Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1905, Side 2

Skírnir - 01.01.1905, Side 2
2 Kveðja Skírnis. Þá yrði lijer sýnt, aö svo mannast menn, að máttur vöðvans og tindam í senn œfist til samspils í œfinnar verki til afkasta og snarráðs. Sá veiki og sterki eiga þar hlutverk jafn háleit tvenn. Vort eldgamla kyn, méð fjeð og með framann, það frœgðist af dáð og af orðsnilld saman og œttir þess lifa í landinu enn. Með hágöfga fortið, sem horft er á bak, eitt hreysi er bœrinn og gnoðin sem fiak. Kú bindumst i fjelög—fað margfaldar máttinn. Svo magnast einn strengur við seinasta þáttinn, að tœkt vérður þúsund þáttanna tak. Og eins styrki samdýrkun trú vora og tryggðir og traust vort á reisn fyrir óðals vors byggðir, með hamranna veggi og himinsins þak. Og munum, ein hugmynd hötuð og snauð má hundruðum kenna að vinna. sér brauð. Vor bjargráð eru svo feimin og fœlin, þau farast af ótta við vana þrœlinn; sú kúgun, mín þjóð, skyldi kveðin dauð. Leys hegðun og mál þitt af hjegómans böndum, með hlýðni við lögin og fengdmn höndum í fjelagsins baráttu um ytH auð. Nemum hjer aptur landnámsins lönd, lifum upp söguna á feðranna strönd. Hlöðum á grundvöll af hjerlendri menning því heilbrigða, lífvœna í erlendri kenning, heimatryggir í hjarta og önd. Og köstum burt prjálinu’ úr lœrdómi landans, því lífið þarf vaxta af fjársjóðum andans og starfs, far sem mætist hugur og hönd.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.