Fréttablaðið - 16.07.2001, Side 18
FRÉTTABLAÐIÐ
16. júlí 2001 MÁNUDACUR
HVER ER TILGANCUR LÍFSINS?
Þjóðminjasafn í Hafnarborg:
Skotskífur og ljósmyndir
Eidar Ástþórsson
baráttumaður
Tilgangur lífsins er að njóta þess
og um leið reyna að láta eitthvað gott af
sér leiða.
sýnincar Þjóðminjasafn íslands
stendur nú fyrir tveimur sýning-
um í Hafnarborg í Hafnarfirði.
Önnur nefnist ísland 1951 og er
sýning á ljósmyndum sænska ljós-
myndarans Hans Malmberg. Hin
sýningin er á skotskífum í eigu Det
Kongelige Skydeselskab og
Danske Broderskab.
Hans Malmberg var talinn einn
fremsti ljósmyndari Svía á sinni
tíð og birtust myndir hans í sænsk-
um blöðum og tímaritum. Hann
tók myndir af daglegu lífi og við-
burðum í Svíþjóð en ferðaðist ein-
nig um heiminn og myndaði styrj-
aldir og heimsþekkta menn.
Nokkrar ljósmyndabækur voru
ÍSLANOSMYND
Skotskífurnar á sýningunni eru merkar
heimildir, ekki sist vegna þess hve lítið er
til af myndum frá Islandi fyrr á öldum.
gefnar út með myndum Hans
Malmberg, ein þeirra með mynd-
um frá Islandi. Bókin hefur að
geyma ferska sýn á ísland og úr-
vals ljósmyndir. Á sýningunni
verða sýndar nýjar stækkanir á ís-
landsmyndum Hans Malmberg og
frummyndir af nokkrum þeirra.
Det Kongelige Skydeselskab og
Danske Broderskab er eitt elsta
starfandi félag í Danmörku og
margir íslendingar og íslands-
kaupmenn hafa verið meðlimir
þess. Sérhver félagi lét mála skot-
skífu með sérvöldu myndefni og
skotskífurnar urðu síðan eign Det
Kongelige Skydeselskab. Á sýn-
ingunni eru um 15 skotskífur með
íslensku myndefni eða frá íslensk-
um félögum skotfélagsins frá ár-
unum 1787 til 1928.
Sýningarnar er opnar alla daga
nema þriðjudaga og lýkur þeim 6.
ágúst. ■
Listagilið á /vkureyn:
Listnemar
°g
finnsk kona
sýningar Um helgina voru opnaðar
tvær myndlistarsýningar í Ketil-
húsinu, annarsvegar sýna nemar í
Listaháskóla íslands afrakstur
verkefnisins „Hringur" sem var
hringferð um landið með sýning-
um á ýmsum stöðum. Sýning nem-
anna ber yfirskriftina „Bæjó,
hver vegur að heiman er vegurinn
heim“. Á svölum Ketilhússins var
opnuð sýning Elinu Koskimies frá
Finnlandi en hún dvelur í Gesta-
vinnustofunni út júlí. Sýningarnar
standa til og með 29. júlí. ■
1 METSÖLULISTI [
Mest seldu bækurnar á Amazon.com
Montel Wllliams, Wini Linguvic
BODYCHANGE
David McCullough
JOHN ADAMS
ÉJ James Patterson
SUZANNf S DIARY FOR NICHOLAS
(ekki komin út)
Q Andrew Solomon
NOONDAY DEMON: AN ATLAS OF
____DEPRESSION____________________
Kathleen J. Reichs og Kathy Reichs
FATAL VOYAGE (ekki komin út)
C) Ric Edelman
ORDINARY PEOPLE, EXTRAORDIN-
ARYWEALTH
Bruce H. Wilkinson
THE PRAYER OF JABEZ
Q Linda Howard
OPEN SEASON (ekki komin út)
Q Lalita Tademy
CANE RIVER ___________________
© Brad Schoenfeld og Carole Semple-
Marzetta
LOOK GRATE NAKED
Metsölubækurnar á
Amazon:
Skrokka-
bækur
bækur Ótrúlega algengt er að óút-
komnar bækur séu meðal 10 mest
seldu bókanna á
Amazon.com og á
listanum hér eru
þær hvorki meira né
minna en þrjár. List-
inn er annars fjöl-
breyttur að vanda en
greinilegt er á hon-
um að þeir sem
kaupa bækur á Net-
inu eru býsna upp-
teknir af skrokkn-
um.
Ein bókin á listan-
um ætti að höfða
sérstaklega til okkar
hér á norðurhveli, en það er bókin
Noonday Demon: An Atlas of
Depression. ■
MÁNUDAGURINN
____ 2. JÚLÍ
SÝNINGAR__________________________
I Ljósmyndasafni Reykjavíkur stendur
Ijósmyndasýning Henri Cartier-Bresson
í Grófarsal, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15.
Sýnd eru verk franska Ijósmyndarans
sem nú er á tíræðisaldri. Sýningin er
opin virka daga frá kl. 12-17 og um
helgar ki. 13-17 og stendur til 29. júlí.
I Byggðasafni Hafnarfjarðar standa yfir
sýningarnar Blóðug vígaferli og Götulíf
víkinganna í York . Um er að ræða
tvær sýningar, annars vegar endurgerð á
götu í víkingaþorpi og hins vegar sýn-
ingu þar sem má sjá beinagrind og
hauskúpur víkinga sem féllu í bardög-
um. Sýningarnar eru opnar alla daga frá
13 til 17 og standa til 1. október.
I Sjóminjasafninu í Hafnarfirði stendur
handverkssýning Ásgeirs Guðbjartsson-
ar. Sjóminjasafnið er opið alla daga frá
kl. 13 til 17. Sýningin stendur til 22. júlí.
Á efri hæð Hafnarborgar stendur Þjóð-
minjasafn íslands fyrir sýningu á Ijós-
myndum eftir Hans Malmberg frá því
um 1950. Sýningin nefnist fsland 1951.
Sýningin er opin alla daga nema þriðju-
daga og henni lýkur 6. ágúst
MYNPLIST_____________________________
Eggert Pétursson sýnir blómamyndir
sínar galleríi i8 Klapparstíg 33. Sýningin
stendur til 28. júlí.
Hafliði Sævarsson sýnir í Gallerí Geysi
í Hinu húsinu. Sýninguna nefnir hann
Kínakrakka og sýnir hann aðallega mál-
verk en einnig skúlptúra og teiknaðar
skissur.
Yfirlitssýning Errósafnsins stendur í
Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi.
Fjórir listamenn sýna nú í Nýlistasafn-
inu. Þeir eru Daníel Þorkell Magnús-
son í Gryfju, Ómar Smári Kristinsson á
palli, Karen Kirstein í forsal ogPhilip
von Knorring í SÚM-sal.
Sýningin List frá liðinni öld stendur yfir
í Listasafni ASÍ. Á sýningunni eru önd-
vegisverk úr eigu safnsins. Sýningin
stendur til 12. ágúst.
Svipir lands og sagna er yfirskrift sýn-
ingar á verkum Ásmundar Sveinssonar
í Listasafni Reykjavíkur, Ásmundar-
safni. Á sýningunni eru verk sem span-
na allan feril listamannsins. Safnið er
opið daglega 10-16 og stendur sýningin
til 10. febrúar á næsta ári.
Bónstöðin TEFLONj/j
GSM 821 4848 Sími 567 8730
I Lakkvörn
2. ára ending
Teflonhúðun Djúphreinsun
Blettanir Mössun Alþrif
Opið alla virka daga 8.30-18.00
www.teflon.is • Krókhálsi 5 • Toughseal umboðið
Útsalan í fullum gangi
20% aukaafsláttur!
JFlott - J^öt
Hlíðarsmára 17.200 Kópavogi . S 554-7300
Opið frá 10-18 virka daga 10-16 laugardaga
Erum beint
á móti
Sparisjóði
Kópavogs
Z
0
J
IL
U1
H
Feneyj atvíæringurinn:
Bönn
og rit-
skoðun
myndlist Nú stendur í Feneyjum
Bíenallinn eða Tvíæringurinn
sem kenndur er við borgina.
Þetta er í 49. sinn sem Feneyjat-
víæringurinn er haldinn en hann
er talinn stærsti viðburður
heims á sviði samtímalistar og
má í raun líkja honum við Cann-
eshátíðina í kvikmyndunum.
Finnbogi Pétursson er fulltrúi
íslands á Tvíæringnum í ár og
sýnir þar verk sitt Diabolus.
„Þessi diabolustónn hefur verið
að þvælast í kringum mig síðan
ég var unglingur," segir Finn-
bogi um tilurð verksins. „Þetta
tónbil var bannað af kaþólsku
kirkjunni á miðöldum. Ástæð-
urnar eru óljósar en talið var að
tónninn hefði meðal annars áhrif
á kynhvöt fólks og væri því
runnin undan rifjum djöfulsins."
Finnbogi fór fyrst til Feneyja í
ágúst í fyrra. Þá var hann búinn
hanna í huganum göngin sem
ganga í gegnum skálann. „Þar
poppaði upp hugmyndin um di-
abolusinn og ég festi hana í þess-
ari ferð.“
Þegar heim kom útfærði
Finnbogi hugmyndina og ákvað
að vera annars vegar með org-
eltón sem tákn miðaldanna í
göngunum og hins vegar el-
ektrónískan tón sem táknar nú-
tímann. Diabolustónninn verður
til í samspili þessara tveggja
tóna sem mynda 17 riða sveiflu.
Hún veldur víbringnum í göng-
unum sem hreyfir verulega við
áhorfendum sem ganga inn í
göngin, röddin titrar og sumum
sundlar jafnvel. Þegar komið er í
enda ganganna fyllir áhorfand-
inn upp í þau og stoppar þar með
loftflæðið úr orgelpípunni. Finn-
bogi segist í verkinu fyrst og
fremst vera að fást við bann og
ritskoðun og notar til þess þetta
FULLTRÚI ÍSLANDS
Finnbogi Pétursson er fulltrúi (slands á
Feneyjatvíæringnum ár. Á veggnum er
líkan af íslenska skálanum 1 Feneyjum.
fyrrum bannfærða tónbil.
Finnbogi hefur fengist við
myndlist í nærri 20 ár. Undan-
farin tvö ár hefur hann tekið þátt
í listamessum á vegum gallerís-
ins i8. „Á þessum tveimur árum
hefur meira gerst á mínum ferli
en öll hin árin,“ segir Finnbogi.
en þátttaka í Feneyjatvíæringn-
um skiptir miklu máli því þang-
að koma allir þeir sem eitthvað
hafa að segja í myndlistarheim-
inum.
Þegar Tvíæringnum lýkur í
nóvember verður verkið flutt
heim og sýnt í Listasafni íslands
í desember. „Ég nýti efniviðinn
úr stórum verkum sem ekki selj-
ast í önnur verk. Ef til þess kem-
ur að setja Diabolusinn upp aftur
DIABOLUS
Verk Finnboga eru göng úr krossviði. Þau
eru 2,5 metrar á breidd fremst, mjókka
inn og eru 1/2 metri á breidd innst þar
sem er orgelpípa. Innan í og undir píp-
unni er hátalari sem gefur frá sér el-
ektrónískan tón. Daníel Magnússon,
annar aðstoðarmanna Finnboga i Fen-
eyjum tók myndina.
fer ég bara í Húsasmiðjuna,
kaupi krossvið og smíða verkið
upp á nýtt.“
steinunn@frettabladid.is
íslensk skáldverk
ápólsku:
Bækur og
rafbækur
bækur Pólska forlagið Tower Press
hefur keypt réttinn til útgáfu á
Englum alheimsins eftir Einar Má
Guðmundsson, Þar sem djöflaeyj-
an rís eftir Einar Kárason og 101
Reykjavík eftir Hallgrím Helga-
son í rafbókarformi en Pólverjar
standa mjög framarlega í útgáfu
rafbóka. Um 300 titlar eru nú fá-
anlegir í netklúbbi Tower Press,
www.literatura.net.pl.
Þar sem djöflaeyjan rís kom út
í Póllandi fyrir nokkrum árum en
Englar Alheimsins og 101 Reykja-
vík eru væntanlegir þar á bók.
Jacek Godek þýðir allar bækurn-
ar úr íslensku. ■
UTIVIST
r
A Heklutindi
Hekla er án efa eitt frægasta
fjall íslands. Hér áður fyrr
trúðu menn því að þar væri að
finna innganginn til helvítis og
barst sú saga víða. Þrátt fyrir að
nútímamenn óttist ekki púkana á
Heklu þá er samt eitthvað mys-
tískt við fjallið. Það sést víða að
á Suðurlandi en æði oft er topp-
urinn hulinn skýjum, svona eins
og til að halda dulúðinni. Mig
hefur lengi langað á toppinn og
lét verða af því að dögunum í
fylgd Útivistarfólks. Gengið var
upp frá Skjólkvíum svokölluð-
um, sem leið lá á hátind Heklu.
Það kom mér á óvart að gangan
var ekki svo erfið.Tek reyndar
fram að veður var afar gott og
fékk á tilfinninguna að ég sæi
hálft landið. Fjallið er líka mjög
spennandi,
alls kyns
hraun-
myndanir
og svo rýkur úr því!
Ég mæli eindregið með göng-
unni á Heklutopp, hún ætti ekki
að reynast neinum ofviða sem
kemst á Esjuna. Sem fyrr er gott
að hafa varann á, vera með átta-
vita eða ferðast með vönum aðil-
um því veður eru, eins og allir
vita, válynd á íslandi.
Sigríður B. Tómasdóttir
Hæð: Tæpir 1.500 m.y.s.
Keyrslutími að Skjólkvíum: Rúmir tveir
tímar frá Reykjavík.
Göngutími: Um sex til átta tímar.
Góð ganga fyrír þá sem em ■
sæmilegu formi