Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1905, Side 84

Skírnir - 01.01.1905, Side 84
84 Ritdómar. Þorsteinn Gislason: Nokkur kvæði. Rvík 1904. [Prentxmiðja. Reykja- vikur]. Kverið lætur lítið yfir sér. Það er 64 bls. í litlu broti, í því eru 30 frumkveðin kvæði og stökur og 13 þj'dd kvæði. Eti beztu sötigfuglarnir eru oft litlir vexti og yfirlætislausir. Vér metum þá eftir röddinni, eti ekki eftir stærð þeirra og státi. Og í þessu kveri er hver tónn skrer og fagur. Skáldið kvtður hér eins og þeir sem bezt hafa kveðið um unað vorsins og sumarsins, um himiiiinn, sól- skinið, skóginn og fuglasönginn. Nálega helmiiurur kvæðanna er um þessi yrkisefni. I þeirn andar »sunnanvindur sumarhl vr, sól og vor um allan dalinn«, og það er sem vér heyrum er »fuglinn syngur sumarlag í sóltitrandi bláinu«. Allir læra uudir eins vísutia um vorhimininn: Þú ert fríður, breiður, blár og bjartar lindir þínar; þú ert víður, heiður, hár sem hjartans óskir mínar. A sumum kvæðunum er þjóðvísublær og eru þau hvað bezt: »Svarti fuglinn«, »Við hafið«, »Hrafninn«; í þeim er þjóðvísuuggur og þjóðvísuþrá. Einkennilegt og alvöruþrungið er kvæðið »Guðrún«. Þá eru, og kvæðin »Grafskrift« og »Eftirmæli« sérkennilegar og snjallar lýsingar. Þ/ðingarnar eru góðar. Þó kann eg ekki við að þ/ða »Træet« f kvæði Björnsons með »Björkin«, því björk merkir birki, og aldin bjarkarinnar er örsmá hnot, óæt með öllu og óboðleg ungri stúlku. Af ógáti hefir 6. erindið í kvæðinu »Upp yfir fjöllin háu« fallið burtu í prentuninni (»Mun eg þá aldrei, aldrei ná« osfrv.). Eg efast ekki um að kvæði þessi afli sér og höf. margra vina, og það eiga þau skilið. G. F.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.