Tölvumál - 01.10.2004, Síða 42

Tölvumál - 01.10.2004, Síða 42
RSS vafri — hvað er það? RSS vafri - hvað er það? Einar H. Reynis Líklega hafa margir tekið eftir litlum appelsínugulum merkjum sem er að ftnna neðst á mörgum síðum á Netinu merkt með stöfunum XML. Þegar nánar er gáð er þetta fyrirbæri að fínna um allar jarðir og á ólíklegustu síðum og raunar er fjöldi vefsetra sem bjóða upp á XML, öðru nafni RSS, með ólíkindum mörg. Táknin eru lykillinn að gagnlegri þjónustu og segir lesandanum að hún sé til reiðu og þá er bara að smella á. RSS er flott tækni fyrir fréttaþyrsta, sem vilja skanna í hvelli allt það nýjasta. Skammstöfunin RSS Þjónustan er betur þekkt undir skamm- stöfuninni RSS sem þýðir Real Sirnple Syndication og er hugsuð til að auð- velda mjög að fylgjast með efni á Netinu og nota þannig það sem kallað er „push“ tækni, það er að efnið er sent til notandans frekar en að hann leiti það uppi. Með RSS-vafra er leikur einn að gera þetta og fylgjast með mörgum miðlurum og blogg- um í einu á sama stað í stað þess að verja miklum tíma í að hoppa á milli staða og skanna í sífellu allskonar afkima. Þar sem það eru bara fyrirsagnir og knappasti texti sem fer til notandans má fara vítt og breitt á augabragði. Það telst líka til tekna að RSS-vafrar sjá sjálfir um að sækja nýtt efni og eyða út því sem er úrelt og haldast þannig ferskir. Það sem blasir við notendum er að fyrirsagnir eru flokkaðar eftir áskriftum og ef smellt er á fyrirsögn sést annaðhvort aðeins meiri texti eða viðkomandi síða sem við á. RSS-vafrarnir Vafrarnir eru afskaplega margir og ólíkir en greinahöfundur brunaði í gegnum nokkra til að prófa. Eftir að hafa farið einn hring var ég sáttastur við SharpReader en hann er uppbyggður eins og póstforrit þar sem áskriftir og fjöldi ólesinna fyrirsagna eru til vinstri, og ef smellt er á eina til- tekna áskrift koma viðkomandi fyrirsagnir í glugga þar fyrir ofan og svo allur textinn fyrir viðkomandi fyrirsögn þar undir. SharpReader er á síðunni http://www.sharpreader.net/ en hann er enn sem komið er ókeypis en til að nota hann, og það gildir um fleiri, þarf svokall- að .Net Framework en nota má uppfærslu í Windows til að sækja það. Það þarf því að byrja á Windows uppfærslu og eftir það bæta inn SharpReader. í notkun hefur SharpReader líka þann eiginleika að birta lítinn glugga sem skýst augnablik á skjáinn ef nýtt efni kemur, ekki ólíkt því þegar einhver á vinalistan- um í MSN er að tengjast. Fyrir Mac OS X má benda á Net- NewsWire en útlitslega er vafrinn afar svipaður SharpReader. Heimasíðan fyrir þetta forrit er hér: http://ranchero.com/netnewswire/ en nota má vafrann í um það bil mánuð án gjalds en eftir það þarf að borga. Að finna síður og skró Ofantalin forrit innihalda fjöldan allan af stöðum en til að bæta inn áskriftum þarf að smella á XML-táknin og líma svo við- komandi slóða í Subscribe-glugga. Annars eru leiðirnar ntismunandi eftir vöfrum en þetta er enn sem komið er svolítil handa- vinna, að bæta inn áskrift. Fyrir þá sem eru sérstaklega áhugasam- ir um að fylgjast með íslensku efni er al- veg kjörið að skoða RSS mola. http://rss.molar.is/veitur.shtml og ein heimasíða Stjórnarráðsins hefur að geyma slóðir. http://efnisvaki.stjr.is/efnisvaki/rss Erlendis eru úrvalið alveg botnlaust. Allir helstu fréttamiðlar í UT hafa RSS- slóðir og bara leita uppi appelsínugulu XML-táknin. Reuters fréttir skera sig síð- an úr með því að hafa RSS inn á sjón- varpsefni. Einar H. Reynis, ritstjóri Tölvumála 42 Tölvumál

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.