Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1949, Page 8

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1949, Page 8
12 Barðastrandarsýslu), og má á þessu sjá, að sjálfir smáblettirnir, þar sem torfið var grafið, hafa, þegar frá leið, sízt af öllu getað haldið nöfnum sínum. I stað lýsingarorðsins mikill hefur við myndun bæði örnefna og bæjarnafna, eins og á mörgum öðrum sviðum, snemma komið stór, og mikill er orðið sjaldséð í báðum nafnaflokkunum. Þó taldi eg 13 slík örnefni á norðvesturkjálkanum. Af þeim eru 5 Mikludalir, 1 Miklavatn og 1 Miklagil (stórt vatnsfall upp af Hrútafirði), sem öll má telja með meiriháttar nöfnunum, en auk þeirra þó 6 önnur nöfn, sem virðast vera lítilsháttar. Þau eru Miklagras, Miklihjalli, Mikla- holt, Miklutœr og tvennar Miklumýrar. Að öllum líkindum eru þessi nöfn einnig mjög gömul, að undanteknu þó Miklagrasi, sem líklega er slægju- eða hagablettur, þar sem sprettur mikið gras. Eg hef því miður vanrækt að skrifa upp úr skránum einnig öll sfór-nöfn, meðan eg átti kost á því, og get því aðeins bent á það, að á uppdráttum herforingjaráðsins eru merktir á svæði þessarar greinargerðar 5 Mikludalir, en enginn Stóridalur, nema þá Stóri-Laugardalur í Tálkna- firði. En hann er ekki dalur, heldur bær. Þar er aðeins einn dalur- urinn, en samnefnda bænum var skipt í tvennt, og heita býlin Stóri- og Litli-Laugardalur. En þar sem tveir dalir eru aðgreindir með þessu móti, heitir Miklidalur og Litlidalur. Af þessu má leiða, að dalirnir muni hafa hlotið nöfn sín fyrr en Laugardalsbænum var skipt eða almennt fór að tíðkast að aðgreina bæi með þessum hætti. Það ligg- ur í augum uppi, að þannig mun vera hægt að ráða mikið um aldur margra nafna, þegar nafnavenjur fyrri alda eru teknar til samanburð- ar og gætilega er farið að. Annað orð, sem orðið er úrelt, að minnsta kosti í myndun örnefna, er h j ö r ð. Hjarðar-nöfn eru fágæt. Eg fann á norðvesturskaganum aðeins 5, og eru þau öll meiriháttar örnefni. Þar eru 3 Hjarðardalir (í Dýrafirði og í Önundarfirði — í hvorumtveggja dal eru tveir sam- nefndir bæir — og í Króksfirði), 1 HjarSarnes (í Þverfjörðum) og 1 HjarSarfell (á mótum Stranda- og Dalasýslu). Árni Magnússon kallar þar að auki HjarSardal í landi Þernuvíkur í Ögursveit (Jarða- bók VII, bls. 203), en hann er nú kallaður Þernuvíkurdalur. Hann er lítill og fékk ekki haldið hinu gamla nafni sínu. Sem þriðja dæmi tek eg orðið reykur. Hverirnir voru á íslandi í upphafi kallaðir annaðhvort reykur eða laug, en reykur mun fljótt hafa lagzt niður aftur. Seinna bættist svo við hver. Langflest reyk- nöfn, sem hafa haldizt, eru annaðhvort nöfn gamalla bæja ellegar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.