Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1987, Qupperneq 24
24
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1987.
Sérstæð sakamál
Ástsj úka
kennslu-
konan
Denise Potts.
Eleanor Chaucer með nemendum sínum.
Eleanor Chaucer var þrjátíu
og flögurra ára gömul kennslu-
kona. Hún varð ástfangin af
einum nemenda sinna, Chris
Bell, sem var aðeins fimmtán
ára. Með þeim tókust náin
kynni en þar kom að hann vildi
binda enda á samband sitt við
hana.
Eleanor gerði á síðustu
stundu tilraun til þess að koma
í veg fyrir að Chris sneri við
henni bakinu en það átti eftir
að hafa óvæntar afleiðingar fyr-
irhann.
Duldar tilfinningar opin-
beraðar
Eleanor Chaucer þurfti að
þola mikið hugarangur þegar
hún gerði sér grein fyrir því að
hún var orðin ástfangin af ein-
um nemenda sinna. Pilturinn,
sem vakti svo sterkar tilfrnn-
ingar hjá henni að hún gat vart
um annað hugsað en hann, var
aðeins fimmtán ára. Eftir nokk-
urn tíma þóttist hún fullviss um
að hún gæti ekki lengur barist
á móti þeim og þá ákvað hún
að láta allar venjur og siði lönd
og leið. Það var í janúar á síð-
astaári.
Eleanor beiö nú eftir tækifæri
til þess að ræða við unga mann-
inn. Dag einn, er hann var á
leið út úr skólagarðinum ásamt
vini sínum, Tim Pollins, gafst
henni svo tækifærið til þess. Er
Chris og Tim höfðu ræðst við
um stund kvöddust þeir og
Chris stóð einn á gangstéttinni
fyrir framan Burtonframhalds-
skólann á Englandi en þar
gerðust þessir atburðir.
Er Chris gekk fyrir næsta
hom beið Eleanor hans þar.
Það fyrsta, sem honum kom
til hugar þegar kennslukonan
veifaði til hans, var að hann
hefði gert eitthvað af sér. Hann
var hins vegar hlýðinn nem-
andi og þess vegna settist hann
strax upp í bíl hennar.
Sér tii mikillar undrunar fékk
Chris nú að heyra hve vel Elea-
nor félli við hann og hve mikið
hún dáðist að honum. Þá var
Chris enn ekki ljóst hvað fyrir
henni vakti og því sat hann
bara þögull og starði á hana.
En þegar hún hafði ekið hon-
um nær alla leið heim til hans
rann skyndilega upp fyrir hon-
um hvað um var að vera.
Eleanor Chaucer var ástfangin
afhonum.
Leynilegirfundir
í fyrstu vissi Chris ekki
hvemig hann átti að taka þessu.
Er hann hafði jafnað sig dálítið
varð hann hins vegar gripinn
af mikilli eftirvæntingu. Elea-
nor var ekki aðeins fullþroska
kona heldur var hún einnig
kennslukonan hans.
Enginn veit hve hrifm Elea-
nor var af Chris í upphafi eða
hvort þá vakti fyrir henni að
stofna til kynferðislegs sam-
bands við hann. Þau fóru aftur
á móti að hittast á laun og eftir
allmarga fundi fór svo að þau
fóru saman upp í rúm. Ástar-
fundir þeirra urðu svo eins tíðir
og tækifæri leyfðu og alltaf hitt-
ust þau heima hjá Eleanor.
Það sem Eleanor vissi
ekki...
Þau héldu áfram að hittast á
meðan skólinn var lokaður um
sumarið og stöku sinnum kom
það fyrir að Eleanor tók Chris
með sér í dagsferðir. Þá fóru
þau á baðströnd sem var í rúm-
lega fimmtán kílómetra fjar-
lægð en þó fannst þeim þau
aldrei geta veriö örugg með sig.
Sú hætta var alltaf fy rir hendi
að þau hittu einhvern nemend-
anna frá skólanum og það gæti
að minnsta kosti haft þær af-
leiðingar að Elenaor lenti í
vandræðum.
Sem betur fór fyrir þau bæði
sá þó enginn til þeirra. Eleanor
Chaucer hafði þó rangt fyrir sér
er hún hélt að enginn vissi um
samband hennar við Chris.
Besti vinur hans, Tim Pollins,
fékk nefnilega alltaf nákvæmar
frásagnir af því sem gerðist á
ástarfundunum. Og stundum
fannst honum eftirvæntingin
ná næstum jafnsterkum tökum
á sér og væri hann í sporum
Chris.
Eleanor hélt áfram að sýna
Chris ást og umhyggju. Og þar
kom að hún fór að líta svo á að
þau væru sköpuð hvort fyrir
annað. Nokkru síðar hafði hún
svo orð á þvi við Chris að þau
ættu að flytjast á brott frá bæn-
um sem þau bjuggu í, Dorchest-
er, þegar hann yrði eldri.
Þá var Eleanor orðin viss um
að hún hefði unnið ástir Chris
og að hann elskaöi hana eins
mikið og hún hann. En þar
hafði hún rangt fyrir sér.
Áhyggjur
Þau héldu áfram að hittast
eftir að skólinn byrjaði í fyrra-
haust. Á ytra borðinu var ekki
annað að sjá en þau væru bæði
ánægð en Chris var þó kominn