Morgunblaðið - 15.08.2000, Síða 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
V*
HESTAR
í
X
Það voru mörg „fögn“ sem fóru milli fslendinganna á mótinu og hér fær
Jóhann G. varmar móttökur frá Vigni landsliðseinvalds eftir frækilega
frammistöðu hans og Hrannar frá Godemoor í fimmgangsúrslitum.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Grannt var fylgst með hverjum keppanda íslenska liðsins þegar í keppnina var komið. Hér sitja á rökstólum
Hulda Gústafsdóttir, Maríanna Gunnarsdóttir, Vignir Jónasson og OIil Amble og með þeim ráðgjafinn Bragi
Gústaf Hinriksson.
Norðurlandamótið í hestaiþróttum
Samstilltur
hópur sem skilaði
góðu dagsverki
segir Vignir Jónasson landsliðsein-
valdur að loknu móti
„MÉR fannst möguleikar á góðum
árangri nokkuð vænlegir fyrir mót-
ið þegar búið var að velja liðið.
Þetta voru flestallt reyndir knapar
sem hefur yfirleitt gengið vel þegar
á hefur reynt. Það var náttúrulega
vitað að Farsæll væri sterkur og því
ekki reiknað með öðru en sigri í
tölti og fjórgangi og það stóð allt
eins og stafur á bók. Sömuleiðis var
ég ánægður með ísak hjá Páli
Braga, hann virtist feiknagóður
þegar ég skoðaði hann fyrir mót.
Ég var nokkuð viss um sigur hjá
þeim í slaktaumatöltinu en ekki al-
veg eins viss með fimmganginn en
ég held að fsak hafi aldrei klárað
mót svona vel sem nú. Þeir stóðu
sig rosa vel eins og reyndar liðið í
heild sinni. Það má segja að allir
hafi skilað sínu besta eins og að-
stæður buðu upp á og samstilltur
hópur unnið gott dagsverk," sagði
Vignir Jónasson landsliðseinvaldur
að loknu móti í samtali við Morgun-
blaðið.
Aðspurður hvort ekki hafi verið
svekkjandi að verða af sigri í 250
metra skeiðinu sagði Vignir að
vissulega hefði verið gaman að fá
gullið þar en á það bæri að lfta að
Svíar væru orðnir geysilega sterkir
í skeiðgreinum eins og árangur
þeirra sýndi vel á mótinu. Hann
benti á að klárinn hjá Sigurði
Óskarssyni, Elvar Sig frá Búlandi,
hefði helst og ekki beitt sér sem
skyldi og að lokum hefði orðið að
draga hann úr keppni. Þá segir
Vignir að Eitill hafi skilað góðum
tfma sem bara hreinlega dugði ekki
til.
„Það er athyglisvert að þessir
sterkustu hestar Svía koma allir frá
sama staðnum og eru Magnús
Skúlason og Anna kona hans lykil-
menn í þessari sterku stöðu Svía í
skeiðinu. Einnig má geta þess að
Svíar eiga einn sterkan hest heima
sem kom ekki á mótið sem er Þór,
Magnusar Lindquist. Og þegar Örv-
ar hans Magnúsar fær fjóra mögu-
leika er ekki að sökum að spyrja,
hann fer helst ekki yfir 22 sekúnd-
urnar þegar hann liggur.
Ég er mjög ánægður með
frammistöðu Jóhanns G. og Hrann-
ar. Þetta er ung hryssa sem gerði í
raun meira en hægt var að ætlast til
af henni. Þau eru með samanlögð
stig sem yfirleitt duga vel til sigurs
á flestum mótum en klárinn hennar
Önnu Skúlasonar, Mjölnir frá Dal-
bæ, er injög sterkur í fimmgangi og
með þessa miklu skeiðgetu er erfítt
að stöðva hana í samanlögðu,“ seg-
ir Vignir.
Hann kveðst afar ánægður með
frammistöðu krakkanna sem leystu
mjög erfítt verkefni vel af hendi,
eiginlega mun betur en hægt var að
ætlast til af þeim. Þeir hestar sem
þau fengu lánaða reyndust alls ekki
í því formi sem lofað hafði verið. Til
dæmis var hestur sem Einar Ey-
steinsson átti að fá ekki keppnis-
hæfur og varð fá annan hest. Ég
reifaði við fulltrúa hinna þjóðanna
að skráningarreglur hesta fyrir ís-
lensku krakkana yrðu rýmkaðar
þannig að við þyrftum ekki að til-
kynna hvaða hross þau mæta með
fyrr en á síðustu stundu og var vel
tekið í það af öllum enda skilja allir
vel þessa erfiðu stöðu sem við erum
í. Það að vinna tvö gull f yngri
flokkum auk annarra verðiauna er í
raun frábær árangur við þessar að-
stæður," segir hann ennfremur.
En hvemig var að spreyta sig á
þessu verkefni?
„Ég vissi svo sem ekki alveg hvað
ég var að fara út í,“ segir Vignir og
brosir „en þetta gekk sérdeilis vel,
mórallinn í hópnum var einstaklega
þægilegur. Allir voru tilbúnir að
leggja sig frarn til að allt gengi sem
best upp. Ég gaf það strax út að ég
myndi ekki vakta hópinn eins og
lögregluhundur, allir þekktu reglu-
rnar og menn yrðu að sýna að þeir
væru traustsins verðir og ég væri
einn af hópnum þangað til einhver
vandamál kæmu upp sem aldrei
varð í þessu ágæta samfélagi sem
við lifðum í í eina viku,“ sagði Vign-
ir í lokin hæstánægður með vel
heppnaða sigurför.
■i-
*
Enn ein sigurförin
til Seliord
Enn á ný fara íslending-
ar sigurför á Norður-
landamót í hestaíþrótt-
um sem nú var haldið á
þeim ágæta stað Seljord
í Noregi. Sex gull unn-
ust á mótinu og voru ís-
lendingar með bestu út-
komu allra þjóða í
fullorðinsflokki.
Valdimar Kristinsson
fylgdist með keppninni
tvo síðustu dagana sem
mótið stóð yfír.
VIGNIR Jónasson getur vel við un-
að í sinni frumraun sem landsliðsein-
valdur og líklega hægt að segja að
uppskeran hafi verið í góðu sam-
ræmi við það sem til var sáð. Árang-
ur liðsins mjög glæsilegur í harðn-
andi keppni Norðurlandamótanna.
Til dæmis voru Svíar mjög sterkir í
skeiðgreinum og hirtu nánast öll
gullin sem þar voru í boði en öll gull
hringvallarins í fullorðinsflokki féllu
íslendingum í skaut. En heilt yfir
tekið hlutu íslendingar sex gullverð-
laun, átta silfur og þrjú brons. Svíar
Tvenn gullverðlaun og glæsilegur sigur í fimmgangi eftir æsispennandi
keppni var ærið tilefni fyrir Pál Braga til að veifa fslenska fánanum á
sigurhringnum með ísak frá Eyjólfsstöðum.
Hinrik Þór Sigurðsson er í mikilli framför um þessar mundir og nú
sýndi hann að f honum býr efnilegur skeiðreiðamaður en hann sigraði f
gæðingaskeiði á Frey frá Þóroddsstöðum.
Norður-
landamót 1
hestaíþrótt-
um - úrslit
Fullorðnir
Tölt
1. Hinrik Bragason, íslandi, á Farsæli frá
Amarhóli, 7,87/8,33
2. Johan Hággberg, Svlþjóð, á Aski frá Hák-
ansgárden, 7,10/7,72
3. Stian Petersen, Noregi, á Trú frá Wets-
inghe, 7,20/7,44
4. Ylva Hagander, Svíþjóð, á Mekki frá
Varmalæk, 7,23/7,33
6, Egill Þórarinsson, íslandi, á Glaumi frá
Vallanesi, 6,93/7,28
6. Mette Logan, Danmörku, á Austra frá
Austurkoti, 7,00/6,83
Fjórgangur
1. Hinrik Bragason, íslandi, á Farsæli frá
Amarhóli, 7,17/7,70
2. Stian Petersen, Noregi, á Trú frá Wets-
inghe, 7,20/7,37
3. Kari A Strömmen, Noregi, á Kjarki frá
Homi, 6,60/7,17
4. Nicole Bergmann, Finnlandi, á Bmna frá
Súluholti, 6,53/6,83
5. Reynir Aðalsteinsson, íslandi, á Hrana
frá Snartarstöðum, 6,83/6,73
6. Jennie Lindberg, Svíþjóð, á Koli frá Vind-
ang, 6,60/6,57
7. Anne Pedersen, Noregi, á Heljari frá
Skíðbakka, 6,60/6,50
Fimmgangur
1. Páll B. Hólmarsson, íslandi, á ísak frá
Eyjólfsstöðum, 7,17/7,62
2. Jóhann G. Jóhannesson, íslandi, á Hrönn
frá Godemoor, 6,93/7,31
3. Gylfi Garðarsson, Noregi, á Hvata frá
Hrappsstöðum, 6,90/7,24
4. Johan Hággberg, Svíþjóð, á Aski frá HSk-
ansgárden, 6,93/7,21
5. Jóhann R. Skúlason, íslandi, á Þyti frá
Hóli, 6,87/6,90
6. Nils C. Laren, Noregi, á Hlekki frá Stóra-
Hofi, 6,60/6,79
Slaktaumatölt
1. Páll B. Hólmarsson, íslandi, á ísak frá
Eyjólfsstöðum, 7,40/7,75
2. Liisa Hildén, Finnlandí, á Viljarí frá
Skarði, 5,67/6,96
3. Fredrik Rydström, Svíþjóð, á Gesti frá
Stallgárden, 6,13/6,68
4. Jóhann G. Jóhannesson, íslandi, á Hrönn
frá Godemoor, 6,40/6,54
6. Anna Skúlasonf Svíþjóð, á Mjölní frá Dal-
boe, 6,07/6,29
6. Jens Kasperczyk, Danmörku, á Eik frá
Litlu-Sandvík, 5,80/6,17
7. Apes H. Helgadóttir, Svíþjóð, á Thor frá
Nerböen, 5,80/6,13
Gæðingaskeið
1. Johan Hággberg, Svíþjóð, á Aski frá Hák-
ansgárden, 7,79
2. Jóhann G. Jóhannesson, íslandi, á Hrönn
frá Godemoor, 7,67
3. Leif A. Ellingseter, Noregi, á Skorra frá
Kílhrauni, 7,17
4. Anna Skúlason, Svíþjóð, á Mjölni frá Dal-
bæ, 7,17
5. Nils C. Larsen, Noregi, á Hlekki frá
Stóra-Hofi, 7,04
6. Jóhann R. Skúlason, íslandi, á Þyti frá
Hóli, 7,04
250 metra skeið
1. Magnús Skúlason, Svíþjóð, á Örvari frá
Stykkishólmi, 21,5 sek.
2. Anna Skúlason, Svíþjóð, á Mjölni frá Dal-
bæ, 22,0 sek.
3. Leif A. Ellingseter, Noregi, á Skorra frá
Kílhrauni, 22,4 sek.
4. Hulda Gústafsdóttir, íslandi, á Eitli frá
Akureyri, 22,7 sek.
100 metra flugskeið
1. Magnús Skúlason, Svíþjóð, á Örvari frá
Stykkishólmi, 7,6 sek.
2. Anna Skúlason, Svíþjóð, á Mjölni frá Dal-
bæ, 7,6 sek.
3. Hulda Gústafsdóttir, íslandi, á Eitli frá
Akureyri, 7,6 sek.
4. Rune Svendsen, Noregi, á Hug frá Stóra-
Hofi, 7,8 sek.