Fréttablaðið - 16.07.2001, Síða 11
MÁNUDAGUR 16. júlí 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
11
Morð aðskilnaðarsinna:
Spánverjar syrgja
madrid.ap. Spánverjar syrgðu í gær
morð á stjórnmálamanni og lög-
reglumanni sem talið er að aðskiln-
aðarhreyfing Baska, ETA, standi
fyrir. Jose Javier Mugica, liðsmað-
ur Samtaka alþýðunnar í Navarr,
lést í bílsprengju í bænum Leiza á
Norður-Spáni á föstudagskvöld.
Sprengjan sprakk er hann ræsti bíl
sinn og horfðu kona hans og börn á
bílinn brenna til ösku. Tíu klukku-
stundum síðar var yfirmaður rann- g
sóknardeildar lögreglunnar í s
Guipuzcoa héraði í Baskalandi |
skotinn til bana í bíl sínum í bænum <
Leaburu. Einungis 20 km eru á milli
bæjanna og telur lögregla að sama
sveitin hafi framið hryðjuverkin. ■
Leiðtogafundur á Indlandi:
Heiðarlegar og upp-
byggilegar viðræður
acra. ap. Leiðtogar Indlands og
Pakistan ræddu kjarnorkuvopn,
átökin í Kasmír og verslunarfrelsi
á „heiðarlegan og uppbyggilegan"
hátt í sínum fyrstu viðræðum í tvö
ár í gær. Þeir Perves Musharraf,
forseti Pakistan og Atal Bihari
Vajpayee, forsætisráðherra Ind-
lands, héldu viðræðunum áfram í
gærkvöldi og munu einnig ræðast
við í dag.
Þrátt fyrir viðræðurnar kom til
átaka á milli liðsveita Indverja og
Pakistana við landamæri Kasmír
sem lengi hefur verið deilt um.
Enginn særðist að því er talið er.
Vajpayee þáði boð Musharra
til Islamabad, höfuðborgar
Pakistan. ■
LÉTT YFIR LEIÐTOCUM
Pervez Musharraf og Atal Bihari Vajpayee
virtust mjög afslappaðir þegar þeir hittust í
gær.
Útboð í Sóltún:
Misvísandi ummæli
öldrunarþjónusta „Það er mjög
misvísandi þegar Ingibjörg
Pálmadóttir segir að öllum hafi
verið heimilt að bjóða í reksturinn
á sínum tíma“,
segir Ögmundur
Jónasson, þing-
maður Vinstri-
hreyfingarinnar,
um ummæli fyrr-
um heilbrigðis-
ráðherra í nýlegu
viðtali þar sem
hún ver þá
ákvörðun að
semja við Öldung
hf. um rekstur
öldrunarheimilis-
ins Sóltúns.
„Það var gagn-
rýnt hvernig staðið var að útboð-
inu og samið við Öldung um rekst-
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
Ekkert annað rétt-
lætanlegt en að
rifta samningnum
við Öldung
urinn. Ríkisendurskoðun vildi láta
bjóða aftur í verkið eftir að tilboð-
unum í útboðinu var öllum hafn-
að.“ Ögmundur segir þó alvar-
legra að tilboði Hrafnistu um að
byggja við og samnýta grunnþjón-
ustu Hrafnistu skyldi hafnað. Það
segir hann að hefði verið mun
hagkvæmari kostur fyrir skatt-
greiðendur heldur en að semja við
Óldung. Heilbrigðisráðuneytið
hefði úrskurðað að ekki mætti
bjóða það fram öðru vísi en sem
sjálfstæða einingu. Því hefði nið-
urstaðan orðið sú að hlutafélag
fengi greidda hærri þóknun en
öðrum stofnunum. Þar segir hann
ekki nægja að vísa til þess að á
Sóltúni skuli vista veikasta fólkið
sökum þess að í samningnum er
kveðið á um að greiðslur hækki
fyrir veikari sjúklinga. ■
Útboð í Sóltún:
Staða okkar alltaf ljós
öldrunarpjónusta „Ástæða þess
að við buðum ekki í rekstur Sól-
túns var sú að ákvæði í útboðinu
gerðu það að verkum að við gátum
ekki boðið í reksturinn á okkar
forsendum", segir Sveinn H.
Skúlason, forstjóri Hrafnistu,
sem furðar sig á ummælum Ingi-
bjargar Pálmadóttur, fyrrum heil-
brigðisráðherra, í viðtali í Árbók
Akurnesinga að það hafi komið
henni á óvart að stofnanir á borð
við Hrafnistu hafi ekki boðið í
reksturinn.
Sveinn segir að vegna þess að
meðal þátttakenda í útboðinu hafi
verið hlutafélög sem starfa á öðr-
um grundvelli en Hrafnista hafi
verið sett inn ákvæði sem gerðu
það að verkum að Hrafnista hefði
þurft að stofna sérstakt félag um
rekstur nýja öldrunarheimilisins.
Þá hefði einnig reynst ókleift að
samnýta með hagkvæmum hætti
þá stoðþjónustu sem væri fyrir.
Þess í stað hefði þurft að kaupa
alla slíka þjónustu á kostnaðar-
verði og greina sundur allan
kostnað við reksturinn. Það hafi
SVEINN H. SKÚLASON
Á sama tlma og ríkið sameinar spltala og
hagræðir gerðu útboðsreglur öðrum aðil-
um erfiðara fyrir að.gera það sama.
gert það að verkum að Hrafnista
hefði ekki náð fram þeirri hag-
ræðingu sem stjórnendur hennar
vonuðust eftir og því ekki reynst
fýsilegur kostur að bjóða í rekst-
urinn. ■
Kynning á tillögum að matsáætlun fyrir
Urriðafossvirkjun og Núpsvirkjun
Landsvirkjun undirbýr nú tvær nýjar virkjanir í neðri hluta Þjórsár.
Virkjanirnar hafa fengið vinnuheitin Núpsvirkjun og Urriðafossvirkjun.
Landsvirkjun mun kynna fyrirhugaðar framkvæmdir ásamt tillögu
að matsáætlun með opnu húsi á eftirtöldum stöðum:
í Árnesi í Gnúpverjahreppi, þriðjudaginn 17. júlí kl. 16 - 22,
að Laugalandi í Holta- og Landsveit, miðvikudaginn 18. júlí kl. 16 - 22
og í kjallara húss Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, Reykjavík,
fimmtudaginn 19. júlí kl. 14 - 20.
Landsvirkjun hvetur alla, sem áhuga hafa, til að mæta og kynna sér
þessi málefni.
Áhugasamir geta einnig kynnt sér drög að tillögum að matsáætlun á
heimasíðu Landsvirkjunar^wwJtólS
Einnig er hægt að hafa samband við bókasafn Landsvirkjunar í
síma 515-9000 og fá skýrsluna senda gegn 1000 kr. gjaldi.