Fréttablaðið - 16.07.2001, Síða 24
FRÉTTABI LA1 Ð 1S
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 OO Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20
Jffla<b6<wb í
Aáde^nu
Grensásvegur10
Sími 553 88 33
VlO SEGJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á VÍSlr.lS Fyrstur með fréttirnar
Ofíicelsuperstore
OPK> VIRKA DAOA KL 8-19 • LAUGARDAGA KL 10-16
Skeifunni 17, 108 Reykjavik I
Furuvöllum 5, 600 Akureyri
Sími 550 4100
HUSIÐ
Tæknival
Bakþankar
PRÁINS bertelssonar
Svartagallsraus
Nú er ég að fara í sumarfrí og er
að vonast til þess að komast af
stað áður en allt svartsýnistalið hef-
ur dregið úr mér kjarkinn. Hér ku
nefnilega allt vera á niðurleið. Krón-
an er einskis virði. Hlutabréf minna
en einskis virði. Verðbólgan komin á
kreik. Þorskstofninn er týndur. Þjóð-
hagsstofnun einskis nýt og réttast
væri að sameina Seðlabankann og
Prentsmiðjuna Odda og gera for-
stjórann þar að Seðlabankastjóra.
MIG DREYMIR EKKI VEL. Mig
dreymdi í nótt að þegar ég kem
heim úr sumarfríinu mæti mér
þunglyndislegur tollvörður með
dökka bauga undir augunum og
skoði vegabréfið mitt (því að auðvit-
að verð ég að fara með vegabréf til
Norðurlandanna til að sanna að ég
þurfi ekki á vegabréfi að halda til að
ferðast til Norðurlandanna). Tollar-
inn tjáir mér að engar rútur gangi til
Reykjavíkur því að olíuverð sé end-
anlega komið úr böndunum og að-
eins á færi örfárra grænmetis-, mat-
vöru-, og sægreifa að aka um á vél-
knúnum ökutækjum. Hann segir
mér líka að ég fái ekki farangurinn
minn afhentan af því að allsherjar-
og eilífðarverkfall sé í gangi og allir
í stræk (nema tollverðir og súlu-
dansmeyjar).
— .
LOKS ER ÉG HRÆDDUR UM
að kalt og dimmt verði heima hjá
mér um kvöldið þegar ég kem gang-
andi til Reykjavíkur. í draumnum
óttast ég að þá verði búið að einka-
væða og selja Orkustofnun, Rafveit-
una og Hitaveituna og hinir nýju
eigendur hafi fundið út að það borgi
sig ekki að standa í þessu veseni
með virkjanir og pexi um náttúru-
vernd og séu farnir af landi burt
með lyklana að fyrirtækjunum að
skemmta sér við að reka ruslbúðir í
Bandaríkjunum þar sem er eftir
meiru að slægjast fyrir alvöruat-
hafnamenn sem eru orðnir leiðir á
að græða á svartsýnni dvergþjóð.
EN SVO VAKNA ÉG og martröð-
in er liðin hjá og ég er aftur orðinn
bjartsýnismaður á leið í sumarfrí.
Ég hlakka til sumarleyfisins og hlak-
ka ennþá meira til að koma aftur. Ég
er sannfærður um að við heimkom-
una verður hér nákvæmlega eins og
áður og og tollvörðurinn brosir við
mér og bandar frá sér vegabréfinu
mínu og segir: „Vertu velkominn
heim til þessa besta lands af öllum
mögulegum löndum." ■
Danmörk í sumar
Verð frá
Innifalið er flug og flugvallarskattar.
Flogið er alla mánudaga.
www.plusferdir. is
Blönduós Borgarnes Ísafjörður Sauðárkrókur Akureyri Egilsstaðir Selfoss Vestmannaeyjar Keflavík Grindavík
S: 452 4168 S: 437 1040 S: 456 5111 S:4536262 S: 585 4200 S: 471 2000 S: 482 1666 S: 481 1450 S:5854250 S: 426 8060
Söluskrifstofur Plúsferða: Faxafeni 5 • 108 Reykjavík og Hlíðasmára 15 * 200 Kópavogi
Sími 535 2100 • Fax 535 2110 • Netfang plusf@plusferdir.is • Veffang www.plusferdir.is
FERÐIR
HVALASKOÐUN
firá Reykjavíkurhöfh, alla daga kl. 10:30