Magni - 28.08.1912, Side 4

Magni - 28.08.1912, Side 4
4 Magni ágizkan, að ekki mundi nokkur þing- maður ljást til að greiða slíkri lög- leysu atkvæði, hvað þá heldur heill afarvoldugur meiri hluti, prýddur hin- um veglegustu nöfnum á þingi. Henni fylgdi samt, þegar til kom, allur heimanstjórnarflokkurinn, eins og hann leggur sig, ef ekki meira að segja einhverir flokksleysingjar að auki. Hinum megin, réttarins megin og sannleiksins, voru að eins sjálfstæðis- menn, og þó 4 flokkleysingjar að auki, 14 atkvæði alls. Það var vitanlega flokksofstækin, sem skynsemisaugun steinblindaði á hinum, og svo almættisvitundin þeirra megin. Lögleysufóðranir þeirra munu naum- ast hafa þar nokkurri ögn um valdið, hvorki hins mikla, undramálsnjalla og afarrökfima yfirlögvitrings, né smærri spámannanna. Eða hvernig átti nokkur maður með hálfri skynsemi að renna niður þeim ósköpum, að löglegt væri að bæta við upptalninguna á lögmæltum ógildingarástæðum kjörseðla þeim og þeim ólögmæltum kjörvítum, er aldrei höfðu nefnd verið á nokkuru kjörþingi né af nokkurum lögvitring nokkurs- staðar á landinu frá því er lögin gengu fyrst í gildi, svo sem mo gbroti á seðlum, eða þá hinni hivitur- legu skilgreining hávitringsins háleita og fatta á þvi, hvort kjörseðlum hefði verið mótmælt eða ekki. Þeirri lok- leysu rendi enginn maður niður, held- ur hlógu allir dátt að. Að taka gilda viðbótina þá við hina greinilegu upp- tölu á ógildingarástæðunum hefði ver- ið sama sem að bæta aftan við glögt upptaldar tukthússakir skáldaðri runu, skáldaðri þulu alveg marklausra sak- argifta og dæma eftir henni, er hin lögmæltu þraut. Eftirtektarverð var karlmenska þess- ara 3 þingmanna, er tjáðu sig »greiða ekki atkvæði«. Þeir, sem kunnugir eru skaplyndi hins virðulega forseta í neðri deild (M. A.), mannsins, sem öll mál vill sætta og alla menn slíkt hið sama — í deildinni, sem hann ræður fyrir, var fjöldi manna sinn á hvoru máli, og hvað var þá snjallara en að veia með báðum eða hvorugum flokkanna, til að styggja hvorugan. Um þá Kr. J. og Sigurð í Vigur var auðráðið, að þeir voru í hjarta sínu með minni hlutanum. Hvernig gátu þeir, jafn-greindir menn, verið nema þar? En meiri hlutanum þókn- uðust þeir með því að tjá sig með hvorugum og láta þann veg t e 1 j a sig með meiri hlutanum, fyllandi þann veg þeirra flokk, en þurfa ekki að segja það berum orðum, þurfa ekki að s e g j a það sem var bandvitlaust. Ferðakostnaðnr alþingismanna. Samkvæmt einum lögunum frá hinu nýlokna þinga á hann að verða eftir- leiðis sem hér segir, í kr., aftan við hvert kjördæmi, svo og í Danmörku: Suður-Múlas...................180,00 Norður-Múlas..................190,00 Seyðisfjörður.................110,00 Norður-Þingeyjars. . . . 170,00 Suður-Þingeyjars. . . . 160,00 Eyjafjarðars..................130,00 Akureyri.......................80,00 Skagafjarðars.................120,00 Húnavatnss....................120,00 Strandas......................120,00 Norður-ísafjarðars. . . . 80,00 ísafjörður.................... 50,00 Vestur-ísafjarðars. . . . 60,00 Barðastrandas..................70,00 Snæfellsness...................60,00 Dalas..........................60,00 Mýrasýslu......................50,00 Borgarfjarðars.................50,00 Gullbringu og Kjósars. . 20,00 Arness.........................70,00 Rangárvallas...................90,00 Vestur-Skaftafellss. . . . 190,00 Austur-Skaftafellss. . . . 340,00 Vestfnanneyjar .... 20,00 Danmörku......................190,00 Þeim kvað segjast svo frá, stórvirðu- legum þingmönnum, að þetta sé lægra en gerst hefir að undanförnu, jafnvel að meðaltali. En hætt er við að marg- ur vilji láta segja sér það tvisvar, áð- ur en þeir trúa. Hitt kannast flestir við, að stöku þingmenn hafa haft það til, að skrúfa ferðakostnaðinn jafnvel töluvert upp fyrir þetta. Ritstjóri og ábyrgðarmaðnr Björn Jónsson f. ráðherra. iBafoldarprentsmiðja. ÍSAFOLD. Ritstjórn: Ólafur Björnsson og Sigurður Hjörleifsson. Nýir kaupendur að síðari helming þessa árg. (1912) fá í kaupbæti 2 af neðantöldum 5 sögum eftir frjálsu vali: 1. Fórn Abrahams (600 hls.) eftir Gustaf Jansson. 2. Herragarðssöguna eftir Selmu Lagerlöf. 3. Davíð skygna eftir Jónas Lie. 4. Fólkið við hafið eftir Harry Söiberg, sem nú er lokið í blaðinu. 5. EIsu eftir Alex. Kielland. Davíð skygni er heimsfrægasta skáldsaga Jónasar Lie, Herragarðs- sagan einkend sömu snild og önnur skáldrit Selmu Lagerlöf. F ó r n Abrahams einhver frægasta skemti- saga, sem getur. E 1 s a er einhver bezta snildarsaga Alex. Kielíands. Hver einstök þessara bóka er í raun og veru miklu meira virði en verð '/2 árg. (2 ^1-) nemur. ÍSAFOLDAR-kaupendur eru ekki látnir borga 1 eyri fyrir það af blað- inu, sem fer undir auglýsingar. Að því frádregnu, þ. e. á n auglýsinga, er hún fullar 50 arkir hér um bil árg., sdma sem önnur blöð eru yfirleitt í mesta lagi m e ð auglýsingum, þótt sama sé söluverðið og þau nær öll í minna broti. — Það er hinn mikii kaupendafjöldi, sem gerir ísafold kleift að veita þessi stórkostlegu vildarkjör. ÍSAFOLD hefir nú frá 1. júlí bætt við sig ritstjóra, svo að nú verða rit- stjórarnir tveir og mun því enn betur vandað til blaðsins en hingað til. ÍSAFOLD hefir fastan tíðindamann erlendis, sem ritar henni erlend tíð- indi jafnóðum og gerast, svo að ekk- ert islenzkt blað flytur jafn ^reinileg- ar 0% tniklar erlendar fréttir. ÍSAFOLD hefir fasta tíðindamenn í öllum héruðum landsins, sem rita blaðinu öll innlend tíðindi, sem máli skifta. Fréttir úr öllum héruðum landsins eru því ítarlegri og áreiðanlegri í ísa- fold en nokkuru öðru blaði. Hver íslendingur, sem fylgjast vill með í því sem er að gerast utanlands og innan, í stjórnmálum, atvinnumál- um, bókmentum, listum o. s. frv. verður að halda Isafold. Kaupbætisins eru menn vin- samlega beðnir að vitja í afgreiðslu ísafoldar.

x

Magni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Magni
https://timarit.is/publication/197

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.