Mjölnir - 06.12.1913, Page 2
MJOLNIR.
2
Avarp til Islendinga
frá Sjálfstœðisflokknum.
Hjer fer á eptir ávarp það, er Sjálfstæðismenn hafa sent út til þjóðarinnar, eða aðalatriðin úr því. Er von-
andi að allir, er sönnu sjálfstæði íslands eru unnandi, geti tekið höndum saman um að vinna af alliug að því,
að við kosningar þær til alþingis, er fram eiga að fara í aprílmánuði næstkomandi, fái þeir einir umboð kjós-
enda til að mæta á löggjafarsamkomu þjóðarinnar, er skuldbinda sig til þess að fylgja þessaii stefnu svikalaust
í öllum greinum. Þá er fyrst um sinn sjeð svo fyrir vorum hag, sem frekast verður ákosið.
,»Vjer vitum, eins og nú er komið inálum vorum, að enginn ágreiningur er nú eða getur verið um stjórnmála-
stefnu sjálfstæðismanna, hvort sem um sambandsmálið eða önnur sjálfstæðismál þjóðarinnar ræðir, en viljum þó
drepa á nokkur atriði, sem vjer teljum að hljóti að verða á stefnuskrá allra sjálfstæðismanna við kosningar þær,
er nú fara í hönd.
1. Sambandsmálið: Vjer teljum það nú komið berlega í ljós, að árangurslaust sje með öllu að haldið sje
áfram samningatilraunum við Dani um Sambandsmálið. Viljum því eigi að haldið sje áfram slíkum tilraunum
af hálfu íslendinga. En verði málinu hreyft, — og því verður hreyft, ef Sambandsflokkurinn, Heimastjórnarflokk-
urinn eða aðrir Uppkastsmenn verða í meiri hluta — viljum vjer eigi að þjóðin sætti sig við það, er skemmra
fer en frumvarp rrteiri hlutans á alþingi 1909, sem byggðist á Þingvallafundarsamþykktinni 1907.
2. Sijórnarskrármálið. Sjálfstæðismenn hafa unnið að því utan þings og innan, að bráðnauðsynlegar og rjett-
mætar breytingar fengjust á stjórnarskrá vorri, og er því máli nú svo langt komið, að síðasta alþingi hefir sam-
þykkt stjórnarskrárbreytingarlög
Enda þótt ágreiningur geti að sjálfsögðu verið um einstök atriði þessara breytinga, þá teljum vjer þó fengn-
ar með þeim svo miklar rjettarbætur, að eigi beri að tefla málinu enn f tvísýnu, sérstaklega þar sem svo margt
annað af bráðnauðsynlegum umbótum bíður úrlausnar og þarf á öllum tíma og kröptum þings og þjóðar að
halda, óskiptum. Teljum vjer því sjálfsagt, að stjórnarskrárfrumvarp síðasta þings verði samþykt óbreytt á
aukaþinginu.
3. Fjáihags- og atvinnumál teljum vjer vera þau mál, sem komandi þingum beri að leggja aðaláherzluna á.
a) Samgöngumál. \ þeim málum teljum vjer sjálfsagt að halda áfram stefnu þeirri, er síðasta alþingi aðhyltist,
að koma öllum samgöngum í hendur íslendinga, og viljum því, að löggjafarvaldið vinni að því að gera innlendar
siglingar frá landinu og að, svo og með ströndum fram, svo sem þörf er á og það sjer sjer fært.
b) Verzlun landsins—sem og aðra atvinnuvegi —viljum vjer að komandi þing leggi áherzlu á að gera innlenda:
1) með bæuum samgöngum;
2) með bætttu bankafyrirkomulagi, sem fari í þá átt að útvega verzlun landsins nægilegt og eðlilegt veltufje
í innlendum bönkum í landinu sjálfu og þannig fyrirkomið, að allir hlutar landsins geti haft not af;
3) með því að bæta og efla lánstraust áreiðanlegra, innlendra verzlana.
c. Landbúnað og jiskiveiðar viljum vjer að löggjafarvaldið láti sjer annt um að styðja og efla, ekki sízt með því
að skapa afurðunum betri og greiðari markað.
4. Hag verkamanna og húsmanna viljum vjer efla og bæta kjör þeirra stjetta með endurskoðun á löggjöfinni.
5. Það teljum vjer grundvöll undir öllu heilbrigðu stjórnarfari í landinu, að heimtuð sje fullkomin ráðvendni
og rjettlæti af öllum þeim, er með umboð þjóðarinnar fara, embættismönnum sem öðrum, og fullum lagajöfn-
uði sje haldið uppi fyrir æðri sem lægri. Að því viljum vjer vinna.
í fjármálum viljum vjer að sýnd sje gætni og aukin sem minst á komandi árum önnur útgjöld en þau, sem
miða til bóta og eflingar atvinnuvegunum. —
Leiðir þær, sem hjer eru nefndar, teljum vjer liggja allar að takmarki vor Sjálfstæðismanna: fullu efnalegu
og stjórnmálalegu sjálfstæÐi íslands, og i samræmi við stefnu vora viljum vjer einnig vinna að sjalf-
stæði einstaklinga og hjeraða í öllum greinum.
Jafnframt því að framfylgja ötullega sjálfstæðismálunum, hlýtur hver sjálfstæðismaður að veita ákveðna and-
stöðu hverri þeirri stjórn, þeim flokki og þeim einstökum þingmannaefnum, sem eigi vilja ganga hiklaust braut-
ina með oss í aðalmálum vorum og stefna að marki voru, og þá auðvitað núverandi stjórn, sem berlega hefir
sýnt sig andvíga sjálfstæðismálum þjónarinnar yfirleitt, enda sama sem ekkert hugkvæmst í landsmálum, sem
alþingi hefir getað aðhyllst eða talið þjóðinni horfa til viðreisnar.
Vjer viljum ennfremur, að þegar í stað verði efnt tii ýtarlegrar rannsóknar á þessum atriðum:
Hvort og þá hvernig breyta megi umboðsstjóm og dómaskipun landsins í annað eða betra horf en nú er og
til sparnaðar; og komi þá jafnframt til rannsóknar launakjör embœttismanna yfirleitt og afnám eftirlauna. Ennfrem-
ur hvernig framkvæma megi aðskilnað ríkis og kirkju.
Auk þess viljum vjer að alþingi geri ráðstafanir til þess að gera landið og þjóðina kunnuga öðrum þjóðum,
t. d. með því að gefa út á aðaltungumálum heimsins fræðandi rit um land og þjóð, sjá um að ritað sje um
landið í erlend blöð o. s. frv.
Að Iokum viljum vjer taka það fram, að vjer væntum þess, að þjóðin sje oss samdóina um það, að eigi
sjeu þeir ólíklegri til að vilja yfirleitt vinna að viðreisn þjóðarinnar í öllum greinum, sem sýnt hafa það, að
þeir öðrum fremur bera sjálfstæðismál hennar fyrir brjósti.
Vinnum nú við kosningarnar með eindrægni og ötulleik að sameiginlegu markmiði allra sjálfstæðismanna:
fullu sjálfstæði íslands í efnahag og stjórnmálum.
Eins og menn geta sjeð af ávarpi þessu, kémur fram í því stillileg en eindregin sjálfstæðisstefna í öllum mál-
um.—Þetta er að vísu eigi neitt nýtt um stefnu Sjálfstæðismanna. Stefna þeirra er æ hin sama Hinsvegar haía
verið gerðar allsvæsnar árásir á flokkinn af fjandmönnum sjálfstæðisins og er því eigi úr vegi að minna menn
á, hver stefna vor er í raun og veru. Sjálfstæðismönnum hefir verið brugðið um „rauðhöfðaskaþ" og „skýja-
glópsku" og fleira af líku tagi, en hjer gefur á að sjá: Stefnu þeirra skýrt orðaða. — Segi svo hver eins og
honum finnst, hvort slík brigsl sjeu á rökum byggð. —
Hefjist nú handa ullir góðir íslehdingar og vinnið einhuga að sigri stillilegrar sjálfstœðisslefnu í öllum landsmálum,
bœði í orði og á borði!— Þá vinnið þjer þjóðinni þarft verk! — Að þessu viljum vjer vinna! —
Af Eyrinni.
Skáldjöfurinn Matthías kom heim
nú nýlega eptir nokkuð langa dvöl í
»höfuðborginni«. — Hafði hann haft
þar dvöl vegna útgáfu á einhverjum
af riturn sínum, að sögn. Geta menn
þá væntanlega bráðlega átt von á að
sjá þar á meðaí eitthvað nýtt eptir
hinn síunga skáldöldung. — Svo er
að sjá, sem Matthías yngist um hálfa
öld við hverja för sína til Rvíkur. Er
þess getið í sunnanblöðum, að hann
hafi verið hrókur alls fagnaðar í Vík-
inni meðan hann stóð við, enda var
þar vel til hans gert, heiðurssamsæti
haldið og við hann leikið að makleg-
leikum. — Gæti það verið bending
til Aknreyrarbúa, er njóta samvista
Beztu jólagjafir
eru góðar bækur sem fást nú í bóka-
verzlun SIG. SIGURÐSSONAR, Akur-
eyri. — Meira úrval en nokkru sinni
fyr, því 50—60 nýjar íslenzkar bækur
hafa bæzt við á árinu. Einnig fæst
mikið úrval af jóla- og nýárskortum,
ásamt fjölda af barna-myndabókum,
glansmyndum, bréfamöppum skraut-
bréfaefnum, póstkortaalbum. Mynd af
Örœfajökli, eftir málverki Ásgríms
málara, einnig margsk. aðrar myndir.
við hann, að gera elli þessa okkar
mesta manns sem gleðiríkasta.
Poeta.
Stúdentafjelagið hjelt fund á fimtu-
dagskvöldið. Þar flutti Valdimar læknir
Steffensen fyrirlestur um Geislaefni
(Radíum). Var það erindi að sögn
fróðlegt og vel flutt, enda gerður að
góður rómur. — Fleira var þar til
fróðleiks og gleðskapar. —
Fyrirlestur hjelt Guðmundur skáld
frá Sandi í leikhúsinu s. t. mánu-
dagskvöld, er hann nefndi »Gláms-
augun«. Efni hans var: »apturgöngur
f sögnum og ritum«. Gat Guðm. þess
í upphafi að hann teldi sig eigi hafa
neitt «Evangelitlm« að færa fólkinu.
Um það vorum vjer honum samdóma —
er hann hafði lokið máli sínu. — En
skörulega mælti hann að vanda. Og
vel var honum tekið. —
Fiskvart allvel hefir orðið hjer úti
á firðinum nú undaníarið. Hafa margir
fengið allgóðan afla af vænum fiski.
Er það óvanalegt um þennan tfma
árs. —
Sildarafli hefir verið nokkur hjer
á »Poilinum« sfðustu dagana. Er það
nær eingöngu smásíld er aflast. —
Kemur hún í góðar þarfir því ella
hefðu menn að líkindum mist af fisk-
afla út með firði fyrir beituskort. Sjó-
menn eru vongóðir um að stærri sfld-
ar sje von sfðar. Væri það gleðiefni
öllum að þeim yrði að vonum sfnum
um þetta. —
Af djúpi og dölum.
E/s »Kong Helge« hlekktist alvar-
lega á í sfðustu ferð sinni héðan til
útlanda. Var hann staddur í »Norður-
sjónum«, er hann tók á sig sjó svo
gelpilegan, að honum varð mjög til
skaða Tók sá út bæði skipherra og
1. stýrimann og að auk einn háseta.
Er þetta því sorglegra slys, er báðir
þessir yfirmenn skipsins eru hjer að
góðu einu kunnir. Um hina, er lægra
eru settir f þjóðfjelagsstiganum, getur
síður f sögum, og er þó slfkt slys
sem þetta eigi sfður sviplegt er það
hittir þá. þvf — »Kalt verður þeim,
er vaða íslands ál.«
E/s »Ingolf« (skiph, J. Júliníusson)
kom af djúpi 1. þ. m , hlaðinn varn-
ingi til kaupmanna hjer. — Hann fór
til Steingrlmsfjarðar.
Lárus H. Bjarnason og með hon-
um rúmlega 140 Heimastjórnarmenn
hafa gengið úr fjelaginu »Fram« og
stolnað nýtt fjelag, er neínist »Þjóð-
reisn«.
Tildrög þessa er misklfð við flokk
Hannesar Hafsteins, Sambands&oV.k-
inn. (Símfrjett.)