Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1982, Page 95
Landsbókasafnið 1981
BÓKAKOSTUR OG Bókakostur Landsbókasafns var í árslok
BÓKAGJAFIR samkvæmt aðfangaskrá 360.676 bindi og
hafði vaxið á árinu um 4506 bindi, sem er i
allra minnsta lagi miðað við það, sem verið hefur um langt árabil.
Mikill fjöldi binda var sem fyrr gefinn safninu eða fenginn í skiptum.
Eins og menn sjá, er í Arbókinni að þessu sinni birt allsherjarskrá
um doktorsritgerðir Islendinga prentaðar og óprentaðar, 1666-1980.
Er hún svo sem fram kemur í formála fyrir henni að stofni til skrá þeirra
Ólafs F. Hjartar og Benedikts S. Benedikz, er birt var í Árbók Lands-
bókasafns 1962-63 um tímabilið 1660-1963, en viðbótin er öll verk
Ólafs. í aðdráttum vegna hennar hefur Landsbókasafni áskotnazt
mikill fjöldi ritgerða, margar þeirra að gjöf frá höfundum, og skulu
þeim hér færðar sérstakar þakkir. Samvinna Landsbókasafns við ís-
lenzka fræðimenn og erlenda, er við íslenzk viðfangsefni fást, er afar
mikilsverð. Þeir birta ritgerðir víða um lönd ogoft í tímaritum, t. a. m.,
er safnið á ekki. Getur safninu veitzt mjög erfitt að leita uppi slíkar
ritgerðir og afla þeirra, og er hér heitið á alla, sem þetta varðar, að
hugsa til Landsbókasafns í þessu efni, veita því upplýsingar og láta í té
ljósrit eða sérprent, ef um þau er að ræða.
Nú verða taldir gefendur bóka, einstaklingar og stofnanir, og fara
fyrst nöfn íslenzkra gefenda:
Anna Sigrún Julnes, Aukra, Noregi. - Dr. Árni Kristinsson, Reykjavík. - Dr. Áskell Löve, San
José, California. - Dr. Axel Björnsson, Reykjavík. - Baldur Jónsson dósent, Reykjavík. - Dr.
Benedikt S. Benedikz, Birmingham. - Bergsteinn Jónsson dósent, Reykjavík. - Dr. Bjarni
Einarsson, Reykjavík. - Dr. Bjarni Reynarsson, Reykjavík. - Bjarni Th. Rögnvaldsson, Reykja-
vík. - Bókaútgáfan Björk, Akranesi. - Borgarbókasafn Reykjavíkur. - Einar Pálsson rithöfundur,
Reykjavík. - Einar G. Pétursson cand. mag., Reykjavík. - Dr. Eiríkur örn Arnarson, Reykjavík. -
Elsa E. Guðjónsson safnvörður, Reykjavík. - Dr. Erlendur Haraldsson, Reykjavík. - Dr. Eyjólfur
Busk, Þýzkalandi. -Friðrik Þórðarson cand. philol., Ósló. - Gísli H. Guðjónsson M. S., London.
- Dr. Gísli Ágúst Gunnlaugsson sagnfræðingur, Reykjavík. - Dr. Guðjón Magnússon, Hafnar-
firði. - Dr. Guðlaugur Þorbergsson, Þýzkalandi. - Dr. Guðmundur Ólafs Guðmundsson, Akra-
nesi. - Dr. Guðmundur E. Sigvaldason, Reykjavík. - Dr. Guðni Georg Sigurðsson, Reykjavík. -