Fréttablaðið - 16.07.2001, Page 23
Rétt í þessu varst þú að setja heimsmet í lestri
ásamt flestum íbúum höfuðborgarsvæðisins.
Enn einu sinni hefur okkur tekist að skjóta öðrum
þjóðum ref fyrir rass.
Ókeypis blöð hafa alls staðar I veröldinni aukið við
blaðalestur og náð frábærum árangri á markaði.
Það elsta og þekktasta - Metro í Stokkhólmi - kom
fyrst út fyrir fimm árum og hefur náð 40 prósent
meðallestri á sínu svæði. Það blað sem þú heldur á
- Fréttablaðið - er hins vegar lesið af 71 prósent
höfuðborgarbúa hvem virkan dag vikunnar aðeins
tveimur mánuðum eftir að það hóf göngu sína.
þú hefur setf heimsmet í lestri
Meðallestur á hverju tölublaði Fréttablaðsins er
ekki aðeins undrunarefni. Vel yflr 90 prósent
höfuðborgarbúa segjast lesa Fréttablaðið;
þótt þeir geri það ekki upp á hvem einasta dag.
Enginn fjölmiðill nokkurs staðar í veröldinni hefur
nokkru sinni getað státað af viðlíka útbreiðslu.
og verðlaunin eru 25.200 kr. á ári
Samkvæmt fjölmiðlakönnun
PriceWaterhouseCoopers,
sem gerð var um mánaða-
mótin júní/júlí 2001,
lesa 71 prósent íbúa höfuð-
borgarsvæðisins Fréttablaðið
að meðaltali og 91 prósent
segjast lesa það alltaf, oft
eða stundum.
Áskriftarverð að dagblaði er 2.100 krónur á mánuði
eða 25.200 krónur á ári. Fréttablaðið hins vegar er
og verflur alltaf ókeypls. Það er þakklætisvottur
blaðsins til lesenda sinna fyrir móttökurnar. Og það
munar um minna; 2.100 kr. á mánuði, 25.200 krónur
á ári og 1.386.000 krónur þann hluta æfinnar sem
reikna má með að fólk haldi heimili.
Fréttablaðið berst á um 67.000 heimili á
höfuðborgarsvæðinu. Með því að fá blaðið frítt
geta þessi heimili sparað sér 140.700.000 krónur
mánaðarlega og 1.688.400.000 krónur árlega.
Þafl munar um minna.
FRÉTTABLAÐIÐ
VlÐ SEGJUM FRÉTTIR