Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.1932, Side 8
20
LllSBÖK MORGUNBLÁÐSÍNS
Fjármálafundur í Basel. í 15a.,el var iiýlega haldinn fundur til
þess að ræða um hernaðarskaðabætur Þjóðverja og ástandið í Þýska-
landi. Komst. fundurinn að þeirri niðurstöðu að Þjóðverjum væri
alls ekki kleift að standa við aðrar skuldbindingar sínar, ef hern-
aðarskaðabæturnar væri heimtaðar af þeim. — Fundinn sátu banka-
menn frá mörgum þjóðmn. Þriðji maðnr frá hægri á myndinni er
formaður ráðstefnunnar, prófessor Beneduce, einn af helstu trúnað-
armönnum Mussotini. Ytst til hægn situr Sir Walter Layton, aðal-
ritstjóri „Economist“ í T/ondon. Sjötti maðirr frá vinstri er Rudbeck
baukastjóri frá Stokkhóimi og áttundi maður frá cinstri hollenski
fjármálamaðurinn Collijn.
liurðin verið opnar, þegar j-ofinn
bar þar að, og þá hafði hann hlaup
ið í bæinn og gist þar .um nóttina.
Og í staðinn fyrir að vera drepinn,
var refurinn tekinn og settur í búr,
og er nii kominn í refabú Jiar í
grendinni.
5mœlki.
Rakari: Hjerna er kármeðalið.
En mig langar til að spyrja yður
livort þjer leikið ,,billiard“?
— Já, en hvers vegna spyrjið
þjcr að því?
— Jú, jeg verð að biðja yður
a5 minnast þess, þegar þjer hafið
notað bármeðaliö að þvo yður ræki-
riga um liendurnar, áður en þjer
snertið á „billiard“-kúlu, því að
annars getur luin orðið kafloðin.
Æstur maður: Eldsvoði! Elds-
voði!
Rödd í s'manum: Hvar?
— Hjer!
Winston Churchill
fyrverandi ráðherra brá sjer fyrir
nokkru til Bandaríkjanna, en þar
vildi honum það óhapp til, að bíll
ók á hann og meiddi hann mikið.
Yarð hann um hríð að liggja i
sjúkrahúsi, en myndin var t.ekin
af honum þegar hann hafði náð
sjer svo, að honum var leyft að
fara út og láta aka sjer í sjúkra-
stóli.
Hann: Ekkert skil jeg í því að
þjer skylduð fyrst hvetja mig til
að biðja yðar og hryggbrjóta mig
svo.
Hún: Hvatti jeg yður nokkuð
til að biðja mín?
Hann: Já, þjer sögðuð að faðir
yðar væri miljónamæringur.
fsafoldarprentsmiðja h.f.