Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1981, Page 120

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1981, Page 120
124 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS hafi máske einhverntíma áður verið sel, á 18. öld, og þá ef til vill frá Skildinganesbændum. En um þetta verður nú ekkert fullyrt framar. Það virðist sem Guðmundur á Lágafelli hafi verið þarna með búsmala sinn (fráfæruær og kannski kýr) um næstu þrjú sumur. Þá fyrst er það sem sýslu- maðurinn svarar fyrrgreindu bréfi Guðmundar. Þar vitnar hann til úrskurðar amtmanns. Er Guðmundi þar bannað að byggja nokkuð við Fóelluvötn fyrr en hann sé búinn að fá útmælt land til nýbýlis. Bréf sýslumanns, dags. 1. des. 1825, er svohljóðandi: „Eftir að ég hafði sent amtinu bréf yðar til min um að útmæla yður jarð- arstæði upp í þeim svonefndu Fóelluvötnum, hefur hann svarað því á þá leið, að þar eð þér ekki hafið sannað það að yðar fyrirtæki að byggja í Vötnunum sé löglega lýst, eins og þér í bréfi til amtsins af 11. des. 1822 út- þrykkilega hafið sagt frá, að þér væruð búinn að gjöra þá ráðstöfun, að byggingaráformi yðar yrði þinglýst á hinni næstkomandi landsyfirréttar- samkomu, og þér þar hjá með því að byrja í Vötnunum með selstöðu og nokkurs konar útibú leyfislaust og án yfirvaldsins tilhlutunar, hafið breytt ólöglega og þvert á móti Jónsbókar landleigubálki, 43. og 46. kap. og þar með orsakað mæðu og mótsagnir, svo finni hann í þetta sinn enga orsök til að leyfa yður það umbeðna, en skylduð þér þrátt fyrir það forboð, sem þegar gjörð eru eða hér eftir kunna að verða gjörð, ekki vilja sleppa þessu yðar fyrirtæki, verður það öldungis að koma á þá skoðunargjörð sem á plássinu yrði að haldast, hvar hjá það hlyti af sjálfu sér að ef þar fengist að byggja, að nýbyggjarinn yrði að byggja þar reglulegan bóndabæ og rækta þar tún sem best verður, samt annaðhvort sjálfur búa þar eða eftir kring- umstæðum byggja jörðina öðrum. Eftir framanskrifuðum amtsins úrskurði hlýt éf því hér með alvarlega að fyrirbjóða yður að hafá frá næstkomandi vordögum nokkra selstöðu eða útibú í fyrrnefndu plássi, allt svo lengi sem þér ekki hafið fengið öðlast þar yðar löglega útmælt jarðarstæði.“ En þrátt fyrir þessi fyrirmæli og bann sýslumanns frá amtmanni virðist Guðmundur á Lágafelli ekki hafa viljað gefast upp við framkvæmdir sinar í Fóelluvötnum. Og næsta sumar, 1826, hefur hann flutt búsmala sinn suður eftir eins og undanfarin sumur. Tíminn líður nú fram til 8 júlí (1826). Þá send- ir sýslumaðurinn stefnuvottunum í Mosfellssveit eftirfarandi fyrirskipun til birtingar Guðmundi á Lágafelli.Færir sýslumaður hana jafnframt inn í bréfabók sína og nefnir ,,auglýsingu“. Hljóðar hún svo: „Jafnvel þó ég með bréfi af lta desembr. f.á. gæfi bóndanum Guð- mundi Guðmundssyni á Lágafelli til vitundar, að hlutaðeigandi amtmaður
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.