Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1987, Síða 35
LAUGARDAGUR 24. OKTÖBER 1987.
47
éyz.7t.znqin er s\ro -mikíl i
OjálfsioÉSisf'LokTíTULm. að
þáfr víLja. aUir* ver&CL forsetat:
Finnurðu
átta breytingar?
66
Þessar tvær myndir sýnast í fljótu bragöi eins. En á
neöri myndinni hafa falliö burt hlutar af myndinni eða
þeir breyst, alls á átta stööum. Þaö er misjafnlega erfitt að
finna þessar breytingar en ef fjölskyldan sameinast um að
leysa þetta trúum við því aö allt komi þetta aö lokum.
Merkið meö hring eöa krossi þar sem breytingarnar eru
og sendið okkur neðri myndina. Skilafrestur er tíu dagar.
Að þeim tíma liðnum drögum við úr réttum lausnum og
veitum þrenn verðlaun, öll frá versluninni Japis, Brautar-
holti 2. Þau eru Supertech ferðatæki (verðmæti 3.860,-), LED
útvarpsvekjari (verðmæti 2.350,-) og Supertech útvarpstæki
(verðmæti 1.365,-)
í öðru helgarblaði héðan í frá birtast nöfn hinna heppnu
en ný þraut kemur í næsta helgarblaði.
Góða skemmtun!
Merkið umslagið:
„Átta breytingar - 66, c/o DV, pósthólf5380,125 Reykjavík.
Verðlaunahafar reyndust vera fyrir 64. gátu Sigrún
Adólfsdóttir, Suðurvör 2, 240 Grindavík (ferðatæki), Jó-
hanna Óskarsdóttir, Knarrarbergi 1, 815 Þorlákshöfn
(útvarpsvekjari), Matthildur M. Kristjánsdóttir, Þingbergi,
pósthólf 76, 802 Selfoss (útvarpstæki). Vinningarnir verða
sendir heim.
NAFN ........
HEIMILISFANG
PÚSTNÚMER ..
Banakringlur
Nú er mjög í tísku að hringja í
íjölmiðlabyltinguna til að fá lagða
fyrir sig spurningu sem síöan á að
svara strax og fá verðlaun fyrir.
Hvað hét faðir Egils Skallagríms-
sonar? er kannski spurt á öldum
ljósvakans og um leið og stjómand-
inn er búinn að sleppa orðinu
hringir hálf þjóðin og segir Hall-
veig Fróðadóttir.
Ekki alveg rétt en munaði samt
litlu, þakka þér fyrir að hringja, og
svona gengur þetta þangað til ein-
hver slysast á rétta svarið og fær
senda hljómplötu heim til sín.
Ég hringdi í svona þátt um daginn
og ætlaði að tilkynna byltingunni
að lagiö Papa don’t preach með
Madonnu héti I love you so much
that I could die for you twice og
væri með hljómsveit Glens heitins
Millers, þaö var nefnilega búið að
heita hverjum þeim sem kæmi með
svar tíu hamborgurum með
frönskum kartöflum, kokkteilsósu
og söluskatti.
En sem dæmi um vinsældir
svona þátta þá náði ég ekki sam-
bandi með svarið um Glen heitinn
Miller fyrr en komið var fram í
næsta þátt og farið að spyrja hverj-
ir hefðu verið keisarar í Kína á
sautjándu öld.
Fyrir utan hvað svona þættir eru
fróölegir fyrir allt venjulegt fólk
geta þeir sem eru fljótir að hringja
komið sér upþ álitlegu plötu- og
hamborgarasafni.
Stjórnin
Og nú hafa stjórnvöld tekið fjöl-
miðlabyltinguna sér til fyrirmynd-
ar en þau efndu um daginn til
spurningaleiks um tíu prósent
söluskattinn, fimmtán prósent
varð það víst á að verða á undan
póstþjónustunni að koma innihaldi
bréfsins til skila.
En það kom fleira fram á fjöl-
miðlabyltingarfyrirspurnafundin-
um en þetta, þar var upplýst að hér
eftir þyrfti þrautpíndur verkalýð-
urinn ekki að fjárfesta í bönkum,
húseignum og Ustaverkum heldur
á hvorki meira né minna en að
leyfa honum að kaupa skuldirnar
við útlönd.
Oft hef ég skihð harla lítið í svo-
köUuðum efnahagsaðgeröum ríkis-
stjómá en sjaldan eins og nú og er
það í rauninni slæmt því að þótt
það sé ekki nauðsynlegt gæti verið
gaman að því fyrir okkur sem
kaupum stundum kjöt í matinn að
vita hvaö eðlilegt er að verðmið-
amir séu margir á lærissneiðunum
svo framarlega sem við höfum efni
á að kaupa eitthvað annað en bana-
kringlur.
Vetur
En nú er vetur genginn í garð
með nýjum formanni Alþýðu-
bandalagsins og meiri saltaustri á
götur en áður hefur þekkst af því
að nagladekkin fara svo illa með
götur Reykjavíkur en eins og allir
vita er dýrt að malbika.
Ég er til dæmis þessa dagana að
reyna reikna út hvað það hafi kost-
að að malbika Breiðholtsbrautina
allan guðslangan daginn í sumar
og einnig hitt hver hafi stjómað því
að láta mála fallegar hvítar örvar
á brautina annan daginn og mal-
bika síðan yfir þær hinn.
Hefði ekki veriö nær að gera þetta
í öfugri röð?
Kveðja
Ben. Ax.
söluskattinn, tuttugu og fimm pró-
sent söluskattinn og fimm prósent,
tíu prósent, tuttugu prósent, þrjá-
tíu prósent og fimmtíu prósent
skattinn á bíla.
Þessir skattar eiga aö mati stjórn-
valda að koma sér ákaflega vel fyrir
launþega, ekki síst þá sem eru ný-
búnir að kaupa sér dýran bíl og
borða.
Auðvitað mótmælti formaður
launþega þessari skattheimtu af
því að það er alltaf gert og ríkis-
valdið svaraði fyrir sig og sagði að
það væri dónaskapur að lesa ann-
arra manna bréf, ekki sist ef
viðkomandi hefði þar að auki skrif-
að það, en formanninum okkar
Háaloft
Benédikt Axelsson