Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1981, Page 105

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1981, Page 105
INNSIGLI JONS SKÁLHOLTSBISKUPS 109 öld. Þá tekur líka við ný gerð, hin kringlótta (týpa 111), sem áður hafði tíðkast meðal veraldlegra höfðingja og í bæjarinnsiglum, svo að dæmi séu tekin.15 (Sjá 8. mynd). Nefna má til marks um hve áreiðanleg tímaákvörðun gerðar II er, að í erkibiskupsdæmi Niðaróss er það aðeins erkibiskup sjálfur, Árni Einarsson (1346-49), og biskupinn á Manareyju sem hafa i pússi sínu innsigli af þeirri gerð fyrir 1350. Þó er kirkjubyggingin, sem er einkenni þeirra, mjög svo vesæl miðað við þær sem seinna skreyta samskonar innsigli16 (4. mynd). Ef litið er á annan þátt í innsiglinu, þ.e. áletrunina, má þegar sjá nokkur atriði, sem benda til nálægðar við aldamótin 1400. Allir stafirnir fyrir utan h-ið eru upphafsstafir (majúsklar), en þeir eru svo að segja eingöngu notaðir í alls kyns áletrunum á fyrri hluta miðalda en eiga sér að sjálfsögðu rætur í hinni rómversku hefð. Upphafsstöfum má skipta í tvennt, þá rómönsku sem notaðir eru á tímabilinu 1100-1300 og hins vegar þá gotnesku, frá 1300 til 1400.17 Er áletrunin á innsigli Jóns einmitt af síðarnefndu gerðinni. Ýmsir stafirnir bera það einnig með sér að áletrunin sé frá seinni hluta 14. aldar. Fyrir utan h-ið í Jóhannes, er A án þverstriks og með striki yfir, ásamt hinu langdregna O-i og því að flestir stafirnir breikka til endanna og tvíklofna, dæmigerð einkenni hinna gotnesku stafa og atriði sem benda til nálægðar við 15. öldina.18 En rétt eins og innsiglisgerð II verður að víkja kringum eða upp úr 1400, þá hverfa upphafsstafirnir alfarið í skuggann, fyrir annarri stafagerð um 1400 eða i byrjun 15. aldar.19 Litlir stafir eða mínúsklar taka þá við og eru allsráð- andi til um það bil 1500, þegar byrjað er að nota stóra stafi á nýjan leik. Þó er það engin hörð regla að breytingarnar eigi sér stað árin 1400 og 1500. Þekkjast dæmi þess að notaðir hafi verið stórir stafir í áletrunum fram á 15. öld og litlir stafir nokkuð fram á 16. öldina.20 Af framangreindu má sjá að nokkur atriði benda til eindregið til þess að innsiglið sé i notkun eftir 1350 eða öllu heldur á tímabilinu um 1350 til 1400. Á þeim tíma, eða öllu heldur í byrjun hans og i lokin, sitja einmitt Jónar tveir í Skálholti. Jón þriðji til að byrja með og síðan einn Jóninn enn, nefnilega Jón biskup fjórði (1408-13). Svo vel vill til að strax er hægt að útiloka Jón þriðja, því á Árnastofnun í Kaupmannahöfn er varðveitt bréf sem er gefið út af honum og lýsir vígslu kirkjunnar að Alviðru í Dýrafirði 1344.21 Neðan úr því bréfi hanga aumar leifar innsiglis Jóns, en þrátt fyrir ásigkomulagið (3. mynd) má sjá að það líkist í engu þeim stimpli sem fannst í Árósum 1879. Öllu heldur er hér um að ræða innsigli af þeirri tegund sem algengust er fyrir 1350. Sjá má á því það ákveðna einkenni að biskup blessar þá sem á horfa, með upplyftri hægri hendi, og ef vel er að gáð má sjá reitaskiptingu að baki honum líkt og á innsigli Árna erkibiskups frá 1349 (sjá 4. mynd).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.