Fréttablaðið - 16.07.2001, Page 22
22
FRÉTTABLAÐIÐ
16. 'úlí 2001 MÁNUDAGUR
HRAÐSOÐIÐ
GÍSLI S. EINARSSON
alþingismaður
Málið snýst
um virðingu
Alþingis
HVERS VEGNA óskar þú eftir
stjórnsýsluúttekt á byggingarnefnd Þjóðleik-
hússins?
Ég hafði ekki gert mér grein fyrir
því að Árni Johnsen væri formaður í
byggingamefnd um leið og hann tek-
ur ákvarðanir um fjárveitingar til
Þjóðleikhússins sem samnefndar-
maður minn í fjárveitingarnefnd.
Þetta finnst mér óeðlilegt og sömu-
leiðis er ljóst af fjölmiðlafréttum að
starfshættir nefndarinnar hafa ekki
verið í samræmi við góða stjóm-
sýsluhætti. Það er í hæsta máta sér-
kennilegt að pólitískt kjörinn for-
maður byggingarnefndar geri allt í
senn, semji við verktaka, samþykki
reikninga og sjái um að sækja efni
til verka við viðhald og byggingar.
HVAÐ veldur því að þú snýrð þér til
forseta Alþingis en ekki til ríkisendurskoðun-
ar?
Þetta mál snýst fyrst og fremst um
virðingu Alþingis og forseti þings á
að gæta hennar. Ríkisendurskoðun
heyrir undir þingið og forsetann og
best fer á því að það sé á hendi for-
seta að sjá svo um að þetta mál verði
hreinsað og klárað skjótt og vel.
HVERNIG getur sá misskilningur
komið upp að vörur pantaðar vegna leik-
munageymslu Þjóðleikhússins eigi að senda
til Árna Johnsen í Vestmannaeyjum?
Ég leiði engum getum að því hvemig
þetta mál er vaxið. Ég hef aðeins far-
ið fram á að gerð verði bókhalds- og
stjórnsýsluúttekt á fjárveitingu til
Þjóðleikhússins til nýframkvæmda
og viðhalds vegna yfirstandandi fjár-
lagaárs og liðinna ára frá skipun
starfandi bygginganefndar. Ég hef
óskað eftir því að gerð verði grein
fyrir útboðum, eftirliti, verkisamn-
ingum, fundargerðum bygginga-
nefndar Þjóðleikhússins og áritun .
reikninga vegna ráðstöfunar þeirra
fjármuna eftir verknúmerum og
heitum á hverju verki fyrir sig. Það
er best að bíða með allar ályktanir
þangað til niðurstaða úttektar liggur
fyrir.
Císli S. Einarssin er alþingismaður Samfylking-
arinnar á Ve landi, og situr m.a. 1 fjárlaga-
nefnd ásamt < > Johnsen.
Bandaríkin:
Þyrst
kameldýr
ROSEVIILE, MICHIOAN. AP. Clyde, er 10
ára gamalt kameldýr sem þykir
gott að svala þorsta sínum með
ísköldum gosdrykk á heitum sum-
ardegi. Eigandi Clyde er Robert
Wilson, eigandi kameldýraleigunn-
ar Wilson Camel, en auk þess á hann
smáhestaleigu og dýragarð i
Vincennes í Indiana. Kameldýra-
leigan er vinsæl á meðal forvitinna
ferðamanna, sem finnst spennandi
að prófa að setjast á bak slíkra
dýra. Að sögn Wilson drekkur
Clyde 6 til 12 gosdósir á degi hverj-
um til að kæla sig niður í hitanum. ■
FRÉTTIR AF FÓLKI I
Margir hafa velt því fyrir
hvernig Árni Johnsen al-
þingismaður hyggist nota grill-
skálann sem hann
er nú að byggja
við setur sitt á
Höfðabóli í Vest-
manneyjum. Leg-
ið hefur á að viða
skálann meðal
annars vegna
þess að hann hef-
ur boðið með-
nefndarmönnum sínum í fjár-
laganefnd að heimsækja sig í
vikunni. Fjárlaganefndarmenn
kunna að gera sér glaðan dag
þegar svo ber undir og ekki er að
efa að stórkostlegar móttökur
voru í vændum á Höfðabóli.
Spurningin er hins vegar hvort
fjárlaganefndarmenn hafa mik-
inn áhuga á að láta mynda sig í
„leikmundadeild Þjóðleikhússins
í Vestmanneyjum", eins og grill-
skálinn er kallaður um þessar
mundir, eftir það sem á hefur
gengið í fjölmiðlum.
Hvorki formaður né varafor-
maður fjárlaganefndar munu
hafa vitað að Árni Johnsen væri
formaður bygg-
ingarnefndar
Þjóðleikhússins.
Bæði Ólafur Örn
Haraldsson for-
maður nefndar-
innar og Einar
Oddur Kristjáns-
son varaformaður
virðast hafa litið
svo á að búið væri að leggja
nefndina niður eftir að breyting-
um á sal Þjóðleikhússins lauk.
Komið hefur fram að ekki var
bætt við manni í nefndina eftir
að fækkaði um einn í henni, en
engu að síður munu nefndar-
mönnum hafa verið ákveðin laun
fyrir skömmu.
Eins og fram héfur komið af
hálfu þingmannsins sjálfs
hefur Árni Johnsen mörg járn í
eldinum. Hann er m.a. formaður
Grænlandssjóðs sem styrkir
ýmis samstarfsverkefni milli
Grænlendinga og íslendinga.
Fram hafa komið ábendingar um
að þörf kunni að vera á því að
kanna einnig bókhald- og fjár-
þtixiif jMvitdMitd snyrt
ný tilboðsverslun
verður
opnuð þann 18. júlí ts
2001 i iUMf tilboð ph
kl. 7 að morgni
mmh p. ■ *íii si ? jkfniððr
" Wh&Q icerti iiiat
iitg veitiiiEastaðir ffatn
STURTAR f SIG GOSI
Clyde fær sér sopa í drykkjarpásu, hvíldinni
feginn eftir lýjandi leiðangur með ferða-
menn.
Fjölskylda táningsdrengs kærir Goca-Gola fyrirtækið:
Fékk kók-sjálfsala
yfir sig og lést
réttarmál. Kanadísk fjölskylda kílóa þungur sjálfsalinn féll niður
sem missti son sinn þegar hann *- á hann og kramdi hann til bana.
fékk kók-sjálfsala yfir sig, hefur j Atvikið átti sér stað sér stað í
kært Coca Cola fyrirtækið auk j desember árið 1998. í skýrslu frá
fleiri fyrirtækja, fyrir vítavert MtiÁ líkskoðaranum í Quebec kemur
kæruleysi og fer fram á um ím>a fram að um slys hafi verið að
700 milljónir króna í skaða- m/fjm ræða. Mælt er með því að settir
bætur. Atburðurinn átti sér GW&pj séu viðvörunarmiðar á sjálfsala
stað þegar drengurinn, hinn 19 SB auk þess sem setja þurfi upp
ára gamli Kevin Mackle, sem búnað sem tryggir að ekki sé
var nemi við Bishop háskólann hægt að hrista gosdósir lausar.
í Quebec, reyndi að hrista M_:. 35 manns hafa kramist í BNA
sjálfsalann í skólanum til þess frá árinu 1978 eftir að hafa
að losa um kókdós, þegar 450 fengið gossjálfsala ofan á sig. ■
Ekki hafa áhyggjur
George Harrison virðist taka þeim áföllum sem á honum dynja í líf-
inu með stóískri ró, enda sagður hafa góð tök á sálarlífi sínu
GEORGE HARRISSON
Hann hefur tengst fleiru en tónlist um ævina og má þar nefna aðild hans að mynd
Monthy Python-hópsins, „Life of Brian".
harrison „Kæru vinir og aðdá-
endur, George Harrison vill að
fólki verði gert ljóst að honum
líður vel, er ekki á spítala og
þykir miður ef fjölmiðlaumfjöll-
unin hefur valdið fólki óþægind-
um. Ekki hafa áhyggjur," segir á
heimasíðu Bítilsins George
Harrison. Hann lauk nýlega
geislameðferð vegna heilaæxlis
og segja talsmenn sjúkrahúss-
ins, Oncology Institute í Sviss,
þar sem meðferðin fór fram „ár-
angursríkri meðferð hans lauk
fyrir mánuði og við sjáum ekki
ástæðu til að halda henni áfram
eða endurtaka hana.“ Þetta er í
þriðja sinn síðan 1998 að krabba-
mein greinist hjá Harrison, sem
er fyrrum reykingamaður. Hann
fékk geilsameðferð vegna æxlis
í hálsi 1998 og var litið svo á að
með því hefði verið komist fyrir
meinið. Fyrr á þessu ári varð
Harrison síðan að gangast undir
skurðaðgerð í Minnesota, til að
fjarlægja æxli úr lungum. Þó sú
aðgerð hafi gengið vel og fréttir
verið gefnar út um „frábæran
bata“ eftir hana, er samt sem
áður ekki undarlegt að aðdáend-
ur Harrisons séu órólegir nú
þegar vágesturinn knýr dyra í
þriðja sinn. Hinsvegar virðist
hann sjálfur vera í jafnvægi, en
það er haft eftir þeim sem til
hans þekkja að „háttvísi hans og
það hvernig hann hefur náð að
glíma við sálarlíf sitt, sé nokkuð
sem meta skuli að verðleikum.
Hinn hljóðláti Bítill virðist hafa
mjög góð tök á þessum þætti lífs
síns.“ Ekki vanþörf á því, til
dæmis mörgum er í fersku
minni þegar brotist var inn á
heimili hans í Englandi 1999 og
hann stunginn fjórum sinnum í
brjóstkassann. Hinn 58 ára
gamli Harrison býr nú með eig-
inkonu sinni í Toscana á Ítalíu,
og lifir ekki eingöngu í efnis-
heiminum (samanber heiti plötu
hans frá 1973 „Living in the ma-
terial world“) heldur hefur til að
mynda látið sig varða hugsjónir
á borð við umhverfismál og
fleira.
Bryndis@frettabladid.is
reiður þess sjóðs sem þingmað-
urinn virðist, að því er heimild-
armenn staðhæfa, hafa farið með
sem einkamál sitt.
Kristinn Þ. Geirsson fram-
kvæmdastjóri Goða er ekki
vinsælasti maðurinn í bændastétt
um þessar mundir. Hann hefur
þegar selt kjötvinnslu Goða til
KEA, og neitar að reka sláturhús
fyrirtækisins á mörgum stöðum
á landinu. í viðtali við Morgun-
KEPPA
Embættismenn fylgjast með því að allt fari
vel fram.
Malasía:
Andasund
KUALA LUMPUR 80.000 gular og
rauðar gúmmíendur sigldu niður
Gombak ánna í Kúala Lumpur í
Malasíu í gær. Um var að ræða hið
árlegt 1,5 km. kappsund gúmmí-
anda í góðgerðaskyni. Þátttakend-
ur kaupa önd fyrir tæplega 500
ísl. kr. Eigandi sigurandarinnar
fékk 27 þúsund í verðlaun ■
blaðið sl. laugardag segir hann
að mikil hagræðingartækifæri
séu í greininni en svo hart sé
spyrnt á móti öllum hugmyndum
um slíkt að allt sé sett í fullkom-
in þrot heldur en að gera það
sem augljóslega er þörf á, t.d. að
stækka sauðfjárbú og fækka slát-
urshúsum.
Menn hefðu hins vegar átt að
vera búnir að sjá þetta fyrir
löngu, menn hafa bara neitað að
horfast í augu við vandann. Það
er að vísu búið að afnema laga-
skylduna að greiða bændum fyr-
ir dilka að hausti en menn hafa
haldið áfram að keyra eftir
gamla kerfinu og ég á erfitt með
að skilja það. Ég sé að vísu
ákveðin rök í því: menn gera það
sem þeir eru minnst skammaðir
fyrir. Og ég met það þannig að í
þessum geira hafi menn verið
minna skammaðir fyrir að tapa
peningum en að skaffa ekki nógu
vel fyrir bændur.“