Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.1931, Blaðsíða 6
14
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Hjer átti Abraham heima. í b'blíunni er sagt að Abraham hafi
átt heima í borginni Ur í Mesopotamiu. Sú borg er fyrir löngu
liðin undir lok, en nú eru enskir og amerískir fornfræðingar að
grafa í rústimmn og hafa fundið þar margt merkilegt, sem varp-
ar nýju ljósi yfir menningu Austurlanda bæði fyrir og eftir
sjr ndaflóðið. — Hjer á myndinni sjást menn að starfi við upp-
gröftinn og eins má sjá hve djúpt hefir orðið að grafa áður en
komið var niður á elsta grunn borgarinnar.
~~ ' ' '~
ekki í hringa), og augun eru að
eins tvö.
A fslandi eru til að minsta kosti
15—20 tegundur af köngulóm. —
Merkastar þeirra eru húsaköngu-
lóin. fjallakörigulóin og hnoða-
köngulóin. Húsaköngulóin lifir
mest í húsum manna, og spinnur
sjer pípumvndaðan bústað í jaðri
vefsiris: Fjallaköngulóin hefst við
alls staðar úti um haga, en spinn-
ur engan bústað í sambandi við
vefinn. Sjálfur vefurinn er aftur
á móti miklu betur gerður og
Vandaðri að öllu íeyti en hjá húsa-
köngulónni. Ilnoðaköngulóin hag-
ar háttum sínum alt öðru vísi en
Mnar tvær. ITún spinnur nefnilega
ekki veiðinet, heldur hleypur bráð-
ina uppi, og bítur hana banasári.
Hún er mjög frá á fæti, en hleyp-
ur mest í stuttum sprettum. —
Hnoðaköngulóin og skyldar teg-
undir, sem ekkert veiðinet hafa,
nefnast einu nafni veiðiköngulær.
Köngulærnar eru til lítils gagns,
nema þá ef til vill óbeinlínis, ef
nytsöm dvr lifa á þeim. Maðurinn
héfir þó reynt að notfæra sjer
spunalist þeirra, og nota spunann
sem silki, en ekki hefir varan þótt
endingárgóð og heldur því silki-
fiðrildið enn þá velli með virð-
ingu.
Margar köngulær eru skaðlegar,
vegria eitursins, sem þær gefa frá
sjer. Hjer á landi og í öðrum
köldiim og tempruðum löndum
gæfir þessá þó ekki, því köngu-
lærnari Terri litlar, en í heitum
löndum ■ éru til köngulær sem
eru alt að því 10 sentimetrar á
lengd; og geta þær gert mikinn
skaða á búneningi og bitið menn
svo þeir liggi mánuðum saman
eða hljóti dauða af. Á steppunum
í Suður-Rússlandi er t. d. alveg
fult af þeim á sumrin, og margar
hafa borist frá ýmsum heitum
löndum til E\Trópu-hafna með skip-
um. í hjeraði nokkru í Suður-
Rússlandi, sumarið 1896, bitu þess-
ar köngulær:
48 manns, og þar af dó tvent.
178 úlfalda, 57 dóu. 218 hesta, 36
dóu. 116 kýr, 14 dóu.
Þótt-köngulærnar sjeu grimmúð-
ugar að skaplyndi, eiga þær hrós
og béiður skilið fvrir dugnað og
atorku. Vefurinn er meistaraverk,
og einstakur í sinni röð. Jeg gat
j ess fyr, að skrúfuþráðurinn í vef
fjallaköngulónna væri alþakinn
örsmáum límkendum dropum. —
Fjöldi þessara dropa nemur mörg-
um þúsundum á hverjum vef, og
á nóttunni, t. d. þegar dögg er,
eyðileggjast allir droparnir, svo
köngulóin verður að gera þá að
nýju á hverjum morgni. Eftir
hálfa klukkustund er verkinu lok-
ið. Alþekt er köngulóin fyrir veð-
urspár sínar.Sagt er að húsaköngu-
lóin snúi höfðinu út þegar góð-
viðri er í vændum, en afturboln-
um þegar ilt veður er í nánd.
Köngulærnar leggja líka meiri
rækt við vefi sína undir blíðviðri
og stillur en j>egar vond veður
eru í aðsigi.
— Nú, þjer fómð í söngleik-a-
höllina í gærkvöldi, María. Hvern-
ig líkaði yður þar?
— Ágætlega, það var ,;Lohen-
grin‘
— Nú, þá hafið þjer kynst
Wagner?
— Ónei, hann sagðist heita Sör-
ensen.