Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1949, Side 103

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1949, Side 103
105 Framhlið bæjarins í Fornu-Lá hefur snúið móti vestri. Bæjardyr eru allvíðar, 1 m fremst, en 1,40 m innst. Eru þær allar hellulagðar og stétt nokkuð fram úr dyrunum. Síðan tekur ,,Goðagangurinn“ við, en hann er í raun og veru ekki annað en gamall, hlykkjóttur lækjarfarvegur með möl í botni, og eru ekki á honum nein manna- verk. Úr bæjardyrunum liggja dyr til vinstri handar, 75—85 sm að breidd, inn í vistarveru, sem ég álít, að hafi verið fjós eða þá gripahús af einhverju tagi. Dymar eru lagðar stórum hellum, sem mynda þrep, því að húsinu hallar fram að bæjardyrunum. Breidd hússins er 2,80 m, lengd 3,75. Veggir allir eru hlaðnir úr grjóti. Eftir miðju húsinu er eins og básstokkur, og er lengd bása frá vestur- vegg fram á básstokk 1,25 m. Innst í básunum hafa verið flatar hellur, en stórir steinar á básstokk. Stórar hellur í flór og ræsi undir, sem liggur fram í gegnum dymar fram í ræsi það, sem þar er undir. I SV-horni eru fáar hellur, og hefur aska troðizt þar niður. Á norður- gafli eru dyr, alflóraðar, og munu kýrnar hafa gengið um þær, og um þær hefur hey verið borið frá hlöðu eða heystæði, en mjalta- konur áttu innangengt úr bæjardyrunum. Til hægri úr bæjardyrunum liggja dyr inn í stærsta húsið á bæn- um, 85 sm víðar. Stærð hússins er 6,0X2,75 m. I veggjunum öllum er mikið grjót og á gólfi þykkt lag af ösku (rauðleitri mó- ösku?). I NA-horni virðist eldur hafa verið kyntur, en ekki er þar þó verulegt eldstæði. Þetta hús mætti líklega kalla skála. Beint inn af bæjardyrunum liggja göngin, snoturlega hlaðin úr grjóti í 2—3 lögum. Göngin með bæjardyrunum eru 10 m að 1. og 75—100 sm að breidd. Þau eru lögð stórum hellum og holræsi undir að endilöngu. Aftan við framhús þau tvö, sem þegar hefur verið lýst, eru önn- ur tvö hús, hvort til sinnar handar. Dyrnar inn í húsið til hægri eru 60—75 sm breiðar, en húsið sjálft 2,25X3,85 m að stærð, og er þó skylt að geta þess, að þessi mál eru ekki alveg örugg, því að mjög erfitt er að glöggva sig til fulls á veggjum. I NA-horni, vinstra megin dyra, er hálfhringmynduð stó af stórum, elduðum steinum, og uppi í henni mikið af eldbrunnum, hnefastórum, lábörðum fjöru- steinum. Mikið af ösku og sams konar steinum lá í hrúgu framan við þetta eldstæði. Helzt verður að hugsa sér, að þetta sé baðstofa, íveruhús fólksins. Bendir eldstóin og eldaða fjörugrjótið einnig til hinnar fornu baðstofu? A móti baðstofunni, hinum megin við göngin, er eldhús, 3,0 X 3,5 m að stærð. I NA-horni eru ágætar hlóðir með venjulegu lagi, br.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.