vinna er næg og trygg, þótt ekki
sje hún fjölbreytt. Bærinn heitir
Corner Brook og munu fáir íslend-
ingar kannast við hann, nema ef
vera skyldi blaðamenn. í þessum
ósjálega bæ er nefnilega ein af
heimsins stærstu pappírsverksmiðj
var afar mikil fátækt og úrræða-
leysi í Nýfundnalandi á árunum
rjett fyrir síðustu heimstyrjöld.
Framleiðsla einhæf og ótrygg (fisk
veiðar) en skógurinn, sem er lág-
vaxið greni og birki, ónothæfur til
timburframleiðslu og var því aðal-
lega notaður til eldsneytis. Hey-
fengur svo lítill að flytja varð hey
frá Kanada til þess að halda líti í
þessum fáu skepnum, sem til voru
í landinu, sem orsakaði svo auð-
vitað að almenningur gat ekki
keypt hið dýra kjöt. Svo alvarlegt
var ástandið að landið var að verða
gjaldþrota og fólkið svalt heilu
hungri. Þetta kannast þeir íslend-
ingar við, sem sigldu þangað á
þeim árum.
Breska stjórnin sendi þangað
nefnd manna, sjerfróða í fjármál-
um, til þess að gera tillögur um
ráðstafanir til að bjarga landinu
frá algjöru og yfirvofandi hruni.
Ein tillaga nefndarinnar var sú að
nýta hinn víðfeðma, en lágvaxna
um.
Eins og marga rekur minni til,
__________________ Katla íMiami á Florida AfJtdL.i’cJLá'ÍS Jt