Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1906, Page 41

Eimreiðin - 01.09.1906, Page 41
201 mannahöfn veturinn 1865—66, er P. G. dvaldi þar um tíma, og eftir að hann var heim kominn til íslands tileinkaði B. honum annað hefti í nefndu safni. Jónas Helgason kyntist honum og þá er hann dvaldi í Khöfn (1866), sem ekki var mjög lengi, og auðsýndi B. honum mikla góðvild. 1859 var hann skipaður söng-tilsjónarmaður við hina lærðu skóla, semínaríin og aðrar kenslustofnanir sem heyra undir kirkju- og kenslu- málastjórnina, og gegndi hann því embætti þangað til rétt skömmu fyrir andlát sitt með frábærri skyldurækni og mannúð. Organistastaða B. leiddi eðlilegatil þess að hann tók að fást við kirkju- sönginn og gerði hann það af hinni mestu ást og áhuga. Safnaði hann í eitt hinum dönsku kirkjulögum (Melodier til Salmebog til Kirke- og Husandagt, útg. 1852—53) og lét hann því safni fylgja ritgjörð >Um safnaðarsönginn« (Om Menighedssangen). Mörg af sálmalögum þeim, er hann sjálfur hefir samið, eru enn í mesta afhaldi, t. a. m. »Lær mig o Skov at visne glad,« »Tænk naar engang« (O blessuð stund), »Lyk- salig, lyksalig hver Sjæl,« »Dejlig er den Himmel blaa« o. fl. Hið þriðja og eflaust hið mikilfenglegasta verk B. er »Folkesange og Melodier, fædrelandske og fremmede, samlede og udsatte for Piano- forte1 (Safn af þjóðsöngum og sönglögum, ættjarðarlegum og útlend- um, tónsett fyrir klaver) 11 bindi alls, 1. útg. 1842—47, önnur útg. mikið aukin 1861—70. Er safn þetta árangur af margra ára óþreyt- andi elju og svo er það fjölskrúðugt af sönglögum bæði Norðurlanda þjóða og annarra þjóða, að engin þjóð í heimi á slíkt safn; það er alveg einstakt í sinni röð. í því safni eru og fáein íslenzk þjóðlög." Þess má geta að hinir frægu kompónistar Niels W, Gade og P. Heise voru lærisveinar B. — Gade, sem varð heimsfrægur maður, bar hina mestu virðingu fyrir B. og viðurkendi hann bæði sem mjög mik- ilsverðan lagsmið og f)»rirtaks söngfræðing, og er það því meira vert sem sumir hafa ekki látið hann njóta sannmælis. Það mun vera álit þeirra sem bezt bera skyn á þetta mál, að þó Danmörk hafi átt snjall- ari og mikilhæfari tónskáld, þá hafi hún ekki átt neinn smekknæmari og lærðari söngfræðing eða þann er sönglistinni hafi unnið meira gagn þegar á allt er litið, en B. B. var sístarfandi fram á elliár og eitt af því síðasta, er hann samdi, var æfisaga Weyse (1876). Heiður og frama hlaut hann marg- faldan. Þar á meðal var það, að háskólinn gerði hann að dr. philos. á gullbrullaupsdegi hans 6. maí 1878 og viðurkendi þar með sérstak- lega hinn mikla söng-lærdóm hans. Sem maður var Berggreen hið mesta göfugmenni, eins hreinn í lund og líferni eins og hann var í listinni, og hið mesta ljúfmenni í allri umgengni. Hann andaðist í heiðraðri elli 8. nóv. 1880 og var * Fyrsta hvötin til að B. byrjaði á því verki var frá F. P. J. Dahl, sem sjálfur hafði á ferðum sínum í Noregi safnað allmörgum norskum þjóðlögum. 2 Pau eru: »Ása gekk um stræti«, »Eikur sá ég að tvær saman stóðu«, »Ein- um unna ég manninum«, »Forðum tíð einn brjótur brands«, »Hér er komin Grýla á Gægishók, »Hér er kominn Hoffinn«, »Hrafninn flýgur um aftaninn«, »Ólafur reið með björgum fram«.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.