Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.1951, Síða 4
[: 536
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
(þar á meðal Jón Pjetursson og
Magnús^-Stephensen dómarar), en
fimm tilkynna að þeir bjóði 9 stúlk-
um. Ekki er hægt að sjá hve marg-
ir utanf j ilagsmenn hafa tekið þátt
í dansleiknum.
——o-----
Að lokum skal svo sagt frá einni
aukaskotkepni, sem öllum var gef-
inn kostur á að taka þátt í. Mun
l, hafa verið til nennar vandað í alla
í staði og höfð útispjót að ná í sem
flesta utanfjelagsmenn til að keppa
f svo að tekjur fjelagsins yrði sem
r mestar. Voru enn boðin númer
fyrir 1 rdl., en nú var það rýmra
um en á kepnum fjelaga, að hver
maður er númer keypti mátti sjálf-
ur velja skotmann fyrir sig, ef
hann treysti sjer ekki til þess að
keppa sjálfur, eða gat ekki komið
því við.
Byrjað var á því að auglýsa
kepni þessa hjer í Reykjavík og
menn beðnir að skrifa sig á lista,
og láta þess jafnframt getið hvort
þeir ætluðu að skjóta sjálfir, eða
hvern þeir hefði kosið til að skjóta
fyrir sig. Jafnframt var tilkynt að
gamli skotbakkinn, 150 alna, yrði
notaður að þessu sinni. Verði ekki
hægt að ljúka keppninni á einum
degi, verði haldið áfram næsta góð-
viðrisdag. Sjest á þessu að stjórn
fjelagsins hefur búist við mikilli
þátttöku, enda varð sú reyndin á.
■— Hundrað riúmer seldust hjer í
Reykjavík. En það þótti stjórninni
ekki nóg.
Þá var einnig til skotfjelag í
Keflavík, og voru helstu menn þess
P. L. Levinson verslunarstjóri (er
seinna varð forstjóri Glasgowversl-
unarinnár hjer í Reykjavík) og
H. P. Duus, er seinna varð kaup-
maður í Reykjavík. Hinn 4. janúar
1871 skrifar stjórn Skotfjelags
Reykjavíkur „systurfjelaginu“ í
Keflavík og skorar á þá Keflvík-
inga að taka þátt í skotkepninni.
Sendir hún einnig lista og biður
menn að skrifa nöfn sín á hann og
taka þar fram hve mörg númer
hver kaupi, og hverja þeir kjósi að
skjóta fyrir sig, ef þeir geti ekki
komið sjálfir..
Þetta bar tilætlaðan árangur. —
Átján Keflvíkingar skrifuðu sig
fyrir 40 númerum og sendu 40 rdl.
um hæl og brjef með, þar sem þeir
segja að þeir hafi falið þremur af
skyttum sínum að fara til Reykja-
víkur og keppa þar fyrir þá alla.
En farist þetta fyrir vegna veðurs,
eða annara óviðráðanlegra orsaka,
þá hafi ýmsir beðið kunningja sína
í Reykjavík að skjóta fyrir sig. En
fari nú svo, að þeir geti ekki orðið
við þessu, biðja þeir stjórn Skot-
fjelagsins að velja menn fyrir sína
hönd.
Skotfjelagið ljet ekki við þetta
sitja. Það skoraði enn fremur á
Hafnfirðinga að koma og keppa.
Ekkert skotfjelag var þá til í Hafn-
arfirði og því varð þátttakan minni
en ella. Þó skráðu 10 menn sig fyrir
13 númerum. Þar á meðal voru þeir
C. Zimsen, faðir Knud Zimsen fyr-
verandi borgarstjóra, H. Linnet og
Þorfinnur Jónatansson.
Aðalástæðan til þess að svo vel
var tekið undir þetta, mun hafa
verið sú, að Skotfjelagið hjet 14
verðlaunum fyrir skotfimi, og var
andvirði þeirra samtals um 80 rdl.
Er fróðlegt að vita hvaða gripir það
voru, sem freistuðu manna, og bera
það saman við það sem nú er boðið
í hlutaveltum, happdráttum og get-
raunum. Verðlaunin voru þessi:
1. verðl. 12 teskeiðar og tesía úr
silfri 20 rdl
2. — 3 matskeiðar úr silfri 15
rdl.
3. — Matskeið og gaffall úr s.
10 rdl.
4. — Kökuskeið
5. — Vínbikar
6. — Silfurnæla
7. — Munn-tóbaksdósir
8. — „Kompotskeið“ 1
9. — Stráskeið
10. — Kragahnappar úr silfri
11. — Púðurmælir úr silfri
12. — Sól
13. — Smáskeið (Dessertskeið)
14. — 2 saltskeiðar.
Skotkepnin fór svo fram 18. jan-
úar. Keflvíkingar gátu ekki komið
og urðu því aðrir að skjóta fyrir
þá. Og vegna þess að margir Reyk-
víkingar treystu sjer ekki til þess
að skjóta, varð mikil aðsókn að
bestu skyttunum í Skotfjelaginu.
Höfðu sumar þeirra 5, 8 og 12
númer á sinni könnu, eða 15, 24
og 36 skot. Fór því svo, að sumir
þeirra unnu verðlaun fyrir aðra,
þótt þeir fengi engin verðlaun
sjálfir. Fyrstu verðlaun hlaut H. P.
Duus í Keflavík og tvenn önnur
verðlaun komu í hlut Keflvíkinga,
10. verðlaun hlaut H. Siemsen versl
unarstj., og 13. verðlaun'hlaut P.
Levinsen. Einn Hafnfirðingurí Þor-
finnur Jónatansson, hlaut einnig
verðlaun, það voru tóbaksdósirnar.
Mátti það kallast sæmilegt af utan-
bæarmönnum að fá 4 verðlaun af
14. Fimtándu verðlaun voru einnig
veitt og voru það heiðursverðlaun
handa þeim, er fekk flest stig að
meðaltali á hvert skot. Þau verð-
laun hlaut V. Bernhöft bakari og
var það 1 sól með einni flösku af
portvíni og annari af sherry.
Þess má geta að hreinn ágóði
fjelagsins af þessari skotkepni nam
35 rdl.
----o----
Hjer skal nú staðar numið, því
að þetta átti ekki að vera saga
Skotfjelagsins. Hún gæti orðið
löng, því að fjelagið starfaði fram
undir aldamót. Þetta er aðallega
skrifað til þess að gefa mönnum
nokkra hugmvnd um hvernig fje-
lagið starfaði og eir.s til þess að
vekja athygli á því, að nafnið Skot-
húsvegur hefur þó nokkurt sögu-