Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1988, Síða 40
JÓN STEFFENSEN
Jón læknir Pétursson og lækningabók hans
Frá erfingjum Þorbjargar Bergmann (1876-1952) færði Gunnar
Guðmundsson prófessor Nesstofusafni 1985 að gjöf handrit af
lækningaritum Jón læknis Péturssonar, og varð það tilefni eftirfarandi
athugana á nokkrum rita hans.
Handritið er í 4to, 19,7X16 snt, með sjálfstæðu blaðsíðutali fyrir
hvern hinna þriggja bókarhluta. Aftast er skjólblað og lúið pappa-
spjald með „marmórereðum“ spjaldapappír; en fremra spjaldið með
skjólblaði og fyrsta blað handritsins vantar, auk tveggja og % blaðs
innan úr því. Handritið hefst á bls. 3 svo: „1." Capituli /Um Icktsýki
edr Lidaveiki og hennar/Tegundir“,- og er það afrit af riti Jóns Pét-
urssonar prentuðu á Hólum 1782, bls. 9-76, að slepptum latneskum
tilvitnunargreinum og nteð stafsetningu afritarans. Það er sarna
rithönd á öllu handritinu ásamt blaðsíðutölunum og er á Lbs. 1575
og 2424 4to, sem Halldór Arnason, lvfjasveinn í Nesi, skráði 1821. Á
spássíum handritsins er nokkuð urn krot með annarra höndum en á
handritinu og ennfremur rissmvndir barna; þar af veita tvær
upplýsingar um fyrri eigendur. Neðst á bls. 268 stendur: „Páll
Guðmundsson á þessa bók með rjettu,“ og aftan á næsta blað, sem er
ótölusett, er ritað: ,J. Jónsson á bókina, honum gefin af Páli
Guðmundssyni í Nesi. Ár 1882“.
Páll Guðmundsson (f. 1820) í Nesi var sonur Guðmundar Páls-
sonar (1793-1858) bónda í Mýrarhúsum (1830-58), ogjón Jónsson
(1858-1912) bóndi í Melshúsum var systursonur Páls Guðmunds-
sonar. Auðsætt er, að Halldór í Nesi hefur ekki ritað þetta handrit
fyrir Pál, en trúlega hefur hann gert það fyrir fóður hans eða afa, Pál
Loftsson silfursmið (1746-1828), er síðustu ár ævinnar bjó í Melshús-
um á Seltjarnarnesi með Guðmundi syni sínum, en Páll var sonur
séra Lofts Rafnkelssonar (1703-1752) á Krossi í Landeyjum og því
móðurbróðir Halldórs Árnasonar lyfjasveins í Nesi.
Unnur Stefánsdóttir batt handritið í pergament 1985.