Fréttablaðið - 16.07.2001, Page 9
MÁNUPAGUR 16. júlí 2001
BÍLAHRÚGA Á HRAÐBRAUTINNI
Hafist var handa í gær við að rýma vegi en þá hafði óveðrinu slotað.
Suður-Kórea:
33 látast í óveðri
SEÚL. ap. 33 létust í miklum stormi
með úrhellisrigningu sem gekk
yfir Suður-Kóreu í fyrrinótt.
Stormurinn olli skriðuföllum og
flóðum. Fjórtán manns var saknað
í gær, þ.á.m. átta ferðamanna sem
staddir voru á tjaldsvæði í
Kapyong, 35 kílómetra norðaust-
ur af Seúl, höfuðborg Suður-
Kóeru, en straumþung á margföld
að vexti hreif þá með sér.
20 létust í Seúl, þar af 11 af
völdum raflosts sem fólkið fékk
af völdum götuljósa sem farið
höfðu á kaf í flóðum á götum
borgarinnar. Fórnarlömbin í
Kyonggi, þéttbýls svæði í kring-
um höfuðborgina, létust m.a. af
völdum aurskriða.
Mjög dró úr regni í gær og
hófust þúsundir hermanna og
embættismanna þá handa við að
hjálpa fórnarlömbum veðurofs-
ans til að hreinsa heimili sín af
rusli og aur en um 15.000 heimili
fóru á kaf í flóðum.
Allt að 31,1 cm af regni féllu á
svæðinu í kringum Seúl aðfara-
nótt sunnudags. Ár flæddu yfir
bakka sína í kjölfarið með þeim
afleiðingum að vegir fóru á kaf og
neyddust margir til að yfirgefa
bíla sína á vegum úti.
Nú er regntímabil í Suður-
Kóreu og vöruðu veðurfræðingar
íbúa svæðisins við því að allt að 12
cm gætu fallið næsta sólarhring-
inn en þá átti regnið að færast
suður á bóginn. ■
Bandarískir
stj örnufræðingar:
12 „tungl“
finnast
hjá Satúrnus
tuscon. arizona. ap. Stjörnufræð-
ingar í Arizona hafa staðfest að 12
tiltölulega smáir hlutir, sem sáust
fyrst fyrir tæpu ári síðan, séu á
óreglulegri braut í kringum
plánetuna Satúrnus. Ekki er talið
víst að um tungl sé að ræða. Al-
þjóðlegur hópur stjörnufræðinga
uppgötvaði þokukennda hlutina í
september á síðasta ári með því
að nota sérstaka stjörnukíkja með
stafrænum myndavélum. Telja
stjörnufræðingarnir hlutina vera
á billinu 6 til 32 kílómetrar í þver-
mál. Greint var frá uppgötvuninni
í tímaritinu „Nature." Ef hlutirnir
sem sáust eru í raun tungl, munu
tungl Satúrnusar verða 30 talsins,
sem eru flest tungl sem pláneta í
sólkerfi okkar hefur. Úranus, sem
STJARNA?
Þetta er ekki mynd af 12 tunglum Sat-
úrnusar heldur af fjarlægri stjörnu sem
hefur meiri massa en sólin. Stjarnfræðing-
ar hafa komist að raun um að stjarnan er
umlukin gufuhjúp en við sllkar aðstæður
er talið að llf geti þrifist. Rannsóknarstöð
bandarísku Smithson-stofnunarinnar í
stjarneðlisfræði birti myndina á föstudag.
er þriðja stærsta plánetan í sól-
kerfinu, hefur 21 tungl. ■
Bandarískir sjálfboðaliðar:
Pyndaðir í þágu vísindanna
vísinpi. Bandarískir sjálfboðaliðar
tóku nýlega þátt í óvenjulegri
rannsókn sem fólst í því að þeir
voru pyndaðir af vísindamönnum
sem voru að rannsaka hvers
vegna fólk bregst á mismunandi
hátt við sársauka. Sjálfboðalið-
arnir féllust á að sprautað yrði
saltvatni í kjálkavöðva sína í til-
raún til að líkja eftir sársauka-
fullu ástandi sem kallast „tem-
poro-mandibular joint disorder,“
eða liðamótakvilli í neðri kjálka.
Síðan var mælt hvernig heilinn
brást við sársaukanum. Ölíkt öðr-
um rannsóknum þar sem sársauki
sjálfboðalíða hefur veríð tak-
markaður við nokkrar sekúndur,
þá þurftu sjálfboðaliðar þessarar
rannsóknar, sem gerð var við há-
skólann í Michigan, að þola sárs-
aukann í alls 20 mínútur. í niður-
stöðum rannsóknarinnar, sem
birtar voru í vísindatímaritinu
„Science," kemur fram að mikill
munur hafi verið á því hvernig
sjálfboðaliðarnir brugðust við
sársaukanum og virtist sem hann
kæmi aðeins fram á ákveðnum
svæðum í heilanum. „Þetta gæti
útskýrt hvers vegna sumir eru
næmari fyrir sársauka en aðrir,“
sagði E»r. Jon-Kar Zubieta, sem
hafði úmsjón með rannsókninni, í
samtali við fréttavef BBC. ■
Breytingarskeiðið er ekki sjúkdómur heldur
náttúrulegt ferli í ævi kvenna.
Fylgikvillar hormónabreytinga þessa skeiðs
geta m.a. verið svitaköst, kvíði, þunglyndi
og svefnleysi. Mörg þessara einkenna orsakast
tvímælalaust af minnkandi hormóna
framleiðslu, en aðrir þættir hormónastarfsem-
innar koma eflaust einnig við sögu.
Úr náttúrunni má fá mild en afar virk efni
við þrautum sem fylgja þessum breytingum.
Kvennablómi er einstakt bætiefni sem
inniheldur úrval þessara náttúruefna. Soja
ísóflavon, stundum nefnd jurtaestrógen hafa
verið notuð með góðum árangri við svita-
kófum og öðrum þrautum kvenna á breyt-
ingarskeiði. Einnig benda rannsóknir til að
þau virki verndandi fyrir æðar og styrki bein.
Auk þess eru í Kvennablóma valdar jurtir
svo sem Dong Quai, villi-yam og salvía,
ásamt náttljósarolíu, drottningarhunangi,
vítamínum og steinefnum. Þetta er einstök
samsetning náttúruefna sem rannsóknir og
reynsla sýna að gagnist konum einstaklega
vel á þessu skeiði ævinnar.
Skólavörðustíg, Kringlunni & Smáratorgi
Kvenna »
blcmi m
Þrautalausar breytingar
hawungju
dagar
CITROÉN
16. júlí-3. ágúst 2001
Komdu fagnandi og gerðu góð kaup
Frábærai viðtökur
Nú höfum við afhent íoo. Citroén-
bílinn og í tilefni af því höldum við
Hamingjudaga Citroén í Reykjavík og á
Akureyri. Komdu og gerðu frábær kaup.
Hamingjutilboð
Kaupir þú Citroén Xsara eða Xsara
Picasso á Hamingjudögum fylgja álfelg-
ur, litaðar rúður, vindskeið og króm á
pústið með í kaupunum.
Citroen Xsara Picasso CitroenXsaia
bnmborg
Sérlega glæsilegur 5 dyra fjölnotabíli með
einstöku geymslu- og farangursrými.
Frábærir aksturseiginleikar, þétt veggrip
og seiðandi mýkt einkenna Citroén Xsara.
Re^lavik
Brímborg
Bddshöífta 6
Sfmi 515 7000
Akureyrl
Brímborg
Try ggvahraui 5
Sfmi 462 2700
www.brimborg.is
HORFÐUINYIA ATT-SIM)U OTRŒN
CITROÉN