Morgunblaðið - 16.04.2000, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000 B 15
ir stöðu mála. Skepnur tóku að falla
úr hor um miðjan janúar. Nú eru
412.800 dýr dauð eða um 14% heild-
arfjöldans í héraðinu. Um 9.000 fá-
tækar fjölskyldur eru að missa lífs-
afkomuna sökum vetrarkuldanna
eða „dzúd“. Uppbygging síðustu
þriggja til fimm ára er orðin að engu
og önnur þrjú til fimm ár mun taka
að bæta skaðann. Óttast er að allt að
700.000 skepnur muni falla úr hor í
þessu eina héraði þegar afleiðingar
„dzúd“ ná hámarki í maí. Það er um
þriðjungur búpeningsins í héraðinu.
Sumar fjölskyldur gætu misst allt að
helming skepna sinna. „Matarskort-
ur er yfirvofandi,“ segir Batmúnkh
héraðsstjóri. „Hinir fátækari munu
jafnvel líða hungur,“ bætir hann við
og segir afkomu íbúa héraðsins nú að
stórum hluta komna undir þeirri að-
stoð sem berist erlendis frá.
Sauðburður stendur yfir fram til
20. apríl. Veikburða skepnur geta af
sér veikburða afkvæmi og í þeirri
staðreynd birtist ein langtímaafleið-
inga ótíðarinnar miklu. Dýrin skortir
fóður og næringu og frá starfsmönn-
um Þróunarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna heyrum við að aðstoðin er-
lendis frá miðist við það að halda lífi í
dýrunum því þannig verði lífinu einn-
ig haldið í fólkinu. „Deyi skepnumar,
deyr fólkið,“ segir O. Batmúnkh hér-
aðsstjóri og má segja að þessi ein-
falda speki feli í sér kjama tilveru
hirðingjans. Örlög manna og dýra
em eitt og hið sama. Jafnvægi í nátt-
úranni tryggir afkomu manna og fer-
fætlinga. Raskist það er voðinn vís.
„Dzúd“ er þó fióknara fyrirbrigði
en svo að þessi lýsing dugi. Smám
saman skýrist myndin og henni fylg-
ir gleggri skilningur á lífinu í Mongó-
líu og þeim breytingum sem riðið
hafa yfir samfélagið á síðustu tíu ár-
um. „Dzúd“ er nefnilega fremur
regla en undantekning og sá skortur
á viðbúnaði sem einkennir horfellinn
mikla í Mongólíu verður aðeins sett-
ur í samhengi við hran hins mið-
stýrða áætlanakerfis sem landsmenn
máttu búa við í rúmlega 60 ár.
Mongólía varð hluti af sovésku
áhrifasvæði í upphafi þriðja áratug-
arins þegar landsmenn öðluðust
sjálfstæði frá Kínveijum með hjálp
Rauða hersins. Sovésk áhrif fóra sí-
vaxandi, menntamenn fóra til Sovét-
ríkjanna til náms, mongólska staf-
rófið var lagt niður og kyrilískt letur
tekið upp. Sovéskir stjórnarhættir
vora innleiddir á öllum stjórnsýslu-
stigum.
Martröð mongólskra hirð-
ingja hófst árið 1956
þegar sovésku nýlendu-
herramir ákváðu að
samyrkjuvæða kvikfjárræktina.
Hirðingjar vora neyddir til að láta
skepnur sínar af hendi í nafni sósíal-
ískra framfara. Margir kusu frekar
að stytta sér aldur en að segja skilið
við dýrin. Aðrir vora fangelsaðir og
hurfu í vinnubúðakerfi sósíalismans.
I stað sjálfsþurftarbúskapar sem
mótast hafði á steppum Mongólíu 1
gegnum árþúsundin var ínnleidd
miðstýring og hagfræði framleiðslu-
áætlana. Hirðingjar voru neyddir til
að gerast sósíalískir verkamenn á
samyrkjubúum. Framleiðslan var
tekin frá þeim og flutt til höfuðborg-
arinnar, Ulan Bator, þaðan sem
hluta hennar var aftur dreift til
íbúanna en afgangurinn var fluttur
úr landi. Hvert hérað varð hluti af
framleiðsluferli sem laut miðstjórn-
inni í Úlan Bator. Mongólía varð síð-
an að uppfylla tilteknar áætlanh' inn-
an „efnahagsbandalags" Sovét-
ríkjanna og leppríkja þeirra er
nefndist COMECON.
Samyrkjuvæðingunni var lokið ár-
ið 1960. „Aætlunin varð lög,“ segir
Myatavyn Tsagaan, þekktur mong-
ólskur útvarpsmaður og formaður
samtaka mongólskra hirðingja sem
man þessa tíma vel. Hann lýsir því
hvemig hefðir mongólskra hirðingja
vora traðkaðar í svaðið og hvernig
landsmenn urðu smám saman háðir
hinum sovésku yfirboðuram sínum.
Þegar veldi kommúnismans hrundi í
Austur-Evrópu og Sovétríkjunum
fengu Mongólar um 30% þjóðar-
tekna sinna í formi styrkja frá Sovét-
ríkjunum. Er það svipað og gilti um
Kúbu.
Fyrir samyrkjuvæðinguna á árun-
um 1956-1960 er talið að hirðingjar í
Mongólíu hafi verið um 230.000 eða
60-70% vinnuaflsins. Þegar valda-
kerfi sósíalismans hrundi til granna
Séð yfir bæinn Arvækhír, höfuðstað Úrkhangæ-héraðs.
og Mongólar losnuðu undan sovésk-
um yfirráðum árið 1990 vora hirð-
ingjar 160.000 að tölu en Mongólum
hafði fjölgað og taldi þjóðin þá um
tvær milljónir manna. Nú búa í
Mongólíu rétt tæpar 2,4 milljónir
manna.
Hran kommúnismans snerti
vitanlega alla þætti þjóð-
lífsins í Mongólíu. Tæp-
lega 65 ára valdakerfi
leystist upp á örskömmum tíma. Af-
leiðinga þessa gætir einna mest á
landsbyggðinni þar sem öll ríkisrek-
in atvinnustarfsemi lagðist af með
tilheyrandi fjöldafátækt og atvinnu-
leysi. Nefna má að í Úrkhangæ-hér-
aði þar sem 114.000 manns búa eins
og áður sagði er nú aðeins starfrækt
ein verksmiðja. Hún framleiðir
vodka en drykkjusýki er þjóðarböl
Mongóla líkt og fleiri þjóða sem lentu
undir sovéskri ráðstjóm.
I kjölfar hrans kommúnismans
var lýðræði innleitt og fram fór
einkavæðing búpenings landsmanna,
samkvæmt flóknum reglum sem
smíðaðar vora í þessu skyni. Alls
vora 255 samyrkjubú leyst upp árið
1990. Að auki snera margir þéttbýl-
isbúar aftur til heimahaganna og
tóku upp hefðbundna lífshætti mong-
ólskra hirðingja. Af þeim sökum er
ekki óþekkt að hirðingjar búi yfir
góðri menntun. Afleiðingin varð sú
að fjöldi hirðingja tvöfaldaðist og era
þeir nú um 400.000 að tölu. Um helm-
ingur Mongóla býr í þéttbýli en hinn
helmingurinn á steppunum og er al-
gengt að menn stundi búskap með
annarri vinnu til að draga fram lífið.
Að sögn Myatavyn Tsagaan skýrir
þessi fjölgun hluta þess mikla vanda
sem fimbulyeturinn hefur haft í för
með sér. í Úrkhangæ-héraði var
frostið í vetur að jafnaði 32-40 stig
sem er um tíu gráðum undir meðal-
lagi. Rót vandans er hins vegar að
finna í sumrinu í fyrra sem var
óvenju þurrt. Spretta var því léleg en
skepnur mongólskra hirðingja
byggja upp forða yfir sumartímann
sem gerir þessum harðgerðu dýram
kleift að þrauka veturinn. Skepnurn-
ar voru því sérlega illa undir þennan
„dzúd“ búnar.
Tsagaan segir að horfellirinn nú
hafi því verið öldungis fyrirsjáanleg-
ur. „Fimbulvetur era reglubundin
fyrirbrigði í mongólskri náttúra og
koma jafnan á fimm til sex ára fresti.
Óvenju langt er hins vegar liðið frá
hinum síðasta eða rúm tíu ár. Þetta
er því í fyrsta skipti sem „dzúd“
skellur á frá því að kommúnisminn
hrandi og búpeningurinn var einka-
væddur. Menn sváfu á verðinum.
Auk þess verður að hafa í huga að
sökum fjölgunar í stétt hirðingja
höfðu fjölmargir bæst í hópinn sem
bjuggu hvorki yfir nægilegri reynslu
né fyrirhyggju. Hinir reyndari munu
standa þetta högg af sér,“ segir
Tsagaan.
Hann bætir við að mongólskir
hirðingjar drepi ógjarnan dýr sín en
hann hafi sjálfur hvatt til þess í út-
varpsþáttum sínum síðasta haust að
lélegri skepnurnar yrðu slegnar af til
að tryggja afkomu hinna sterkari.
„Dzúd er eins og dómari sem dæmir
hina óhæfu til dauða,“ segir Tsagaan.
„Góð“ dýr geti þolað allt að sex mán-
aða þrengingar en við blasi að sökum
Kátar stelpur með æði Ijóshærðar og vestrænar dúkkur á Barnaheimili númer 4.
Barna-
heimili
númer 4
í Mongólíu geta litlar fjárupphæöir
breytt miklu. í þorpinu Arvækhír er
aö finna „Barnaheimili númer 4“
sem svo nefnist ennþá en á sovét-
tímanum voru flestar verksmiðjur
og opinberar stofnanir aðgreindar
með númerum í Mongólíu sem og
öðrum sósíalískum ríkjum.
Á Barnaheimili númer 4 dveljast
börn á aldrinum 3 til 7 ára og fer þar
þvíeinnig fram undirbúningurfyrir
eiginlega skólagöngu. Barnaheimil-
ið var í algjörri niöurníðslu og í raun
ekki brúklegt þegar því barst aðstoð
upp á 200.000 túgrfk (um 200
Bandaríkjadali eða rúmar 15.000
krónur) frá Sænsku þróunarstofn-
uninni SIDA. Fyrir þessa peninga
var unnt að innrétta upp á nýttfjórar
stofur og kaupa leikföng handa
börnunum. Um það sáu konur sem
starfa sem sjálfboðaliðarí bænum.
Barnaheimilið fékk einnig
200.000 túgrík frá Soros-stofnun-
inni og var þeim þeningum varið tii
að gera upp fimmtu stofuna auk
þess sem leikföng voru einnig
keypt.
Skólastofur þessar eru bjartar,
snyrtilegar og hlýlegar og ekki fór á
milli mála að börnin nutu sín vel á
þessu barnaheimili. Tveir eða þrír
starfsmenn voru í hverri stofu og
voru þeir sammála um að aðstæður
allar hefðu gjörbreyst sökum styrkja
þessara. í einni stofunni voru tvö
fötluð börn og kvaðst starfsfólk
merkja að þau hefðu tekið um-
talsverðum framförum við að vera
innan um jafnaldra sína við svo
Kynjaímyndir virðast þær sömu í Mongólíu og á Vesturlöndum. Alltjent
léku stelpurnar hjúkrunarkonur en strákarnir bílstjóra.
ákjósanlegar aðstæður.
Nokkuö skyggir hins vegar á að
margir foreldrar hafa ekki efni á að
senda börn sín á Barnaheimili núm-
er 4. Gjöldin eru um 150 krónur á
mánuði og sú upphæð er mörgum
ofviða.
Þannig má breyta lífi marga í
Mongólíu með hnitmiðaðri aðstoð
við „grasrótina".