Takmark - Lítið fréttabréf um heilbrigðismál - 01.10.1976, Blaðsíða 2

Takmark - Lítið fréttabréf um heilbrigðismál - 01.10.1976, Blaðsíða 2
Öflug samtök skólafólks gegn tóbaksneyslu Nemendur efstu bekkja barnaskóla sameinast um að hafna tóbakinu og berjast gegn reykingatískunni SamtöK þau sem 6.-bekkingar margra barnaskóla í Reykjavík og nágrenni stofnuðu til í vor um baráttu gegn reykingum hafa vakið athygli um land allt og haft veruleg áhrit ekki aðeins í hópi 6.-bekkinganna heldur einnig meðal skólasystkina þeirra og nemenda í öðrum skóium. á heimilum barnanna og víðar. Fundur sem haldinn var 7 apríl s.l. að Suðurgötu 22 í Reykjavík — húsa- kynnum krabbameinsfélaganna — var til marks um þá eindregnu samstoðu sem þá þegar hafði myndast um þetta mál meðal nemenda i 12 ára bekkjum Álftamýrar-, Árbæjar-, Breiðholts-, Hlíða-, Laugarnes-, Mela-, Mýrarhúsa- og Vogaskóla Nokkru seinna bættust í samtökin nemendur 6-bekkjar Hvassaleitisskóla og Varmárskóla i Mosfellssveit Ekki má gleyma 6.-bekk- ingum barnaskólans í Neskaupstað sem urðu fyrstir til að undirrita sam- eiginlega yfirlýsingu gegn reykmgum Á Suðurgotufundinum voru um 60 fulltrúar 6-bekkjardeildanna í fyrst nefndum átta skólum auk gesta og blaðamanna Framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Reykjavíkur, Þor- varður örnólfsson, skýrði þar frá þeirri starfsemi sem hafin væri í skólum þessum fyrir forgöngu kraþbameins- félagsins i þeim tilgangi að hvetja 6 - bekkinga sérstaklega til virkrar sam- stöðu og baráttu gegn reykingum Hefði hann farið í alla 12 ára bekki þessara skóla, alls 35 deildir, rætt þar við nærfellt 840 nemendur og sýnt þeim kvikmyndir um skaðsemi reyk- inga Síðan hefðu verið haldin eða væru ráðgerð sérstök námskeið og ýmis önnur starfsemi í 6. bekk til að auka þekkingu og áhuga nemendanna á þessum málum og gera þá færa um að fræða yngri skólasystkin sín um skaðsemi tóbaksnautnar Nemendurn- ir hefðu sýnt þessu mikinn áhuga sem gleggst mætti sjá af því að nú hefðu 6 -bekkingar í þessum 8 skólum sam- einast um það í hverri bekkjardeild að undirrita eindregna viljayfirlýsingu um andstoðu gegn reykingum Gerðu full- trúar hverrar einstakrar deildar grein fyrir þátttoku i sinm deild Kom í Ijós að því næst allir 6 -bekkingar í þessum skólum höfðu tekið höndum saman um að berjast gegn tóbakstiskunni. Að því búnu samþykktu fulltrúarnir í einu hljóði að skora á 6.-bekkinga um allt land að sameinast nú og framvegis um að byrja ekki að reykja Einnig samþykkti fundurinn mótmæli gegn hvers konar tóbaksauglýsingum og áskorun til reykingamanna að virða rétt þeirra sem ekki reykja til að anda að sér hreinu lofti. Þá var samþykkt að mæla með því að bannað verði að selja börnum og unglingum tóbak og talið var eðlilegt að takmarka smám saman alla tóbaksverslun i landinu. Meðal gesta á fundinum voru Vil- hjálmur Hjálmarsson menntamálaráð- herra og Guðmundur Magnússon skólastjóri Breiðholtsskóla Ávörpuðu þeir báðir börnin, lýstu mikilli ánægju sinni yfir framtaki þeirra og hvöttu þau til að halda áfram baráttunni YFIRLÝSING sem undirrituö var af nemendum í mörgum 12 ára bekkjum á síðasta vetri ,,Við undirrituð, bekkjarsystkin í 6.í..skóla lýsum yfir þeim eindregna vilja okkar að byrja ekki að reykja og viljum styðja hvert annað í því áformi. — Við viljum leitast við að hafa áhrif á skólasystkin okkar og aðra félaga með því að fræða þau um skaðsemi tóbaksnautnar og hvetja þau til þess að forðast reykingar — Við viljum vinna á móti öllum hugmyndum um að reykingar séu „fínar" eða álitsaukandi og stuðla að því að algert tóbaksbindindi verði ríkjandi." Mlkill einhugur og áhugi ríkti á tulltrúafundi sjöttu- bekkinga 7. apríl. Þarna er verið að samþykkja að skora á alla 12 ára nemendur að fylkja sér um tobaksbindindi Breiðholtsskóli ríður á vaðið Starfið sem hreyfing 6-bekkinga gegn reykingum spratt upp af var hafið i Breiðholtsskóla undir lok síðasta árs og mótaðist þar að verulegu leyti. Haldin voru námskeið um skaðsemi reykinga í öllum fimm deildum 6 bekkjar undir stjórn skólastjórans. Hverri deild var skipt i 4 starfshópa sem höfðu hver sitt afmarkaða verkefni. Hóparnir kynntu vinnu sína og niður- stöður fyrir bekkjarsystkinum sínum að viðstöddum kennara bekkjarins og skólastjóra. Seinna hélt hver deild sérstakan kynningar- og fræðslufund ,,á sal" fyrir stóran hóp af 9—11 ára nemendum skólans Fluttu sjöttu-bekkingar sköru- lega dagskrá í máli og myndum og gestir sem boðnir voru á fundina fluttu ávörp. Voru það auk framkvæmda- stjóra Krabbameinsfélagsins hinir landskunnu íþróttamenn Arnþrúður Karlsdóttir, Guðmundur Gíslason og Valdimar Örnólfsson í fréttum sjónvarpsins voru sýnd nokkur atriði frá fyrsta fundinum. Vakti sá þáttur mikla athygli og umtal. Voru menn sammála um að þarna hefði ver- ið farið inn á braut sem gæti leitt til batnandi árangurs í baráttunni gegn reykingatískunni

x

Takmark - Lítið fréttabréf um heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Takmark - Lítið fréttabréf um heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/276

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.