Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1906, Síða 65

Eimreiðin - 01.09.1906, Síða 65
225 nánari íhugun geta samþykt þessar kröfur í öllum aðalatriðum. Vér fáum að minsta kosti ekki séð, hvað ætti að aftra þeim frá að gera það. Og það verður líka nokkur tími til að glöggva sig á málinu. Jafn víðtækar kröfur ná auðvitað ekki fram að ganga á hálfum mánuði. það verður að prófa þær í öllum einstökum atriðum, einnig sökum af- stöðu Danmerkur — t. d. til konungdómsins. En þær bregða upp réttu marki. Og leiðin að þessu marki virðist hvorki geta orðið löng eða þröng. f>ví fyr sem menn leggja út á hana, því meiri von er um að það takist, að ná markinu í sátt og samlyndi og von um sameiginlega framtíð fyrir bæði löndin«. »SOCIAL-DEMOKRATEN« (aðalblað jafnaðarmanna, méð rúmlega 52,000 kaupendur) flytur 3 ágætar greinar um stjórnar- málið (2., 3. og 4. ág.), þar sem skýrt er frá núverandi stjórnar- fari íslands, göllum þess og hvernig það sé undir komið. Pví miður verðum vér rúmsins vegna að láta oss nægja að tilfæra niðurlag annarrar greinarinnar. Pað hljóðar svo: »Hinar pólitisku kröfur íslendinga má í stuttu máli draga saman sem hér segir: 1. Þeir krefjast endurskoðunar á stöðulögunum (2.jan. 1871), þannig að réttarstaða íslands gagnvart Danmörku sé nánar ákveðin og á annan veg en nú, einkum með því, að hin sameiginlegu mál beggja landanna séu tiltekin og nefnd í lögunum, en öll önnur mál séu skoðuð sem sérmál íslands og heyri sem slík undir löggjafarvald alþingis. 2. í’eir heimta sjálfstætt ráðaneyti með ábyrgð fyrir alþingi, með t. d. 3 ráðgjöfum, er sé skipað af konungi með undirskrift forseta hins íslenzka ráðaneytis, en ekki forsætisráðherra Dana. Ef svo vill verkast heimta þeir, að fulltrúi fyrir framkvæmdarvaldið (landstjóri) sé skipaður á íslandi. 3. Þeir krefjast að fá fullan atkvæðisrétt við setning þessa nýja skipu- lags, og álíta því að skipa beri nefnd manna af Dönum og ís- lendingum til að undirbúa þau lagafyrirmæli, sem þessi nýja skipun krefur. 4. Þeir krefjast, að þeim 60,000 kr., sem árlega eru tilfærðar í fjárlögum Dana sem »tillag til íslands*, sé snúið í stofnfé og öll upphæðin útborguð landssjóði íslands, ef svo vill verkast með óuppsegjanlegum ríkisskuldabréfum. Hér við bætist, að því er minniblutann snertir, að menn heimta að hið núverandi alþingi sé rofið og stofnað til nýrra kosninga sam- kvæmt hinum nýju og frjálslegri kosningalögum. Jafnaðarmannaflokkurinn hér í Danmörku styður að sjálfsögðu þessar kröfur, sem allar miða að því, að ná meira pólitisku frelsi og meiru pólitisku sjálfstæði. Góð sambúð Dana og íslendinga getur að- eins komist á í skjóli pólitisks frelsis og pólitisks sjálfstæðis. Og hins vegar getur ísland því að eins komið upp og eflt hinar miklu atvinnu- 15

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.