Lesbók Morgunblaðsins - 08.01.1950, Síða 7
LESBÖK MORGUNBL’AÐSINS ■*
EINKA „JÁRNTJALD“
S T A LIN hefur dregið járntjald
umhverfis ríki sitt, svo að aðrar
ið eftir því að maðurinn var tiltólu-
þjóðir fái ekki að vita hvað þar
er að gerast. En annað járntjald,
jafn öflugt, hefur hann til að skýla
einkalífi sínu.
Stalin er þrígiftur. Þriðja konan
hans heitir Rósa. Hennar er aldrei
getið í útvarpi nje frjettuní, blöðin
hafa ekki fengið að birta myndir
af henni nje tala við hana. Blöðin
mintust heldur ekki á það þegar
Stalin giftist henni.
Einkalíf Stalins hefur verið við-
burðaríkt og yfir því hvílir hula.
Jafnvel nánustu vinir hans og sam-
verkamenn fá ekki að vita hvað á
daga hans hefur drifið, og allra síst
það, hvernig á því stendur að ýms-
ir af hans nánustu hafa horfið
skyndilega úr þessu lífi.
Fyrstu konu sína misti Stalin ár-
ið 1907, eftir aðeins fjögurra ára
sambúð. Þau höfðu kynst í æsku
og það er sagt að Stalin hafi syrgt
hana. Um hana er fátt vitað annað
en það, að hún ól honum einn son,
sem heitir Jacob Josefvitch. Hefur
svo verið sagt í „Life“ að hann sje
fæddur 1905. Ekkert frjettist af
þessum pilti fyr en árið 1930 að
hann útskrifaðist úr vegaverkfræði
deild háskólans í Moskva. Þá gekk
hann undir nafninu Djugashvili,
sem er hið rjetta ættarnafn Stalins.
Eftir það fór hann til Siberíu og
stóð þar fyrir vegagerð. Næst frjett
ist af honum 1941. Þá tóku Þjóð-
verjar hann höndum, en skiftu
seinna á honum og tveimur þýsk-
um hershöfðingjum, sem Rússar
höfðu í haldi. Síðan hefur ekkert
um hann frjest.
Stalin var orðinn fertugur og
einn af æðstu mönnum Rússlands,
er hann hugsaði til kvonfangs að
nýu. Og þá kvæntist hann 17 ára
gamalli stúlku, sem Madeshda All-
enieva hjet. Hún var dóttir lása-
smiðs í Leningrad, sem var gamall
vinur Stalins. Stalin hitti þau feðg-
in af tilviljun og varð þegar hrifinn
er hann sá að hin litla stúlka, sem
hann hafði sjeð fyrir mörgum ár-
um, var orðin fögur og gjafvaxta
mær. Hún var þá að vísu trúlofuð,
en það skifti einvaldann engu, og
svo giftust þau.
Hún gerðist nú húsfreyja í Kreml
en jafnframt ljet hún ýmis mál til
sín taka og ætlaði sjer sýnilega að
verða atkvæðakona á pólitiskum
vettvangi. Hún kynti sjer vinnu-
brögð og vann sjálf í ýmsum verk-
smiðjum. Á þann hátt komst hún
að ýmsu, sem Stalin þótti gott að
vita, sjerstaklega um óánægju
verkamanna.
Hún ól manni sínum tvö börn,
son sem heitir Vassili og dóttur,
sem heitir Svetlana.
Árið 1932 varð frú Stalin á stór
skyssa. í samsæti, sem haldið var
fyrir Voroshilov marskálk, fór hún
að tala um politik. Því miður fóru
skoðanir hennar alveg í bág við
stefnu Stalins og fylgismanna hans.
Daginn eftir var frú Stalin dáin.
Opinberlega var svo látið heita að
hún hefði dáið úr botnlangabólgu,
Aðrir sögðu að hún hefði drukkið
eitur, sem Stalin hefði verið ætlað.
Sumir sögðu að hún hefði framið
sjálfsmorð, en almenningur sagði
að þetta hefði verið „venjuleg
hreinsun“.
Skömmu seinna barst út orðróm-
ur um það að einvaldurinn væri
að hugsa um það að fá sjer þriðju
konuna. Þeir, sem voru honum
handgengnastir sögðu að hann
þyrfti nauðsynlega á kvenmanni að
halda til þess að sjá um uppeldi
7
STALINS
barna sinna. Og hvort það var nú
af tilviljun, eða að ráðstöfun ann-
ara, þá komst Stalin nú í kynni við
Rósu Kaganovich, systur Lazar
Kaganovich, sem þá var varaforseti
æðsta ráðsins. Þetta varð til þess
að þau giftust, og segja þó sumir
að þau sje alls ekki gift, heldur
hafi hún aðeins flutt til hans í
Kreml.
Aðeins einu sinni hafa þau sjest
saman. Það var þegar neðanjarðar-
járnbrautiq í Moskva var vígð. —
Síðan hefur ekkert borið á henni.
Hinir fáu vinir Stalins, sem njóta
þeirra sjerrjettinda að koma á
heimili hans, segja að Rósa sje
ágæt húsmóðir, glaðlynd og hafi
ánægju af því að elda góðan mat
handa bónda sínum. Þeir segja líka
að hún muni hafa haft góð áhrif
á hann, eins og sjáist á því að þessi
járnkarl sje orðinn mildari en hann
áður var. Hún dvelst aðeins á vet-
urna í Kreml, en frá því snemma
á vorin og þangað til seint á haust-
in, er hún í sumarbústað niður með
Moskva-ánni, svo sem klukkustund
ar akstur frá höfuðborginni. Þar
er Stalin líka tvo og þrjá daga á
viku, og kemur þá stundum með
gesti með sjer.
Rósa hefur reynst stjúpbörnum
sínum vel. Dóttir Stalins gerði
honum þann grikk, að giftast skóla
bróður sínum án hans vitundar.
Þegar Stalin frjetti það ætlaði hann
að verða vitlaus, en Rósa kom fyr-
ir hann vitinu, og henni tókst að
sætta þau feðgin. Og til þess að
gefa yfirstjett Moskva gott for-
dæmi, þá helt hún sjálf veislu til
þess að fagna ungu hjónunum, er
þau komu úr brúðkaupsferð sinni.
En þótt Svetlana væri eina dóttir
Stalins, var ekki minst á hjóna-
band hennar í rússnesku blöðun-