Fréttablaðið - 16.07.2001, Page 12
12
FRETTABLAÐIÐ
16. júlí 2001 MÁNUDAGUR
Sigur fyrir Bush:
Eldflaugatilraun
vel heppnuð
washincton. MOSKVA. ap. Fyrsta til-
raun ríkisstjórnar Georgs W.
Bush, Bandaríkjaforseta, á tækni
fyrirhugaðs eldflaugavarnarkerf-
is tókst mjög vel og er vatn á
myllu forsetans og stuðnings-
manna hans.
„Samkvæmt upplýsingum sem
við höfum fengið gekk allt upp,“
sagði Ronald Kadish, hershöfð-
ingi í flughernum og yfirmaður
eldflaugavarnaráætlunarinnar í
Pentagon.
Tilraunin var byggð á tækni
sem á að verða grundvöllur eld-
flaugavarnakerfis Bandaríkja-
stjórnar. Tæknin kallast „skotið-
til-að-drepa“ [hit-to-kill]. Varnar-
eldflaugin eyðir sprengihleðslu
árásareldflaugarinar þegar sú
fyrri rekst á þá síðarnefndu.
Þetta er í fjórða sinn sem til-
raun af þessu tagi er gerð. Tvær
af hinum fyrri misheppnuðust en
ein tókst vel. Blaðamenn fengu að
fylgjast með skotinu af fréttaskjá
ELDFLAUC SKOTIÐ Á LOFT
Óvopnaðri eldflaug, IWinuteman II, var skotið frá herstöð flughersins, Vandenberg í Kali-
forníu. Öðru flugskeyti var skotið frá Kyrrahafseyju til að eyða hinu fyrra. Þetta er fyrsta til-
raun ríkisstjórnar Bush.
en gríðarlegur ljósglampi sást sprungu í rúmlega 200 metra hæð
þegar flaugarnar skullu saman og fyrir utan gufuhvolf jarðar. ■
Nígería:
SS-bolur í
Iga Okpaya
afskekkt Baldur Steinn Helgason, fs-
lendingur sem verið hefur við hjálp-
arstarf í Nígeríu bjóst ekki við því að
rekast á margt sem minnti á heima-
slóðir þar sem hann var á ferðalagi
um afskekkta bændaþorpið Iga Okpa-
ya í Idoma-héraði, sem er í miðju
landinu. Hann taldi því við hæfi að
festa það á filmu þegar hann rakst á
barn í bol sem á stendur „íslendingar
borða SS-pylsur.“ Héraðið, sem geng-
ur einnig undir nafninu „matarkarfa
Nígeríu," er mjög frjósamt og byggja
flestir íbúar afkomu sína á frumstæð-
um landbúnaði. Baldur segir vélar og
dráttardýr sjaldgæf, menn plægi
Knattspyrnumenn framtíðar
800 ungir knattspyrnumenn öttu kappi á Akranesi um helgina.
lottómót Skagamenn fengu marga
gesti um helgina þegar þangað lögðu
leið sína 800 ungir knattspyrnumenn
ásamt þjálfurum sínum, foreldrum,
systkinum og öðrum vandamönnum.
Má ætla að á þriðja þúsund aðkomu-
manna hafi verið í bænum um helg-
ina. Erindið var að taka þátt í knatt-
spyrnumóti 7. flokks - Lottó/Búnaðar-
bankamótinu - en þar eru keppendur
8 ára og yngri. I flestum liðunum
kepptu eingöngu drengir en nokkrar
stúlkur tóku þátt, t.d. keppti ein stúl-
ka með a- liði Þróttar og önnur með d-
liði heimamanna í ÍA.
16 félög sendu lið til keppni. Hald-
MARK
Lið Breiðabliks voru sigursæl á Lottó/búnaðarbankamótinu.
Hér hafa Blikar skorað I mark Fjölnis.
in voru tvö mót, hraðmót, sem fram
fór á föstudegi, og aðalmót, þar sem
leikið var í riðlum og síðan keppt til
úrslita. Keppt var í fjórum styrk-
leikaflokkum, A,B,C og D. Elstu
drengirnir voru margir á sínu þriðja
Lottómóti.
Leikgleðin og baráttuandinn var
ósvikinn hjá strákunum. Þeir sem eru
búnir að æfa lengst hafa náð góðum
tökum á íþróttinni, þekkja stöðurnar
sínar og sýna oft góðan leikskilning
og glæsileg tilþrif. Hinir yngri, sem
eru að stíga sín fyrstu spor, skemmtu
áhorfendum einnig vel með ódrep-
andi baráttuanda og leikgleði, sem
birtist stundum í því að bæði lið fyl-
gdu boltanum eins og fiskitorfa hvert
sem hann barst um völlinn.
Það var leikin drengileg knatt-
spyrna á Skaganum um helgina og
lögð mikil áhersla á prúðmennsku og
heiðarlegan leik. Það birtist m.a í því
að glæsilegasti verðlaunagripur
mótsins féll prúðasta liðinu í skaut.
Veldu
FordTransit
Sendibíl ársins 2001
Annað árið í röð skarar hann framúr í sínum flokki
FordTransit er
sterkbyggöur meö
einstaka flutnings-
og buröargetu.
í FordTransit
sameinast rúmlega
35 ára þekking og
reynsla á hönnun
sendibíla.
FordTransit er
glæsilegur og gott
útsýni um stórar
rúöur gerir aksturinn
mun þægilegri og
öruggari. Komdu og
sjáöu hversu gott þú
getur haft þaö
viö aksturinn.
• Nýtt og glæsilegt útlit
• Framdrif með spólvörn
• Lægri viðhaldskostnaður
• Nýjar dísel vélar
• Meira og þægilegra hleðslurými
&
brimborg
www.brimborg.is
HRAÐMÓT: AÐALMÓT:
A-LIÐ: A-LIÐ
1. HK 1. FH.
2. Breiðablik. 2. Fylkir.
3. ÍA 3. Valur.
B-LIÐ B-LIÐ
1. Breiðablikl 1. Breiðablik
2. Fjölnir. 2. Fylkir
3. Breiðablik 2. 3. (A
C-LIÐ C-LIÐ
1. Víkingur 1. Vikingur
2. Breiðablikl 2. ÍA.
3. Crótta 2 3. ÍBV
D-LIÐ D-LIÐ
1. Breiðablik I. Breiðablik
2. íal 2. ÍBV
3. ÍBV 3. ÍAl
Að þessu sinni voru það keppendur
Leiknis í Breiðholti, sem hlutu þann
heiður. í mótslok fengu allir keppend-
urnir 800 verðlaunapening en sigurlið
í hverjum riðli fengu einnig bikara. ■
NESTISTÍMI
Skagamenn sáu keppendum fyrir mat og
gistingu I grunnskólum og íþróttamiðstöð
bæjarins og héldu þeim grillveislu á laug-
ardagskvöld. Milli leikja snæddu keppend-
ur nesti sem foreldrar og fararstjórar út-
bjuggu. Hér fá Þróttarar sér í svanginn eftir
leiki laugardagsins.
FRAMTÍÐ ÁÆTLUNARFLUGS í ÓVISSU
Ekkert áætlunarflug var til Patreksfjarðar í vetur en í maí var það hafið að nýju. Flugfélagið
Jórvík hefur sinnt þessu flugi sem einnig þjónar nærsveitum Patreksfjarðar auk þess sem
talsverð frakt hefur verið flutt með áætlunarfluginu.
Flogið áfram
í leiguflugi
Ekki verður unnt að halda uppi áætlunarflugi til
Patreksíjarðar næstu vikur meðan flugturninum
þar verður lokað vegna sumarleyfa. Forráða-
menn flugfélagsins Jórvíkur eru ósáttir við þetta
en hyggjast þjóna Patreksfirðingum og nærsveita-
mönnum með leiguflugi.
flugsamcöncur í dag verður flug-
turninn á flugvellinum á Patreks-
firði lokað og verður hann lokaður
fram í ágúst. Þetta er gert í sparnað-
arskyni vegna sumarleyfa starfs-
manns flugvallarins og hefur í för
með sér að ekki er hægt að fljúga
áætlunarflug til Patreksfjarðar.
Flugfélagið Jórvík er eina flugfé-
lagið sem sinnt hefur þessu áætlun-
arflugi um skeið en flogið hefur ver-
ið þangað sex daga í viku. Ákvörðun
flugmálastjórnar kom flatt upp á
forráðamenn flugfélagsins en þeim
er nú bent á flugvöllinn á Bíldudal.
Heimir Már Pétursson upplýs-
ingafulltrúi flugmálastjórnar segir
að öllum flugvallaumdæmum hafi
verið gert að spara á þessu ári. Tekj-
ur flugvalla ráðist af umferð en hún
hefur minnkað verulega á Vestfjörð-
um. „Það er hægt að fljúga leiguflug