Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Ukioqatigiit

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1949, Qupperneq 75

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1949, Qupperneq 75
79 Ekki verður með fullri vissu sagt, hver reisti fyrstur bú að Lækja- móti, né hvenær það hefur gerzt. I Landnámu segir, að Auðun Bjarnarson skökull á Auðunarstöðum hafi numið Víðidal og með honum hafi komið út í félagi hans, Þorgils gjallandi, en bústaðar hans er ekki getið í því sambandi, né heldur neins annars en Ás- geirs, sonar Auðunar, er byggt hafi í landnámi hans. Síðar segir í Landnámu, að Þorgils gjallandi hafi búið að Svínavatni. Hins vegar telur Bárðar saga Snæfellsáss, að Þorgils gjallandi búi á Lækjamóti í Víðidal. En hún mun, þótt tilbúin ýkjusaga sé að mörgu leyti, mjög hafa farið eftir gömlum landnámahandritum um nöfn og bústaði þekktra manna, en þau hafa um einstök atriði getað verið eitthvað fyllri en þau endurteknu afrit af gerðum Landnámu, sem nú eru til. Þótt Bárðar saga sé nú ein til frásagnar um þetta heimilsfang Þorgils, mælir öll aðstaða með því, að það geti verið rétt. Er ekki líklegt, að Auðun hafi látið félaga sinn þurfa að seilast til annarra héraða um búsetu, er hann sjálfur átti allan Víðidal. Hitt er líklegra, að hann hefði látið hann hafa rífan hlut af landnáminu og Þorgils þá reist bú að Lækjamóti, enda hafi til þess legið miklu stærra land en nú. Síðan hefði Þorgils, einhverra orsaka vegna, getað flutt byggð sína að Svínavatni og sé hans því þar getið í þeim kafla Landnámu, sem fjallar um austurhluta Húnavatnssýslu. En svo gæti einnig átt sér stað, að höfundar Landnámuhandrita þeirra, er til eru, hafi villzt í samnefnum og eigi við þann Þorgils gjallanda á Svínavatni, sem frá er sagt í Vatnsdælu. En það verður að teljast nær útilokað sam- kvæmt því, sem sagan getur um atburði og skyldleikaafstöðu hans, að það sé sami maður og sá Þorgils gjallandi, er út kom í félagi við Auðun skökul, sennilega þá sem fulltíða maður. Hitt er sanni nær, að Þorgils á Svínavatni hafi verið sonur Þorgils gjallanda á Lækjamóti eða sonarsonur. Það má því telja líklegt, að Lækjamót sé meðal fyrstu landnáms- jarða í Víðidal og landnámsmaðurinn hafi verið Þorgils gjallandi, félagi Auðunar skökuls. Að öðru leyti en þessu mun Lækjamóts ekki getið fyrr en á dög- um Þorvalds víðförla. Þar taldist hann búa 982—986. Frá Lækja- móti rak hann hið fyrsta kristniboð hér á landi, og þar byggði hann sína kristniboðskirkju. Mun hún byggð ári fyrr eða samtímis kirkj- unni að Ási í Hjaltadal og getur því talizt fyrsta kirkjan, sem reist var á Islandi í þágu almenns kristnihalds og með það að markmiði. Þá getur á Lækjamóti Þórarins spaka, er stundum er nefndur goði. Hann kemur mjög við Heiðarvígasögu, hafði fóstrað Barða
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.