Morgunblaðið - 16.04.2000, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000 B 23
Dagbók frá Amman
Amman þenst út og gamli
miðbærinn er að færast til
EN UM annað var ekki að
ræða þar sem dvalarleyfi
fékkst ekki framlengt af því
sýrlenskur orðhákur hafði látið
heyrast á röngum stað að ég hefði
skrifað greinar frá Sýrlandi. Það
þurfti ekki meira til.
Þó tel ég að Sýrlendingar geti
ekki haldið því til streitu að vera ut-
an almennrar framvindu í fjarskipt-
um. Netið kemur hvort sem það
verður löglegt til að byrja með eða
ekki og með gervihnöttum ná Sýr-
lendingar fréttum sem þeir höfðu
ekki grænan grun um að hefðu átt
sér stað. Enda á þessi þjóð betra
skilið en hún sé leikin eins og er á
mörgum sviðum nú. Það gekk prýði-
lega að komast yfir sýrlensku landa-
mærin. Landamæraverðirnir höfðu
ekkert að gera nema afgreiða mig
svo við fórum í landafræðileik og ég
leyfði þeim að sjá mína athyglis-
verðu rithönd á arabísku og er það í
fyrsta skipti sem ég hef orðið vör við
að hún hafi vakið aðdáun.
Mér varð hugsað til þess þegar við
vorum að keyra frá Damaskus í átt
til landamæranna, að þeir hafa ný-
lega skipað umhverfisráðherra og
segjast fyrstir Araba til þess, hvort
sem það er sannleikanum sam-
kvæmt eða ekki. En þegar maður
sér ruslahaugana og plastpokana og
draslið, þá hugsar maður ósjálfrátt,
hvernig væri að fara með umhverfis-
ráðherrann í skoðunarferð um land-
ið. Svo gæti hann virkjað þessar
tvær milljónir sem eru sagðar vera í
leyniþjónustunni eða tengslum við
hana og landið yrði eins og nýtt.
Það lék um landið sól og
sumarylur og eins og
Jóhanna Kristjónsdótt-
ir hefur áður tekið fram
var það ekki með neinni
kæti að haldið var á
brottu. Víst hafði alltaf
staðið til að heimsækja
góða vini í Jórdaníu en
gert var ráð fyrir að síð-
an yrði horfíð á ný til
Damaskus og þráðurinn
tekinn upp.
Eftir að lokið var umræðum okkar
félaganna við sýrlensku landamærin
og harmkvælum þeirra yfir því að ég
ætlaði ekki að koma til baka í þessari
ferð var farið um væna spildu lands
uns komið var að þeim jórdönsku.
Þar var líka allt rólegt og ekkert að
Kíktuá
skíðafærið
ESSO hefur komið
myndavélum fyrir á
helstu skíðasvæðunum
og nú getur þú kannað
skiðafærið með eigin
augum á www.esso.ls
FliVilí
jí l.UH!
andlitsböð
mðjan
(f Wmutlis
'Uztístirjja
© Skipholti 70 ♦ sími 553 5044
Aðsendar greinar á Netinu
v^mbl.is
-ALLTAT £!TTH\SAG NÝTT
Ath. Lokoð laugordag fyrir pósko.
Fífd
ALLT FYRIR BÖRNIN s. 552 2522.
Fáðu tækin til að breyta lífi þínu
á lýðháskóla þar sem þú lærir aðferðir til að takast á við lífið og
finna gleði, ást og sjálfsvirðingu!
Skólinn er fyrir alla sem vilja þroska sjálfa sig!
16 og 20 vikna námskeið, auk 2 vikna námskeiða, sem þú getur raðað saman eins og best
^ hentar þínum tima. Kennslan fer fram á léttri dönsku. ★
★ Nemendur eru á öllum aldri, 18-80 ára, en meðalaldur er 42 ár.
★ ★ Verð (lengri námskeiö): 650,- dkr. á viku. *
★ Verð (styttri námskeið): 760,- dkr. á viku.
Innifalið í verði er kennsla, fæði, húsnæöi og kennsluefni.
Hægt er að sækja um styrk hjá Norðurlandafélaginu (Foreningen Norden).
Pú getur lesið meira um skólann á www.vhd.dk!
Kærar kveðjur frá
VÆKSTH0JSKOLEN DJURSLAND
gerast og skotgekk að koma mér í
gegn.
Maður sér mikinn mun á því hvað
Jórdanía er hreinlegra land og ég
tala nú ekki um flest hverfi Amman
þótt þar séu sjálfsagt einhverjar
skuggahliðar.
Stefanía Khalifeh ræðismaður
okkar var ekki sein á sér að sækja
mig og drífa mig heim til sín. Það var
gott að hitta þau hjón og son þeirra
og þar er gestrisnin og vinsemdin
söm og jöfn. Það var gaman að geta
horft á alls konar fréttir um kvöldið.
Allt mögulegt var að gerast og ég
var bara eins og Sýrlendingur og
vissi ekki meir.
Mér heyrist og sýnist að Abdúllah
kóngur standi sig með prýði og láti
sig varða ótal framfaramál. Sama
máli gegnir um Röniu konu hans.
Þau hjón höfðu verið lítt áberandi
áður og það er ekki víst að margir
hafi búist við að Abdúllah - þó elsti
sonur sé - yrði kóngur. En hann er
út og suður, vill efla atvinnu og
tækni, bæta stirð samskipti við Sýr-
lendinga. Allt tekur tímann sinn en
þetta virðist vera maður sem tekur
starf sitt alvarlega og vill virkilega
leggja sitt af mörkum. Að mínu viti
er hann fullmikið áberandi, það hef-
ur hvarflað að mér þessa daga að
þjóðinni hafi ekki verið gefið virki-
legt ráðrúm/svigrúm til að syrgja
Hussein kóng sem sannarlega - ekki
síst á seinni árum hans var dáður af
fólkinu hvar í stétt sem það stóð. Það
þarf að fara mjög varlega í slíkum
málum.
Mér finnst Amman þenjast út
enda eru fimm ár síðan ég var hér
síðast. Gamli miðbærinn er að fær-
ast á nýjan stað og sá sem áður var
iðandi kös fólks er nú röð hálf- eða
aldauðra smáverslana. En samt: í
dag fór ég á kaffibókastað eða bók-
affistað í þessum hluta bæjarins. Sú
búð lifir góðu lífi. Þangað koma
bóka- og kökuvinir og sameinast í
áhuga á hvorutveggja. Og þaðan var
fagurt útsýni yfir hluta Ammans
sem streymir eins og breitt fljót nið-
ur hæðirnar.
E-vítamín
er öflug vörn fyrír
frumur líkamans
I náttúrulegal
Iheilsuhúsið
Skólavörðustíg, Kringlunni & Smáratorgi
Falleg oggagnleg fermmgargjöf
Ensk-íslensk orðabók
34.000 ensk uppflettiorð
íslensk-ensk orðabók
35.000 ensk uppflettiorð
2.200 blaðsíður
Samati í fallegri gjaíaöskju
á aðeitis
4.590 krónur
Gagnleg og glœsileg fermingargjöf sem nýtist vel í nútíð og framtíð.
Fæst hjá öllum bóksölum.
ORÐABÓKAÚTGÁFAN
Sunddalvej 1 - Ginnerup - 8500 Grená - Danmörku
Sími: 0045 8633 9188. Fax: 0045 8633 9167.
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★*
%h
céssomf
t Grensásvegi 16
r (inni í portinu)
Sprenghlægilegt verð!
Skart 09 klútar kr. 150 - Töskur kr. 500 -
Regnhlífar 09 sölgleraugu kr. 200 -
Hufur 09 hattar kr. 500-1000 - Buxur kr. 1000 -
Pils frá kr. 800-1.500 - Kjölar fra 1.250-3.000 -
Stutterma jakkar kr. 2.000 - Síðerma jakkar kr. 2.500
Opið alla daga frá kl. 12-18