Lesbók Morgunblaðsins - 19.06.1927, Blaðsíða 7
LESBOK MOtíöUNBLAÐSÍNS
191
Til sendiherrans frá Júpíter. Byrd.
Þú kant að unna af andlegleik sönnum,
opna þá brunna, sem lágu' undir fönnum.
Þú sýnist kunna, í kyrlátum önnum,
kanna hið grunna og dýpra í mönnum!
Ertu’ okkur sendur með auðfyltar hendur?
Andi þinn bendir á skínandi lendur.
Málmlogi’ er yfir þjer mikilla þrifa;
málmlogum skrifað, að. þú fáir lifa!
Sjötug kona.
Stntta kjólarnir.
Ummæli Math. Malling.
Fyrir alllöngu barst skeyti um
það frá Budapest, að þar liefði
verið frá hendi stjórnarvaldanna
gefin út tilkynning, sem bannaði
nemöndum í æðri kvennaskólum
að ganga með stuttklipt hár, stutta
kjóla, bera handleggi, nota and-
litsfarða og ltoma á opinberar
danssamkomur þannig búnar.
Böril og foreldrar tóku þessu
á þá leið, að þau mótmæltu kröft-
uglega og liótuðu einskonar verk-
falli — að sækja ekki skólana.
Urðu yfirvöldin að draga úr fyrir-
skipuninni.
Þetta varð til þess, að dönsk
kona ein nafnkunn og vel metin,
Mathilde Malling Hausuhultz,
skrifaði grein í eitt blaðið í Dan-
mörku. Gerði hún ráð fyrir, að
foreldrar á Norðurlöndum mundu
álykta á |)á leið, að þeir væru
skynsamari með tilliti til búnings
barna sinna.
Eu hún heldur hinu gagnstæða
fram, biður foreldra að stinga
hendi í eigin barm, og athuga,
livort telpur hjer á Norðurlönd-
um gangi ekki svipað klæddar og
þar syðra. Yfirvöldin í Budapest
andmæltu einmitt stuttu og flegnu
kjólunum, sem skólatelpurnar not-
uðu. En hvernig væri slíku háttað
lijer á i^orðurlöndum ? Nákvæm-
lega eins. Foreldrarnir þar hög-
uðu búningi barna sinna alveg á
sama hátt og þeir í Ungverjalandi.
Hún segir, að fyrir 10 til 20
árum hafi engin telpa innan ferm-
ingar sjest í flegnum kjól nje svo
stuttum, að eigi næði hann niður
fyrir linjen. Og kjóllinn liafi síkk-
að eftir því, sem aldur færðisl
yfir stúlkubarnið. Nú sje það aft-
ur á móti orðin venja, sem enginu
veiti í raun og veru eftirtekt, að
kjólarnir nái í lengsta lagi niður
á hnjen, og oft ekki einu sinni svo
langt. Nærfötin fari svo auðvitað
eftir utanyfirkjólnum — ef þá um
nokkurt ])ils sje að ræða undir
kjólnum.
Mathilde Malling lætur það al-
veg liggja á milli hluta, hvort
þetta sje fallegt eða ekki. Um það
sje hægt að þrefa aftur og fram.
En hitt dyljist engum, að lieilsu-
samleg geti þessi tíska ekki verið í
rakasömu og köldu loftslagi Norð-
urlanda. Sje það alt annað mál,
þó hættulítið sje. að klæða eða
öllu heldur afklæða börnin á þenn-
an hátt þar syðra í mildara og
þurrara loftslagi. En það nái ekki
nokkurri átt, og hafi aldrei náð,
að klæða sig eins á norðui'hveli
jarðar eins og suður undir mið-
jarðarlínu. Slíkt kunni ekki góðri
lukku að stýra.
Eitt atriði nefnir hún enn í sam-
bandi við stuttu kjólana. Heldur
hún því fram, að þeir beinlínis
æsi u])p og kalli fram hinar lægri
og verri hvatir karlmannanna. —
Segist hún hafa sönnun fyrir þvi
í vitnisburði þeirra fyrir rjetti,
sem sekir hafi gerst við lög um al-
ment siðferði.Býst hún við, að for-
eldrar geri sjer þetta of sjaldan
Ijóst. En ef þeir íhuguðu það, þá
mundu þeir flestir láta kjólana á
telpnnum sínum ná að minsta
kosti niður á hnjen.
Tveir flugmenn liafa nú nýlega
flogið yfir Atlantshaf — Lind-
bergh og Chamberlain. Hiun
þriðji, Nungesser fórst. En marg-
ir fleiri hafa ætlað að freista
þess flugs í sumar. Er kunuugt
uiu 11 flugmenn, franska, ame-
ríska, þýska og ítalska, sem hafa
verið að búa sig undir það. Meðal
þeirra er pólfarinn Bvrd, sem
ltjer er mynd af ásamt förunaut
Iians, Bennet. Þeir urðu fyrþ- því
slysi, sköm'mu áður en þeir ætluðu
að leggja á stað, að flugvjelin
lirapaði -með þá. Meiddist Byrd
svo mikið, að ólíklegt er að hann
hugsi meira til langflugs í sui'nar.
Samt er hann farinn að undir-
búa flugferð til Suðurpólsins, sem
ráðgerð er næsta sumar. A að
vanda sem best til alls útbúnaðar
í þeirri för.
Byrd ætlar að liafa fjórar flug-
vjelar. 2 hinar svonefndu Fokker-
vjelar, með tveiin til þrem mótor-
um, og 2 aðrar flugvjelar.
Ekki er ákveðið hverjir taki
þátt í þessari fiir Bvrds. en talið
er sennilegt, að það verði meiri
hlutinn Norðmenn.