Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1987, Blaðsíða 10
10
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1987.
Fjölmiðlar
Roy Marsden sem yfirkennarinn hr. Chips ásamt eiginkonunni, sem leikin er af fyrrverandi vinkonu James Bond, nemendum og skólastjóra í Brookfield. Myndin er úr nýjum mynda-
flokki sem sjónvarpiö sýnir á sunnudagskvöldum.
Roy Marsden reynir fyrir sér á nýjrnn vettvangi:
Verið þér sælir, hr. Chips, nefnist
sjónvarpsmyndailokkur í þremur
hlutum sem sjónvarpið hóf sýning-
ar á um siðustu helgi. Myndaflokk-
urinn er breskur og er handritið
byggt á samnefndri bók eftir met-
söluhöfundinn James Hilton sem
út kom árið 1934. Þess má geta að
islensk þýðing bókarinnar kom út
hér á landi árið 1940.
Áhorfendur hafa nú þegar séð
fyrsta þáttinn. Þar segir frá kenn-
ara nokkrum, hr. Chipping, ungum
og taugaóstyrkum, sem tekur að
sér kennslu í Brookfield skólanum.
Það byriaði ekki farsællega hjá
aumingja Chips, en það er mður-
nefni sem Chipping fær, og reynd-
ust nemendur hans vera óstýrilátir
og ekki beint á því að auðvelda
þessum nýja kennara starfið. Chips
gefst þó ekki auðveldlega upp. Sög-
una er hann reyndar að segja sem
gamall maður.
Kvænist á miðjum aldri
Chips nær aga í skólanum og
kennslan gengur vel. Hann er gerð-
ur að yfirkennara í skólanum en
það sem flestir hafa út á hann að
setja er að hann er ókvæntur. Árin
líöa og þegar Chips er á ferðalagi
nokkrum árum síöar kynnist hann
ungri blómarós, Katherine, og ekki
líður á löngu uns þau ganga í
hjónaband, ölium til undrunar.
Hún er aðeins 23ja ára en hann að
verða fimmtugur. Ekki gengur allt
samkvæmt óskum í einkalífinu og
Chips veit ekki oröið sitt ijúkandi
ráð. Sérstaklega virðist sambúð
ráðskonunnar frú Wickett og eigin-
konu yfirkennarans ganga stirð-
lega. En Ciiips elskar bæði konu
sína og starfið en það tvennt veldur
honum einmitt áhyggjum.
Ógæfan bankar á dyr hjá kennar-
anum með hörmulegum afleiðing-
um. Chips þarf þar fyrir utan að
berjast við ýmis öfl innan skólans.
Hann hefur þó unnið sér t-yggð
nemenda og er oröinn einn ástsæl-
asti kennari skólans.
Þessi myndaflokkur er hinn dæ-
migeröi breski myndaflokkur sem
gerist fyrir og eftir aldamótin.
Fyrri heimsstyrjöldin blandast inn
í söguþráðinn en sagan gerist á
árunum 1880-1915. Sögupersónan
er því komin á efri ár í síöasta hluta
myndaflokksins. En það má segja
að eftir margt erfitt starfið í skólan-
um, í fyrstu vegna nemenda en
síöar vegna starfsmanna í skólan-
um, þá standi Chips eftir í lokin
sem sigurvegarinn.
Góðir leikarar
Með hlutverk Chips i þáttum
þessum fer vel þekktur leikari hér
á landi. Sjálfur Roy Marsden sem
þekktastur er fyrir aö vera hinn
snjalli lögreglumaður Dalgliesh í
sakamálamyndaflokknum eftir
P.D. James. Roy Marsden er þekkt-
astur fyrir sjónvarpsleik en hann
hefur einnig tekið að sér viðameiri
hlutverk á sviði. í einkalífinu er
hann þó allt önnur persóna en í
sjónvarpi. Hann er sagður mikill
húmoristi sem hefur engan áhuga
á sakamálasögum, sem hann hefur
þó tengst mikið. Roy Marsden er
tvígiftur. Seinni kona hans, Polly,
er einnig leikari og eiga þau saman
tvo syni. Það má segja að leiklist
sé í ættinni því Roy byrjaði mjög
ungur aö leika og bróðir hans er
einnig leikari. Engum kæmi því á
óvart að synir hans fetuðu sömu
braut. Þessi breski leikari svíkur
Hr. Chips er orðinn gamall maður er myndaflokkurinn byrjar en i honum
segir hann ævisögu sina.
ekki áhorfendur sína frekar en
fyrri daginn.
Frú Wickett er ráðskonan á
skólaheimilinu og kemur mikið við
sögu í myndaflokknum. Með hlut-
verk hennar fer leikkonan Anne
Kristen. Hún er vel þekkt bresk
leikkona sem hefur leikið mörg
hlutverk í sjónvarpsmyndum.
Eiginkona Clúps í þáttunum er
leikin af Jill Meager. Hún hefur
einnig leikið í mörgum sjónvarps-
myndum og þáttum. Jill Meager
lék í James Bond myndinni Never
Say Never Again.
Metsöiuhöfundur
Höfundur bókarinnar, James
Hilton, fæddist árið 1900 í Leigh í
Lancaster en flutti síðar til London.
Fyrsta bók hans, Catherine Hers-
elf, kom út.árið 1917 og vakti hún
mikla athygli. Ein frægasta saga
hans, Goodbye Mr. Chips, kom út
árið 1934 og sagt er að James Hilton
hafi aöeins verið fjóra daga að
skrifa þá bók. Bókin varð feikivin-
sæl og skrifaði Hilton framhald
sem út kom árið 1938 og hét hún
To You, Mr. Chips.
Önnur fræg bók eftir James Hil-
ton er Lost Horizon sem út kom
árið 1933. Hún vann til verðlauna
og hefur margsinnis verið kvik-
mynduð. Lost Horizon kom út í
íslenskri þýðingú árið 1945. James
Hilton hefur skrifað tylft bóka og
hafa fimm þeirra komiö út í ís-
lenskri þýðingu, sú síðasta árið
1978, í leit að liðinni ævi. Síðustu
æviárin bjó James Hilton í Holly-
wood en hann skrifaði íjöldann
allan af handritum fyrir kvik-
myndir. Hann lést úr krabbameini
árið 1954.
-ELA