Lesbók Morgunblaðsins - 05.09.1948, Síða 6
386
LESBOK MORGUNBLAÐSINS
VEÐRÁTTA OG HEILSUFAR
ÞAÐ er óralangt síðan að menn
tóku eftir því að eitthvert sambanc'
var milli heilsufars og veðurfars.
Hippocrates, sem talinn er faðir
læknislistarinnar, skildi þetta manna
fyrstur. Hann segir svo: „Hver sem
hugsar sjer að stunda læknavísindi.
verður að taka þetta til athugunar:
í fyrsta lagi skyldi hann aðgæta
hvaða áhrif árstíðir hafa á heilsu-
far. Árstíðirnar eru mjög mismun-
andi og þær breytingar, sem á þeim
verða. í öðru lagi skyldi athuga heita
vinda og kalda, sjerstaklega þá sem
koma að staðaldri en einnig hina,
sem koma fyrir á vissum stöðum.
Því að með breytingu veðurfarsins
verður breyting á sjúkdómum
manna“.
Nú er þetta orðin sjerstök fræði-
grein innan læknislistarinnar, og sá,
sem skarað hefir fram úr í rann-
sóknum á þessu er dr. William F.
Petersen, fyrverandi prófessor við
læknadeild háskólans í Illinois. Hefir
hann stundað rannsóknir á þessu um
20 ára skeið og nefnir þessa nýu vís-
indagrein „metero-biology“. Hann
hefir ritað ýmsar bækur um þetta og
má þar nefna nýjustu bókina, sem
heitir „Man, Weather, Sun“ (Maður.
veður, sól). Er rannsóknum hans lýst
þar ýtarlega, en auk þess hefir hann
ritað fjölda greina i læknatímarit.
stund, eða á meðan þau voru að baða
sig og fylla sig, en síðan ætluðu þau
að strjúka. Eftir nokkurn eltingaleik
fóru þau í vatnið aftur, og á þessu
gekk alla nóttina, því að búrið kom
ekki fyr en næsta morgun. Hrædd-
astur var umsjónarmaðurinn um það
að þetta mundi ríða þeim að fullu, og
þá hefði verið til lítils barist að flvtja
þau alla þessa óraleið með ærnum
kostnaði.
Ilann hefir sýnt það með ótal dæm-
um, að veðrabrigði valda skapbrigð-
um hjá mönnum, sem eiga upptök
sín í þvi að blóðþrýstingur ýmist eykst
eða lækkar, eftir því hvernig veðrið
er. Veðrið hefur líka mikil áhrif á
ýmsa sjúkdóma, sjerstaklega berkla-
veiki og sykursýki. Og þótt undarlegt
kunni að virðast, þá hefur veðráttan
mikil áhrif um að ákveða kynferði
fósturs í móðurlífi. Hefur dr. Petersen
athugað þetta á þann hátt að gera
skýrslu um barnsfæðingar og rann-
saka hvernig veðrátta var 280 dög-
um áður, eða í þann mund er barnið
kom undir. Hefur hann komist að
þeirri niðurstöðu að þegar kalt er i
vcðri koma drengir aðallega undir,
en stúlkur þegar hlýtt er í veðri. Fer
það ekki eftir árstíðum.
Þegar snöggar kuldabylgjur kom.i
verður likaminn að vinna á móti hita-
tapinu. Blóðþrýstingurinn hækkar
því snögglega og sykurefni í blóðinu
eykst, en það er aðalhitagjafinn. Hár-
æðarnar í hörundinu þrútna meira að
segja, eins og til þess að verja hör-
undið kuldanum.
Standi nú kuldarnir í nokkra
daga venst líkaminn honum og blóð-
þrýstingurinn lækkar. En komi svo
hitabylgja, þá verður þessi breyting
niður á við enn örari. Á þessu gengur
í sífellu þegar breytilegt veður er, að
ýmist hækkar eða lækkar blóðþrýst-
ingurinn. Verði margar snöggar veðra
breytingar á nokkrum dögum, þá líð-
ur mönnum illa af þessum sökum.
Og sje um sjúklinga að ræða, þá geta
þessar snöggu breytingar á blóð-
þrýstingi gert út af við þá. Dr. Peter-
sen tekur þar dæmi af Calvin Coolidge
fyrverandi forseta Bandaríkjanna —
Hann varð bráðkvaddur í rúmi sínu
aðfaranótt 5. janúar 1933, og töldu
læknar að banameinið hefði verið
hjartaslag. Coolidge hafði í mörg ár
þjáðst af asthma og hann var svo
næmur fyrir breytingum, að hann
varð sjóveikur aðeins af þvi að stíga
á skipsfjöl. Dr. Petersen segir að
snögg veðrabreyting hafi orðið hon-
um að bana. Hinn 31. desember 1932
var hitinn 'i Nýja Englandi um 60
stig á Fahrenheit, en 1. janúar lækk-
aði hitinn um 50 stig á einum sólar-
hring. Svo kom snögg breyting aftur
og hitinn hækkaði upp í 50 stig hinn
5. janúar. Þetta þoldi Coolidge ekki.
Hann dó.
Dr. Petersen verður tíðrætt um
sykursýkis-sjúklinga og segir að það
bregðist ekki að þeim versni þegar
snöggar hitabreytingar verða. Hefur
hann birt ýtarlega skýrslu um það
efni frá Chicago og sýna þær að
flestir sykursýkis-sjúklingar deyja
2—4 dögum eftir að snöggt kulda-
kast hefur skollið á.
Naunyn, læknir í Strassburg í
Þýskalandi, sem manna best rann-
sakaði sykursýki, komst að svipaðri
niðurstóðu. Hann segir frá einum
sjúklingi, sem látinn var hafa strangt
og reglulegt mataræði, og allt af ná-
kvæmlega jafnt af sykureíninu f
ágústmánuði komu tvö kuldaköst
Strassburg, og í bæði skiptin iókst
mjög sykurefni í blóði sjúklingsins.
Þetta endurtók sig tvisvar sinnum í
október í sambandi við kuldaköst. —
Sjúklingnum versnaði stöðugt, og svc
dó hann í kuldakasti, sem kom i
desember.
Þótt mest beri á áhrifum hita og
kulda á heilsufar manna, þá eru þeir
einnig næmir fyrir allskonar loft-
breytingum, svo sem loftþrýstingi,
vindhraða og breytingum á ozon-
magni í andrúmsloftinu, en það petur
aukist þegar mikið er um sólbletti.
Vegna þess hvað vjer erum næmir
fyrir áhrifum af veðrabreytingum, þá
eru þau áhrif óumflýjanleg, jafnvel
þótt menn haldi sig innan dyra 'i vel
hlýum húsum, eða liggja í rúminu
með rafmagnshitaðar og jafnhlýar
dýnur að sjer. En áhrifin verða þó