Lesbók Morgunblaðsins - 01.10.1933, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 01.10.1933, Blaðsíða 1
38. tölublað. Sunnudag-inn 1. október 1933. VIII. árgangur. . iHafoldarprentsmlðja h.f. Kanadasjóður Eftir Rag'nar E. Kvaran. í síðasta tölublaði Lögbirtinga- blaðsins, sem út kom fyrir nokk- urum dögurn, er birt .skipulags- skrá sjóðs Jiess, er hlotið liefir nafnið Kanadasjóður og ánafnað- ur liefir verið íslensku þjóðinni af stjórn Kanada í tilefni af þús- und ára afmæli Alþingis. Ritstjórn Morgunblaðsins befir farið þess á leit við mig, að jeg segði les- endum lítillega frá, með hverjum liætti gjöf þessi varð til. Það er kunnugt hjer á landi, að 2—3 árum fyrir Alþingislrátíðina 1930 mæltist undirbúningsnefnd liátíðarinnar til þess við Þjóð- ræknisfjelagið vestra, að samvinnu yrði komið á milli nefndarinnar og fjelagsins um að undirbúa og sl^i/puleggjá þátttöku Vestuir-ÍIs- lendinga í hátíðahöldunum. Það var á hvers manns vitund, að mikill fjöldi íslenskra manna vestra mundi hafa huga á að komast hingað við þetta tækifæri og því sýnt, að einhverjar ráðstaf- anir þyrfti að gera til þess að sjá um hentugan farkost og undirbúa dvöl er hingað kæmi. Þjóðræknis fjelagið valdi nefnd manna. sem síðan nefnd'ist Heimfararnefnd, til þess að annast þetta mál fyrir sína hönd. Omur mun hafa bori.st liingað til lands um j)að, að deilur urðu um j>etta mál þar vestra, sem rjeðust á þann hátt, að farið var að lokum á tveimur skipum, en nú eru þær deilur að sjálfsögðu glevmdar og grafnar fvrir a 11- löngu. Heimfararnefndin gerði sjer Ijóst ])egar í öndverðu, að hlut- verk hennar var ekki, eða átti tkki að vera, það eitt, að undir- búa för Islendinga að vestan og búa í haginn fyrir ])á, er heim kæmi til íslands, heldur hitt eigi síður, að vekja athygli Norður- Ameríkumanna á hátíðinni og sjá um að þær þjóðir, er fjöldi ís- lendinga hefir átt sambýli með í hálfa öld, sýndi ísiandi eigi minni sóma en aðrar jijóðir, þótt í meira nágrenni kynnu að vera. Það var ]>ví fyrir atbeina manna úr Heim- fararnefndinni, auk ýmsra annara góðviljaðra mauna, sem Congress- inn í Washington samþykti að senda hingað líkneski af Leifi hepna, sem vott virðingar og velvilja Bandaríkjanna. En sennilega hefir flestum Vest- ur Islendingum farið svo, að þeim hefir verið jafnvel enn annara um, að Kanadamenn ljetu sig þessi^ sögulegu tímamót skifta, heldur en jafnvel Bandarikjamenn. — ís- lendingar eru miklu fleiri búsettir i Kanada en Syðra, og mönnum virtist það metnaðarmál, að Kan adastjórn mintist dvalar og verks fslendinga í landinu með því að sýna ættlandi þeirra fulla virð- ingu við þetta tækifæri. En nú er það svo, að stjórnir landa láta sig að jafnaði slík mál sem ]>essi litlu skifta, nema einliverjir verði til þess að leiða athygli þeirra að ])eim og skýra þau fyrir ]>eim. Iieimfararnefndin taldi ]>etta sitt verk og hagaði sjer því sam- kvæmt- Nefndarmenn höfðu sín á meðal rætt allmikið um, með hverjum hætti væri ánægjulegast að Kan- ada Ijeti Alþingishátíðina til sín taka. Að sjálfsögðu voru allir sam- mála um, að sjálfsagt væri að Kanada sendi fulltrúa á hátíð- na ef boð ]>ess efnis kæmi frá íslandi, sem allir töldu sjálfsagt að verða mundi. Enda varð síð- ar sú raunin á, að alls voru sex menn sendir, ]>rír frá Sambands- þinginu og þrír frá fylkisþingum, til ])ess að bera kveð.þm ])inga og ])jóðar. En þegar fregnir bárust um það, að Bandaríkjamenn hefðu fyrirhugað hina veglegu gjöf sína, |)á þótti Heimfararnefndinni best fara á, ef unt væri að hafa þau áhrif, að Kanadainenn mintust há- t:ðarinnar með nokkuð iiðrum hætti en nágrannaþjóðin hafði fyrirhugað. Og á fundi nefndar innar 8. mars 1929 var samþykt sú tillaga. að farið skyldi þess á leit við Kanadastjórn, að minn- ingargjöf yrði send til Islands og væri það námssjóður, 25.000 doll- arar að upphæð, og vöxtunum varið árlega til styrktar íslenskum fræðimönnum eða fræðimanna- efnum, er legg.ja vildu stund á þær námsgreinir. er hentugt þætti að nema í Kanada. Nefndin ræddi- svo þetta mál við tvo af þing mönnum Winnipegborgar í Sam- bandsþinginu, John S. McDiarinid og Joseph T. Thorson, er jafnan studdu nefndina upp frá ])ví á margvíslegan hátt, enda átti ann- ar þeirra, Joseph T. Thorson, sjálfur sæti í Heimfararnefndinni. Jafnframt ]>ví að nefndin ræddi um málið við ]>essa tvo þingmenn

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.