Lesbók Morgunblaðsins - 11.10.1936, Blaðsíða 7
Þfóðhætlir IV.
Giftingasiðir
í Síam.
Um tvítugt giftast karlmenn
í Siam, en stúlkur 14—17
ára. Hjer um bil allir giftast og
það er mjög sjaldgæft að hitta
þar piparmeyjar. Venjulegast er,
að foreldrar ráði giftingu barna
sinna, en það hefir nú samt færst
í vöxt á seinni árum, að fólk gift-
ist af ást.
Síamsbúar leggja ekki mikið
upp úr hjónavígslunni, og því er
hún höfð eins stutt og fábrotin,
sem unt er, eða jafnvel alveg
slept. Þetta stafar af því, að það
er fullgilt hjónaband þar í landi,
er piltur og stúlka fara að búa
saman. En flestir foreldrar eru
nú þannig skapi farnir, að þeir
vilja gera sjer og öðrum glaðan
dag þegar börn þeirra taka sam-
an. Er því slegið upp veislu og er
hún haldin á heimili brúðurinnar
og stendur í tvo daga. Hljóðfæra-
sveit og vinir fylgja brúðguman-
um þangað. Fara nú allir gestir
inn í stærsta sal í húsinu og er
þeim þar veittur matur og drykk-
ur og „betel“ til að tyggja. Þeg-
ar brúðhjónin koma inn eru þau
bundin saman með vígðu bandi.
Krjúpa þau þá á knje, en gest-
irnir strá yfir þau hrísgrjónum
og skvetta á þau vígðu vatni úr
skel. Þá eru þau aðskilin, en alla
nóttina syngur brúðgumi man-
söngva fyrir utan svefnherberg-
isglugga hennar og hljóðfæra-
sveitin leikur undir. Morguninn
eftir er munkunum haldin dýr-
indis veisla og allan daginn er
þar glaumur og gleði. Um kvöldið
er brúðurin leidd til hjónasæng-
ur með mikilli viðhöfn. Ungu
hjónin halda svo lengi kyrru fyr-
ir á heimili foreldra hennar, oft
þangað til þau eiguast fyrsta
barnið.
Vegna þess að Búddatrúin
bannar ekki fjölkvæni, þá er það
talið leyfilegt og hver maður get-
ur gifst eins mörgum konum og
hann hefir efni á að eiga. En
fyrsta konan hefir ætíð forrjett-
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
327
indi fram yfir hinar og verða þær
að hlýða henni sem húsmóður.
Þegar kona fer að eldast telur
hiin það ráðlegt að útvega manni
sínum hjákonur. Hygst hún með
því munu gera honum heimilið
skemtilegra og það er henni
sjálfri metnaðarsök að ráða yfir
sem stærstu heimili.
Hjónaskilnaðir fara fram, þeg-
ar bæði koma sjer saman um
það, og er þá eignum skift á milli
þeirra. Þetta á þó ekki við um
hjákonur, því að þær getur mað-
urinn rekið frá sjer skaðabóta-
laust. 011 börn eru borin til arfs,
en börn fyrstu konunnar fá miklu
meiri arf heldur en hjákonubörn.
Fjaðrafok.
Nýlega kom það fyrir í Söder-
telje í Svíþjóð, að stór bola-
bítur rjeðist á lítinn hund og beit
svo fast, að hann fekk krampa í
kjálkana og gat ekki slept aftur.
Sá litli skrækti og skrækti og sá
stóri dustaði hann til og reyndi
að losna við hann, en ekkert
dugði. Lögregluþjón bar þar að
og hann tók að berja bolabítinn,
en það hjálpaði ekki. Þá bar þar
að gamlan karl og hann tók upp
neftóbaksdósir sínar og hvolfdi
úr þeim á trýnið á bolabítnum.
Það hreif, hann fekk þrumandi
hnerra og sá litli spýttist út úr
honum eins og skot.
Stærsti togari í heimi hljóp
nýlega af stokkunum hjá
Frederikshavns Værft og Flyde-
dok í Danmörku. Hann er smíð-
aður fjTrir Spánverja og er 1550
smálestir, eða 150 smál. stærri
heldur en togarinn „Jutland“, sem
þessi sama skipasmíðastöð smíð-
aði fyrir Frakka fyrir tveimur ár-
um og hefir fram að þessu verið
stærsti togarinn. Hinn nýi togari
var skírður „Abrego“. Annar tog-
ari er líka í smíðum þarna fyrir
Spánverja.
LT of brennandi ást olli
dauða Fred Wilkinson og
kærustu hans, Della Kretlow.
Hann var 45 ára, hún 23 ára.
Wilkinson vann í demantanám-
unum hjá Kimberley i Suður-Af-
ríku, og er hann var á heimleið
að kvöldi, hafði hann óvart dyna-
mitpatrónu í brjóstvasa sínum.
Hann mætti kærustu sinni á leið-
inni, og faðmaði liana þegar svo
fast að sjer, að dynamitpatrónan
sprakk.
ARGT er skrítið í Banda-
ríkjunum. Meðal annars
það, að karlljónið í dýragarðinum
í Fíladelfíu er með parruk. Kon-
ungur eyðimerkurinnar var orð-
inn sköllóttur og ljótur, en þá
fann einhver hugvitssamur maður
upp á því að setja á hann parruk.
Og síðan þykir fólki meira gam-
an að sjá hann heldur en áður.
EGAR kappreiðarnar hjá
Epsom í Englandi fóru
fram í sumar, veðjaði ungur mað-
ur 500 sterlingspundum á einn
hestinn. Og hann var svo viss um
að vinna, að hann kvaðst skyldu
eta hattinn sinn, ef það brygðist.
Það brást, og hann vildi standa
við orð sín. Hatturinn var skor-
inn í smábita og soðinn í krydd-
sósu — og etinn. Eftir það varð
að flytja unga manninn í sjúkra-
hús, því að flóki er ekki hollur
í magann.
Játvarður konungur sjest hjer
á reiðhjóli með þremur hjólum.
Þetta hjól átti afi hans, Játvarð-
ur konungur VII.