Þjóðviljinn - 30.05.1954, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 30.05.1954, Blaðsíða 1
Sunnutlagrur 30. maí 1954 19. árgangur — 120. töíublað Mrm'ugur ésðiMmn- hefur hoðué ráðstmfanir nmmmhmimmm fma ern mhm Annað kvöld á miðnætti ganga úr gildi samningar 20—30 stéttarféíaga, Samningaumleitamr hafa farið fram en árangurs- laust og að undanskildum 4 félögum hafa verkalýðsfélögin ekki boðað verkfaíl. Verkalýðsíélögin sögðu samningum sínum upp fyrst og fremst til að fá uppsagnarékvæðum samn- inganna breytt í einn mánuð. Er það sjálfsögð og ó- hjákvæmileg ráðstöfun til varnar, ef stjórnarvöld- in hygðust skella nýjum byrðum á herðar almenn- ings, með því að leysa erfiðleika togaraútgerðarinn- ar á kostnað alþýðu manna. Er því þeim mun furðu- legri synjun atvinnurekenda á þessari eðlilegu á- kvæðisbreytingu þar sem ekki er um kauphækkun að ræða. Þjóðviljinn átti tal um þetta mál við Eðvarð Sigurðsson rit- ara Dagsbrunar og skýrði hann svo frá: Milli Dagsbrúnar og Vinnu- veitendasambands íslands hafa farið fram nokkuð stöðugar við- ræður um málið. Hófust þær 18. þ. m. Ræddi stjórn Dagsbrúnar þá við framkvæmdanefnd Vinnu- veitendasambandsins og með henni fulltrúar frá Reykjavíkur- bæ og Vinnumálasambandi sam- vinnufélaganna. Hvorugur aðilinn hefur lýst yfir neinum aðgerðum Á þessum fundi var ákveðið að setja undirnefndir í málið og síðan hafa farið fram nokkuð stöðugar umræður um málið milli undirnefndanna, en í þeim eru 3 menn frá hvorum aðila. Síðasti fundur var haldinn s. 1. miðvikudagskvöld. Þá sögðu at- vinnurekendur að þeir myndu halda fund í sínum hópi á föstu- dag. Viðræðufundur milli nefnd- anna var boðaður kl. 11 f. h. í gær. — Hvorugur aðili hcfur lýst yfir neinum aðgcrðum. 7 daga fyrirvara þarf hvort heldur er til verkbanns eða verkfalls. Samstaða 21 stéttarfélags Fundur sá var haldinn 18. maí. Þar voru mættir, auk félaganna í Fulltrúaráði verkalýðsfélag- anna, fulltrúar frá þeim félög- um sem utan þess eru svo sem Iðju, Trésmiðafélagi Reykjavík- ur, Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur, svo og Hlíf og Iðju í Hafnarfirði. Samtals voru mættir fulltrúar frá 21 stéttarfélagi. Verkalýðsféiögin kjósa samstarfsnefnd Á þessum fundi var rætt sam- starf milli félaganna og sam- þykkt að fela ákveðnum hópi félaga að tilnefna 1 mann í samstarfsnefnd. Ætlunin með þessu var ekki sú að sett yrði á laggimar sameiginleg samn- inganefnd, heldur einungis að félögin hefðu samráð sin í milli um gang samninganna. Dagsbrún og Vinnuveit- endasambandið eigast við Samstarfsnefnd þessi hefur tekið til starfa. Með fullu sam- ráði félaganna hefur þetta geng- ið þannig til, að einstök félög hafa rætt við sina samningsað- ila um allar sérkröfur, en við- ræður um uppsagnarfrestinn hafa að mestu farið fram milli Dagsbrúnar og Vinnuveitenda- sambands fslands, svo og Iðju og Félags ísl. iðnrekenda og er Prentaraverkfal hefsl aðra nótt haíi ekki náSst samkomulag Hið íslenzka prentarafélag hefur boðað verkfall frá og með miðnætti aðra nótt, ha f i samningar þá ekki tekizt. Viðræðnr milli deiluaðtla fóru fram í fyrrakvöld en án árangurs. Magnús H. Jónsson, for- maður prentarafélagsins tjáði Þjóðviljanum í gær- morgun að engar viðræður hefðu verið ákveðnar milli deiluaðilanna — og verði ekkert samkomulag gert á því terkfall prentara að hef jast aðra nótt. gengið að því vísu að ef samn- ingar takist milli þessara aðila um uppsagnarfrestinn muni það einnig verða gildaridi fyrir öll félögin. Fjögur félög hafa boðað verkfall Undanskildir eru þó þessu sjómannasamningarnir, svo og bókagerðarfélögin: prentarar, bókbindarar og prentmyndasmið- ir, sem ekki óskuðu að vera með í þessu samstarfi. Hafa þessi þrjú siðastnefndu félög, svo og félag húsgagnasmiða boðað verk- fall cr sanmingarnir ganga úr gildi á miðnætti aðfaranótt þriðjudags. Síðustn fréttir Þjóðviljinn náði tali af Eðvarð Sigurðssyni ritara Dagsbrúnar eftir hádegið í gær. Skýrði hann frá að á fundi fulltrúa Dagsbrúnar og Vinnuveitendasambands- ins, sem hófst kl. 11 f.h., hafi verið lagðar fram tillögur um lausn deilunnar um uppsagnarákvæðið og yrðu þær ræddar á fundi með verkalýðsfélögunum er hæfist kl. 5, þ.e. eftir að blaðið var komið í pressu. Eru taldar sæmilegar horfur á að samkomulag náist um uppsagnar- ákvæðið. En þótt samkomulag náist um uppsagnar- ákvæði er eftir að semja uni einstakar kröfur félaganna. Fylkingin og hvítasunnan Æskulýðsfylkingin hugsar sér til hreyfings um hvita- sunnuna. Ekki hefur þó enn verið afráðið hvað til bragðs s'kuli taka; en annaðhvort verð- ur farið í ferðalag út á land eða efnt til samkomu með fjöl- breyttri dagskrá í skíðaskálan- um. Hvað Ieggja félagarnir til ? Zatopek fær ekki aS koma til París Tékkneskir íþróttamenn, sem komnir voru til Brússels á leið til Parísar þar sem þeir áttu að taka þátt í keppni, ákváðu í gær að fara ekki lengra. Franska utanríkisráðu- neytið hafði tilkynnt, að það myndi ekki veita einum þeirra, hinum heimsfræga hlaupara Emil Zatopek, landvistarlej'fi. Virkisverjendum berst liðsauki Vélbúin frönsk hersveit brauzt í gær gegnum umsáturshring sjálfstæðishersins við virkið Yenphu, sem hann hefur setið um í rúman hálfan mánuð. Umsátursliðið er aðeins um 200 m frá virkinu. Atvinnurekendur blésu í herlúðra — og verkalýðs- félögin þjöppuðu sér saman Út af hinni eðlilegu uppsögn verkalýðsfélaganna hafa at- vinnurekendur blásið í herlúðra og hópað sig saman. Sameigin- legur fundur atvinnurekenda um þetta mál leiddi til þéss að fé- lögin hafa einnig tekið upp sam- starf sín á milli. Fyrir forgöngu stjórnar FuIItrúaráðs verkalýðs- félaganna var boðaður fundur með fulltrúum allra þeirra fé- laga er sagt höfðu upp samning- um. Islenzk alþýða hefur lagt f ram hálfa mifljón króna í Sigfúsarsjóð Þessi arangur er sönnun þess að hœgf er að ná markinu* ein milijón fyrir 17. júni — e/ allir leggjasf á eiff íslenzk alþýða hefur enn einu sinni sýnt að hun er þess megnug að lyfia Grettistökum. Hún hefur ekki brugðizt því trausíi sem stjórn Sósíal- istaílokksins cg stjóni Sigfúsarsjóos ber til hennar. í dag hefur náðst sá glæsiiegi árangur, að háifnað er að markinu, sem sett var: Hálf milljón króna hefur safnazt í Sig- fúsarsjóð. Hér hafa margir lagt fram sinn skerf, og sú staðreynd. að fyrri helmingur Ieiðarinn- ar er þegar að baki, sannar að hægt er að komast alla Ieið. Enginn má láta sitt eftir Iiggja, því mikils átaks er þörf og ekki óeðlilegt þó enn meira starf þyrfti til að ná jafngóðum árangri síðari hluta söfnunarirmar. Það mun mörgum fagnað- arefni að komið skuli hálfa leið að marki. Látum öskur bu r geisablaðanna um /,,fs- landsmet“ og „heimsmet“ i söfnun verða að eggjunarorð- um. Hefjurn síðari hluta söfn- unarinnar ótrauðir og sigur- visstr, iátum sjást þegar næstu daga að haldið verður áfrain af fullum krafti. Minn- umst Sigfúsar Sigurhjartar- sonar með framlögum í sjóð hans, hver eftir sinni getu. 504.000 1 grær bárust Slgfúsarsjóði 82 þús- und krónur og er söfnunln þá komin upp í 504.000 kr. Stórmyndarleg gjöf kom frá Kvenféíagi sósíalista, Akureyri, 2000 kr. Fré Félagi róttækra stúd- enta komu 5000 kr. og það með að félagið ætlaði ekki að láta þar við sitja. Söfnun Fylkingarlnna r komst í gær upp í 100 þús. kr. millj. millj. |- % millj. 1 millj.l ■^504.000 kr.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.