Lesbók Morgunblaðsins - 04.11.1945, Blaðsíða 16
542
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Nýja Sjáland varð bresk nýlenda
árið 1840.
I Grikklandi voru lampar nokk-
uð alment teknir í notkun á fjórðu
öld fyrir Krist.
Alfa-alfa er að öllum líkindum
spönsk orðmynd af ai'abíska orð-
inu alfaefaeah, sem þýðir besta
fæðutegundin.
íbúar Brasilíu ent nú 41 millj-
256 þús. 605. Mikill meiri hluti
þeirra talar portugölsku.
Kristófer Columbus gerðist sjó-
maður 14 ára gamall. Ilann var
elsti sonur Domeeo Coloml>o og
Suzanna Fontanarossa.
Viltir hundar hafast við í frum-
skógum Indlands. Þeir halda sig í
smáhópum, oft 30 saman.
Sjötíu milljón Ameríkanar hafa
líftrygt sig fyrir alls 16,000.000.000
dollara síðan árásin var gerð á
Bearl Ilarbor.
— — %
t Bandaríkjunum er álitið að
sjeu um 600 þús. ólæknandi alko-
hólis^pr.
Fyrsti síminn í „ITvíta húsið“
var settur þar árið 1880. |>egnr
Rutherford B. Ilayes var forseti.
Josephine keisarinna í Frakk-
landi hjet, áður en hún giftist Nap
óleon. Marie Rose Josephine de la
Pagerie.
Alominíumframleiðsla Bandaríkj
anna sexfaldaðist á stríðsárunum,
jokst úr 327,000,000 pundum árið
1937 í 2.000,000,000 pund.
Leyaaivopn
HJER SJÁIÐ þig leynivopn, sem bandamenn notuðu við
innrásina í Normandí og talið er að hafi sparað að minsta
kosti 10 þús. mannslíf bandamannahermanna. Eins og á
myndinni sjest er þetta skriðdreki^ sem <)r jafnfær á sjó
og landi. Á efri myndinni sjest hann á sjónum nálgast
ströndina, en á þeirri neðri er hann á landi. Hermenn
Montgomerys notuðu einnig þessa skriðdreka til þess að
komast yfir Neðri-Rín.