Morgunblaðið - 15.08.2000, Side 26

Morgunblaðið - 15.08.2000, Side 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 2000 ERLENT MORGUNBLADIÐ AP Úkrafnsk kona á bæn fyrir utan Kristskirkjuna í Moskvu í gær. Heldur konan á fkonamyndum af Maríu mey og Nikulási öðrum. Kohl fjarri há- tíðarhöldum Berlín. AFP. HELMUT Kohl, fyrrverandi kanzl- ari Þýzkalands, verður ekki við- staddur opinber hátíðarhöld í Dresden hinn 3. október næstkom- andi, þegar rétt 10 ár verða liðin frá sameiningu þýzku ríkjanna tveggja. Kohl hafði verið boðið til hátíðar- haldanna aðeins sem gesti, ekki sem ræðuhaldara. Á undan þessari ákvörðun Kohls höfðu verið uppi háværar deilur um þá ákvörðun að fá Kohl, „kanzlara sameiningarinnar", ekki til að halda ræðu á 10 ára sameiningardaginn. Höfðu nokkrir forystumenn Kristi- legra demókrata, CDU, hótað því að sniðganga hátíðarhöldin sem fram eiga að fara í Dresden í Saxlandi, þar sem Kurt Biedenkopf, gamall innanflokksandstæðingur Kohls, ræður ríkjum sem forsætisráðherra. Gagnrýndu CDU-menn - Volker Riihe, einn varaformanna flokksins þar á meðal - þá ákvörðun að bjóða Lothar de Maiziere, sem var síðasti forsætisráðherra Austur-Þýzka- lands, að halda hátíðarræðu. Ostað- festar ásakanir þess efnis, að de Maiziere hefði á árum áður látið hafa sig út í samstarf við austur- þýzku öryggislögregluna Stasi, varð sumum CDU-mönnum tilefni til að ásaka aðstandendur sameiningar- dags-hátíðarhaldanna um að beita tvöföldu siðgæði við valið á ræðu- mönnum dagsins. Auk de Maizieres hefur núverandi forsetum Þýzka- lands og Frakklands, Johannesi Rau og Jacques Chirac, verið boðið að halda hátíðarávörp. Situr málþing flokksstofnunar í yfírlýsingu Kohls í gær, þar sem hann greindi frá þeirri ákvörðun sinni að mæta ekki á hátíðarfundinn 3. október, segir að hann vilji með þessari ákvörðun leggja sitt af mörkum til þess að dægurþras stjómmálanna skyggi ekki á hátíð- arhöldin á sameiningardeginum. Hann muni sjálfur, óháð því sem fram fer 3. október, taka þátt í mál- þingi um þemað „Sameinað Þýzka- land í tíu ár“, sem Konrad-Adenau- er-Stiftung (fræðastofnun tengd CDU) mun standa fyrir í Berlín í lok september. Heilagur Nikulás Hague vill lífstíðardóma Taktu þátt í sumarmyndaíeik sem Caiton og (0>NÝHERJI standa fyrir á mbl.is og sendu myndirnar þínar inn. v|| Glæsilegir vinningar eru í boði fyrir skemmtilegustu myndirnar. ÞINAR MYNDIR A mbl.is RÚSSNESKA rétttrúnaðarkirkjan tók í gær síðasta keisara Rússlands, Nikulás annan, og fjölskyldu hans, í dýrlingatölu, að því er fréttastofan Interfax greindi frá. Var þetta ein- rúma samþykkt á fundi í biskupa- ráði kirlqunnar er haldið var í Moskvu. Nikulás og fjölskykla hans var skotin til bana í Jekaterínborg í Úralfjöllum 17. júlí 1918 af bolsév- ískum byltingarmönnum. Jarð- neskar leifar fjölskyldunnar fund- ust eftir fall Sovétríkjanna 1991 og voru grafnar aftur fyrir tveim ár- um í Pétursborg, sem var höfuð- borg rússneska keisaradæmisins. Alexei II, patríarki kirkjunnar, sagði að taka ætti keisarann í tölu heilagra vegna þess hvemig andlát hans hafi borið að, en ekki vegna gjörða hans. fyrir barnaníðinga London. Daily Telegraph. í BRETLANDI gætu barnaníðingar átt von á lífstíðardvöl bak við fang- elsismúrana nái tillögur Williams Hagues, formanns breska íhalds- flokksins, um breytingar á lögum um meðhöndlun andlega sjúkra glæpa- manna fram að ganga. Grein eftir Hague birtist í blaðinu Sunday Tim- es og hefur henni verið vel tekið af bresku stjórninni sem sagði tillög- umar gagnlegt innlegg í umræðuna um endurskoðun laganna. Að sögn John Prescott aðstoðarforsætisráð- herra hafa tillögur Hagues nú þegar verið teknar til athugunar. „Komist stjornmálaflokkamir að samkomulagi um endurskoðun lag- anna þá væri það kærkomið. Slíkt veitir gjörólíkt andrúmsloft frá því sem við höfum séð í Portsmouth," sagði P’rescott og vitnaði þar til múg- æsings sem varð í húsahverfinu Paulgrove í Portsmouth í síðustu viku í kjölfar nafnabirtingarherferð- ar dagblaðsins News of the World. í tillögum sínum bendir Hague á fjórar leiðir til að auka aðhald með barnaníðingum. Lífstíðarfangelsis- dómur ætti að bíða þeirra, en slíkt sagði Hague tryggja að yrðu ein- hverjir barnaníðinganna látnir lausir þá yrði það samkvæmt lagaheimild sem gerði yfirvöldum kleift að fylgj- ast með þeim áfram. Þá yrði þeim sem látnir yrðu lausir bannað að setja sig í samband við fómarlömb sín eða að búa í nágrenni við þau. Hague lagði einnig til að rafrænu merki yrði komið fyrir á þeim barna- níðingum sem látnir yrðu lausir og að fylgst yrði með þeim í yfir áratug. Enn fremur skyldu þeir Bretar sem sakfelldir yrðu erlendis neyddir til að skrá sig hjá breskum yfirvöldum við komuna tÚ landsins. í skrifum sínum fordæmdi Hague ofbeldisaðgerðimar og múgæsing- inn sem ríktu í Portsmouth í síðustu viku. „Hversu sterkar og skiljanleg- ar sem tilfinningar foreldra í Pauls- grove húsahverfinu í Portsmouth era, þá er múgæsing ekki forsvaran- leg. Hana fordæmi ég ekki einungis af því að saklaust fólk hefur verið gert að fórnarlömbum, heldur einnig af því að friður og öryggi velta á því að lögum sé íylgt eftir,“ sagði Hague. Getur leitt til færri sakfellinga Paul Cavadino, yfirmaður stofn- unar sem sér um málefni fanga, var ekki alls kostar sáttur við tillögur Hagues. „Það era sterk rök fyrir hertari dómum sem kveðnir era upp til óákveðins tíma í málum bamaníð- inga. Það á hins vegar að vera hlut- verk dómstóla að úthluta þeim,“ sagði Cavadino. Hann varaði við því að biði bamaníðinga sjálfkrafa lífs- tíðar fangelsisvist kynni það að leiða til þess að hinir ákærðu yrðu síður viljugir að játa sem gæti leitt til auk- innar hættu fyrir börn. „Lýsi færri yfir sekt sinni, þá kunna fleiri barna- níðingar að vera úrskurðaðir sak- lausir af dómstólum.“ STAFRÆNN LJÓSMYNDALEIKUR á mbl.is Clinton íhugar friðarfund BILL Clinton Bandaríkjafor- seti mun bíða með að ákveða hvort hann boði til annars frið- arfundar með leiðtogum Pal- estínumanna og Israela uns sendifulltrúi Bandaríkjanna hefur rætt við samningamenn beggja aðila, að því er ísraelsk- ur embættismaður sagði í gær. Fulltrúi Clintons, Dennis Ross, mun halda til Mið-Austurlanda innan nokkurra daga og ræða við samningamenn um það hvort þeim hafi tekist að færast nær samningum en þeir vora er fundurinn í Bandaríkjunum í síðasta mánuði fór út um þúfur. Svínafár í Bretlandi DÝRALÆKNANEFND Evr- ópusambandsins mun koma saman í næstu viku til þess að ákveða til hvaða ráðstafana skuli gripið vegna svínafárs sem komin er upp í Bretlandi. Belgar og Hollendingar, sem hafa bannað innflutning á lif- andi svínum frá Bretlandi, fóra fram á að fundurinn yrði hald- inn. Spánverjar hafa einnig bannað innflutning og franskir bænur krefjast þess að þar í landi verði sett samskonar bann. Strokufangi náðist FANGI sem slapp úr hámarks- gæslufangelsi með því að keyra 18 hjóla vörabíl í gegnum girð- ingu hefur náðst aftur eftir að hafa leikið lausum hala í um það bil viku. Fanginn slapp úr Huntsville-fangelsinu í Texas, og er hann kom út fyrir fangels- isgirðinguna ók hann á brott í bfl með konu sinni, sem hafði beðið eftir honum. Sex dögum síðar, eða sl. sunnudag, fundust hjónakornin í felum í skóglendi aðeins um 15 km frá fangelsinu. Fanginn, Terry Rhodes, hafði afplánað tvö ár af 45 ára fang- elsisdómi fyrir innbrot á heimili og nauðgun í Texas. Líklegt er að hann sæti nú frekari ákær- um. Flóttamenn handteknir LÖGREGLA í Tyrklandi hefur handtekið 250 ólöglega flótta- menn sem vora flestir að reyna að komast til Evrópusambands- landa, að því er tyrkneska fréttastofan Anatolia greinir frá. Voru þeir að reyna að kom- ast frá Tyrklandi yfir landa- mærin til Grikklands. í hópnum voru m.a. Palestínumenn, íran- ir, írakar og Azerbædsjar. Á hverju ári reyna þúsundir manna frá Mið-Austurlöndum, Asíu og Austur-Evrópu að komast til Grikklands í gegnum Tyrkland. Reyna margir að komast til annarra Evrópu- sambandslanda. Fjögur hjól sprimgu ENGAN sakaði er fjögur af sex hjólum á Boeing 737-400 þotu Malaysian Airways sprangu í lendingu í Kuala Lumpur á sunnudagskvöld. 130 farþegar vora með vélinni, og gengu þeir frá borði án vandræða.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.