Ísafjarðarpóstur - 29.01.1908, Blaðsíða 3

Ísafjarðarpóstur - 29.01.1908, Blaðsíða 3
1. bl. ÍSAFJARÐAR-PÓSTUR 3 Skólabygging. Þeir, sem vilja taka að sér, að bjggja skólahús 28X14 -j-46Xl3 al. fyrir ísafjarðarkaupstað, komi með tilboð sín fyrir 4. febrúar þ. á. til undirritaðs. sera gefur allar nánari upplýsingar. — Bæjarfógetinn á Isafirði. Magnús Torfasc n. Þessi auglýsing bæjarfógeta sýn;r það, að hann er enginn fagmaður, þegar um byggingar er að ræða, þar sem hann þykist geta gefið fullnægjandi upp; lýsingarmeð þessari ófullkomnu grunnteikningu. Það er reyndar tekið fram í litlu fyigiblaði, þó mjög ónákvæmt. hverskonar sverleik þurfi til grindárinnar, ekki sýnd binding, eður neitt, sem hlýtur að varða mikiu, en talað er þar um, að hafa járnbita, sem ekki má skakka á um eina iínu, og er það því eftir tektarvert, að teiknarinn hefir að líkindum sjálfur einhverja samskonar ónotaða, sem hann þarf að selja og koma i peningail Og teljum vér vist, að hann með þessum óvanalega nákvæmleika búist við því, að hann verði maðurinn, sem fái verkið, og á þann hátt geti seit afgang sinn, enda er oss sama hver nýtur þess, þegar til kemur, — það er aðal spursmálið og hefir mesta þýðinguna, að fá sem nákvæmasta teikningu yfir húsið, enda sé tekið fram um Yiðargæði, því þótt sverleiki sé nefndur á tré< tegundum á það ekki saman nema nafnið, hvers efnis það er að varanleika, — og bjóða það svo upp til undirboðs til hvers þess, sem vildi taka það að sér fyrir lægst ákveðið verð, og það kemur ekki málinu við, hvort >að er fagmaður eða ekki, sem setur sig fyrir bygginguna, að eins, að vel sé frá húsinu gengið, og útlektarmeDnir telji verkið gott og gilt. Þegar um opinberar byggingar eða kostnað er að ræða, þá liggur mest á því, |að engin persónuleg velvild eða óvild geti haft áhrif á þá stjórn, sem stendur fyrir þessu fyrirtæki. Það þarf að eins að vera hagnaðarleg sérþekking og skoðun, sem þarf að ráða úrslitum í þessu máli hjá skólanefndinui, eða þeim, sem afgjöra þetta mál;verðurað athuga það nákvæmlega, þvi að þetta eru orðin lög, sem þingið hefir samþykt (o: skólaskyldulögin). Þarf því áð gæta þess, að engin hagnaðarhugsjón vissra vina skólastjórnarinnar, sem ekki eru rótthserri en aðrir að sækja um þessa atvinnu, og sízt persónulegt fylgi við vissa uppsleikjendur, sem er ósæmandi, eigi sér stað. Vér viljum þvi leggja það til, að skólamálinu verði frestað til betra undirbúnings, og ég áiít heppilegra, að ieitað verði samkomulags við borgar. ana áður en verkið er hafið, enda virðist engin ástæða til að fiýta þ v í. Það er gamall málsháttur, sem segir: „Vel byrjað verk er hálfLnnið," og sá hefir löngum ræzt. Samtal sjómanna, A: Þai- er nú þessu langdregna „Helmings“> máli ti) iykta leitt, og nú hafa gjörðarmennirnir uppkveðið þann dóm, sem lengi mun í minnum hafður. B: Þeir áttu úr vöndu að ráða, veslings. mennirnir, þar sem Bátaábyrgðarfélpgið hafðí áður brotið lög, og þeir hafa haldið sem svo, að það, sem höfðingjarnir hafast að, hinir ætla sér leyfist það. A: Talaðu varlega, kunningi. Þetta eru mér nýjar fréttir, og ég vildi óska mér frekari skýringa, ef þú hefir þær til. B: Já, það, sem ég átti við, var það, að mótorinn „Kristján" frá Hnífsdal var bættur ólög' lega. Auðvitað neitaði stjórn Bátaábyrgðarfélagsins. að borga. En veiztu hvað stjórninni hugkvæmdist þá? Pað var þessi makalausa aðferð, að leiða úrskurðarvaldið yfir í ÚtgerðarmaDnafélagið og láta það ganga til atkvæða um, hvort borga skyldi eða ekki. Þar var samþykt að borga. En um atkvæði í því félagi er það að segja, að sumir hafa mörg, en nokkrir að eins eitt. Og það ætti þér ekki að vera ofvaxið að skilja, hvernig fer, þegar þar bætist við, að fundir eru ekki betur sóttir, en venja er til hór, að það má jafnan þykja gott, þegar það verður fundarfært, og þegar um slík mál er að ræða, mæta hinir „interessuðu" fram ineð atkvæðum sínum. A: Þar hefir þeim gengið til þessi samtaka- ábyrgð, sem útvegsmenti standaí gagnvart félaginu,. og það er þó sannarlega „liberalt". B: En gáðu að því, maður, að þetta tiltæki getur orðið félaginu óbætanlegt tjón. Ég gjöri út mótorbáta í stórum stíl á meðan blessað landssjóðsv tiilagið hrekkur og íæ marga skeili, bæði viljandi- og óviljandi. Ég er meðlimur Útgerðarmannafó*- lagsins og hefi ult að 10 atkvæðum sjáifur, og þá er illa áhaldið, geti ég ekki náð mínu máli iram. Og þ#gar félagið er að þrotum komið, þá er sjálf sagt að segja alveg skilið við það.

x

Ísafjarðarpóstur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafjarðarpóstur
https://timarit.is/publication/190

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.