Fréttablaðið - 16.07.2001, Síða 1
fólk
Siður
að launa
hjálpina
bls 8
HJALPARSTARF
SS-bolur
í Nígeríu
MENNING
Bönn
og ritskoðun
bls 18
• m í&’
una.net
s.
FRETTABLAÐIÐ
58. tölubiað - 1. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík - sími 515 7500 Mánudagurinn 16. júlí 2001
MANUDAGUR
Framtíð Kyoto-
bókunar ræðst
umhverfi Framtíð Kyoto-bókunarin-
anr kann að ráðast á ráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna, til að reyna að
tryggja framtíð hennar, sem hefst í
Bonn í dag og stendur til 27. júlí.
Samaranch víkur
ÓLYMPlULEIKflR Juan
Antonia Samaranch
hefur stýrt Al-
þjóðaólympíu-
nefndinni svo lengi
sem elstu menn
muna en í dag ætl-
ar hann að hætta og
verður eftirmaður hans kosinn á
fundi í Moskvu. bls. 14.
IVEÐRIÐ í DACI
REYKJAVÍK Fremur hæg
norðlæg eða breyrileg átt og
skúrir. Hiti 8 til 13 stig.
URKOMA HITI
Skúrir Q 9
Skúrir Q 9
Skúrir Q 9
Úrkoma QlO
VINDUR
ísafjörður O 5
Akureyri © 5
Egilsstaðir O 3
VestmannaeyjarO 5
Úlpa á Gauk
tónleikar Rokkararnir í hljómsveit-
inni Úlpu spila á Gauk á Stöng um
klukkan 22 og eru það einu tónleik-
arnir sem ráðgerðir eru á höfuð-
borgarsvæðinu í kvöld, eftir því
sem næst verður komist.
Nágrannar
eigast við
fótbolti Tveir leikir fara fram í
Símadeild karla. Á Hlíðarenda
mæta yalsmenn grönnum sínum í
Fram. í Keflavík taka heimamenn á
móti nágrönnum sínum, Grindvík-
ingum. Leikirnir hefjast klukkan 20.
|KVÖLDIÐ I KVÖLD!
Tónlist 18 Bíó 16
Lelkhús 18 Iþróttir 14
Myndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 18 Útvarp 21
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
FRÉTTABLAÐIÐ
Hvaða fréttamíðla notar fólk
á aldrinum 25 til 59 ára?*
|89% 88%
]<o r 5. JO
li [S
1*0 ■§
jl? § 0
22 5
67%
o
<0®
:0 .
64%
60%
c
c
'3
50%
<N
oð
«- CO
V) r_
Höfuðborgarbúar sem nota miðlana einhvern tímann
70.000 eíntö'T
70% íóiks !es biag ð
/2,D70 IDUM nUhUt/BUKl.
5 TIL 67 ÁRA LESA FRETTABLAÐIÐ AÐ MEÐALTALI SAMKVÆMTji
KÖNNUN PRICEWATERHOUSECOOPERS FRÁ JÚLÍ 2001.
Vann hjá Árna en
reikningur fór annað
Undirverktaki hjá Istaki segist hafa unnið þriggja daga verk í húsi þingmannsins. Þræðir liggja
víða saman hjá Árna Johnsen og Istaki sem hefur hefur fengið flest verkefni fyrir Þjóðleikhúsið.
samnincar „Nei, þetta er ekki
rétt“, sagði Arni Johnsen alþing-
ismaður þegar blaðið bar undir
hann frásögn heimildarmanns
blaðsins sem hefur greint frá því
að honum verið falið að vinna
þriggja daga verk við einbýlishús
Árna Johnsens alþingismanns í
Breiðholti, en í verklok hafi hon-
um verið tjáð að setja reikningin
á annað verknúmer í stað þess að
senda reikning til þingmanns.
„Hann er löngu búinn að greiða
þetta með gullmolum sem hann
hefur rétt Istaki", var skýringin
sem undirverktakinn fékk hjá
forráðamanni ístaks hf. sem á
þessum tíma vann að endurgerð
Bessastaðakirkju. Árni Johnsen
hefur sem forráðamaður við
byggingu Þjóðhildarkirkju á
Grænlandi, endurgerðar hússins
Landlistar á Skansinum í Vest-
manneyjum, byggingar Norsku
stafkirkjunnar á Skansinum og í
verkum fyrir Þjóðleikhúsið gert
samninga við Istak án útboðs.
Deilt var um þetta í bæjarstjórn
Vestmanneyja á sínum tíma þegar
húsið Landlist var endurbyggt, en
þá voru iðnaðarmenn verkefna-
litlir í Eyjum og vildi minnihlut-
inn í bæjarstjórn gefa þeim kost á
að bjóða í verkið. Það náði ekki
fram að ganga. Fram hefur komið
að á einu og hálfu ári hefur bygg-
inganefnd Þjóðleikhússins látið
framkvæmda fyrir 56 milljónir
og þar af hafa verk fyrir 46 millj-
ónir farið til ístaks án útboðs.
Árni Johnsen sagði í samtali við
útvarpið að ístak annaðist verkin
vegna þess hve Þjóðleikhúsið
væri illa farið. ■
MARGIR TIL I TUSKIÐ Um 100 krakkar á aldrinum 12 til 15 ára freistuðu þess í gær að fá hlutverk I stuttmynd sem gerð verður
við lag Sigur Rósar.
Óvæntur fundur í Egyptalandi:
Peres segir Israela
ekki hafa árás í hyggju
KAÍRÓ, AP. Shirnon Peres, utanríkis-
ráðherra ísraels, fullvissaði
Hosni Mubarak, forseta Egypta-
lands, um að ísraelar hefðu ekki í
hyggju að gera meiriháttar atlögu
að Palestínumönnum en fregnir
þess efnis hafa borist til ísrael-
skra fjölmiðla.
Peres og Yasser Arafat, leið-
togi í Palestínumanna, áttu óvænt-
an fund í Kairó í gær og ræddust
við í um klukkustund eftir að hafa
rætt við Mubarak í sitthvoru lagi.
„Hvorugur okkar vill frekari
blóðsúthellingar eða fleiri fórnar-
lömb,“ sagði Peres. „Ég yfirgef
Kaíró með von í hjarta.“
Þetta er fyrsta heimsókn ísra-
elsks ráðamanns til Egyptalands
síðan Arabaráðið ákvað í maí síð-
astliðinum að slíta öll stjórnmála-
tengsl við gyðinga.
Yfirvöld í Egyptalandi hafa
lýst yfir áhyggjum af að átökin
komi af stað allsherjarstríði í Mið-
Austurlöndum. ■
Sigur Rós leitar að
strák í stuttmynd:
Leitin
heldur áfram
tónustarmynpband í gær viðraði
vel til loftárása fyrir hljómsveit-
ina Sigur Rós sem í lok þessa
mánaðar tekur upp myndband við
samnefnt lag sitt. Að sögn Sigurð-
ar Kjartanssonar annars leik-
stjóra myndbandsins er hér um 10
mínútna stuttmynd að ræða og
leitað er að strákum og „stráks-
legum" stelpum í tvö aðalhlutverk
í stuttmyndinni, auk hópsenu með
tveimur fótboltaliðum.
Hljómsveitin auglýsti eftir
krökkunum í Morgunblaðinu á
föstudag og laugardag og mættu
um 100 krakkar til leiks í gær.
Hvert og eitt var myndað og tekið
í stutt viðtal. Krakkarnir áttu að
vera á aldrinum 12 til 15 ára og
var aldursdreifingin nokkuð jöfn.
Einn og einn forvitinn 11 og 16 ára
slæddust þó með, að sögn Sigurð-
ar og þó nokkrar stelpulegar
stelpur. „Leitin heldur áfram þar
til við finnum réttu leikarana,"
sagði Sigurður.
Meðlimir Sigur Rósar gátu
vegna anna ekki hitt krakkana í
gær. Hins vegar munu þátttak-
endurnir í myndbandinu fá að
hitta hljómsveitina síðar. ■
FÓLK
Litir og
glœsileiki
SÍÐA 16
(ÞRÓT
IBV sigraði i
Breiðablik *
ogFHÍA
SÍÐA 14
| ÞETTA HELST |
Islandssími er fyrsta fyrirtækið
sem Verðbréfaþing íslands
veitir undanþágu frá reglum sem
ætlað er að verja fjárfesta gegn
óstöðugleika hlutabréfa.
bls. 2.
49 manns voru handteknir í
óeirðum hvítra og asískra ung-
menna í Stoke í Englandi um
helgina. bls. 2.
Borgarstjóri gerir lítið úr þeir-
ri gagnrýni Vilhjálms Þ. Vil-
hjálmssonar að Reykjavíkurflug-
velli hafi verið bætt á síðustu
stundu inn í aðalskipulag sem
gilda á til 2024. bls. 4.