Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1949, Side 20

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1949, Side 20
24 I landi Guðlaugsvíkur í Hrútafirði hefur verið hjáleiga, kölluð Guðlaugskot. Það væri fjarstæða að ætla, að kotið drægi nafnið líkt og víkin beint af Guðlaugi Iandnámsmanni. Það er vitaskuld hið sama og Guðlaugsvikurkot. Það getur þó vel verið, að víkin sé ekki held- ur kennd beint við þennan Guðlaug. Hann kvað hafa brotið skip sitt við Guðlaugshöfða, sem er litlu utar, og verið þá myrtur, svo að gera má ráð fyrir því, að víkin hafi með réttu heitið Guðlaugs- höfðavík. Hún er þó þegar í Landnámabók kölluð Guðlaugsvík. Eyvindarfjörður á Ströndum er kenndur við Eyvind Herröðarson, sem þar nam land. Ain, sem fellur í fjörðinn, heitir Eyvindarfjarðará og dalur hennar Eyvindarfjarðardalur. En langt inni í dalnum eða upp úr botni hans eru smávötn, sem kölluð eru Eyvindarvötn. Það er ólíklegt, að þau dragi nafnið beint af landnámsmanninum, og miklu líklegra, að þau hafi í upphafi verið kölluð Eyvindarfjarðardals- vötn eða Eyvindarfjarðarárvötn, en seinna verið felldir úr nafninu tveir innri liðirnir. Á svipaðan hátt virðist nafnið Dýrahvilft, sem merkt er á uppdrættinum í botni Dýrafjarðar, hafa verið stytt úr Dýrafjarðarbotnshvilft eða því um líku. I slíkum tilfellum liggur mjög nærri að tengja öll nöfnin beint við landnámsmennina og geta þess til, að Guðlaugur hafi verið myrtur, þar sem nú heitir Guðlaugskot, eða hann hafi átt þar í seli, að Eyvindur hafi verið heygður upp frá Eyvindarvötnum, vitaskuld til þess að geta litið yfir allt landnám sitt, og að Dýri hafi átt bústað í Dýrahvilft, eða þá svipað. Eg tel sennilegt, að nafnastyttingar af þessu tæi muni víða hafa villt menn til þess að hugsa upp skýringar, sem enginn fótur er fyrir. Þar sem fyrri nafnaliðirnir eru nöfn áa, kemur þó einnig annað til sögu, sem gat átt drjúgan þátt í styttingunum. Urriðaárborg gat hæg- lega orðið að Urriðárborg, svo stytt Urriðarborg og síðast Urriða- borg, án þess að liðurinn ár hafi hreint og beint verið felldur innan úr. Þannig er Laxármýri í Tjörneshreppi orðið að Laxamýri. Líkt getur verið með nafnsmyndirnar Húsárdalur og Húsadalur í Ófeigs- firði. Eignarfalls-r vill víða vera laust inni í nöfnum og falla niður, svo sem þegar má sjá á nafni höfuðstaðarins, sem var Reykjarvík í gamla daga, en er nú Reykjavík. Til þessa má tína saman ótal dæmi. f örnefnaskránum er í þessu mikil óreiða, og mörg nöfn stöfuð bæði með r og án þess. Af þessu stafar töluverður ruglingur, og það alls ekki í skránum einum, og ekki sízt þar, sem nöfn áa eiga í hlut. Sumstaðar ber á þessu þegar snemma á öldum. Það eru jafnvel allmörg dæmi þess, að dalir sýnast vera kenndir við nöfn áa og þessar ár samt aftur við óstyttu nöfn dalanna. Á norðvestur-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.