Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1988, Síða 44

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1988, Síða 44
44 JÓN STEFFENSEN síðari hluta þess frá bls. 193 fyrr en hann hafði lokið við að afrita fyrri hlutann. Endar fyrri hlutinn á grein 215, en hinn síðari hefst á 217. grein, án þess nokkuð vanti í, sé miðað við Lbs. 197 4to. Sjá töflu 3. Nú eru í Landsbókasafni tvö eiginhandarrit Jóns af lækningabók hans, ÍB. 327 4to, sem er uppkast að ýmsum greinum, og ÍB. 197 4to, sem vantar framan af og innan í fáein blöð. Það ber ekki með sér að vera samið í tvennu lagi, eins og handrit það, sem Halldór ritaði eftir, og er því að líkindum yngri uppskrift Jóns en Halldór hafði í höndum. ÍB. 274 4to, sem í handritaskrá segir, að talið sé eiginhandarrit Jóns, er það augljóslega ekki, þegar borið er saman við hin tvö handritin. Þá er þess að geta, að í handritadeild eru einnig tvö handrit að lækn- ingabókinni, Lbs. 1849 4to og Lbs. 4810 4to, með hendi Gísla Kon- ráðssonar. A skjólblað Lbs. 2424 4to hefur Halldór Árnason ritað: „Þeim sem Bók þessa enkum hennar Midpart vill nýta til Hússbrúkunar er naudsynligt undir eins og lest ad teikna upp þau einfoldustu og saklausustu Medicament, sem þar fyrir koma og egnast þau hann treystir sér til skadlaust ad brúka í uppá fallandi léttvægum Qvillum; í fyrstu fáar Sortir, sem vid má auka, þegar betr er eptir þénkt; og í þeim þýngri Siúkdómum, þegar regluligs Læknis leita þarf, þá í Lýsíngu Siúkdómsins adgiæta Spursmál, sem bak við standa, að Læknirinn fái Svar uppá þau hellstu, sem snerta Tilfelli hins Siúka og medhönd<l>a þenna fyrr og sídarr, hvad Pössun, Nautn og Þión- ustu áhrærir eins og Bókin segir, hver ogsvo vísar hagqvæma og ein- falda Medferd Úngbarna er undirbýr Heilsu þeirra Fiör og Dugnad máské æfilángt. H.A.“ Það kemur hér greinilega fram, hvaða hlutverki Halldór ætlaði bókinni að þjóna, einkum miðhluta hennar eða þeim, sem Þorsteinn gaf út, og að Halldór hefur átt hugmyndina að því að koma henni á prent og fengið Skagfjörð, sem þá var fyrir prentverkinu í Viðey, til að taka það að sér og sennilega látið hann hafa afrit af hluta handritsins. En hvernig var það handrit, sem Sveinn Pálsson fær frá Skagfjörð til að búa undir prentun? Þegar Lækningabók fyrir almúga er athuguð, þá eru í henni 320 greinar og einnig 216. gr., en ekki með inntaki 217. greinar, heldur er það eins konar yfirlit yfir undangengnar 215 greinar, sem finnst ekki í neinum eiginhandarrita Jóns Péturssonar. Nú segir útgefandi bókarinnar, að handrit hennar hafi verið sent Handlœkni S. Pálssyni til allrar umbótar þeirrar, er honum væri meguleg, hvad þessi trúlega gjort hejir, er se'st af skíríngargreinum hans í bók þessari, sem
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.