Morgunblaðið - 16.04.2000, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000 B 7
ekki en á afkomendur.
Hinrik Bjarnason er löngu þjóð-
þekktur maður, bæði fyrir æsku-
lýðsstörf sín en þó öllu fremur
störf sín á vettvangi fjölmiðla.
„Eg fór frá Stokkseyri um ferm-
ingu, og þá til náms og starfa í
Reykjavík, fór að læra og vinna
fyrir mér jafnhliða þar til ég hafði
lokið kennaraprófi. Eg hóf störf
hjá Sjónvarpinu á fyrstu árum
þess. Á árunum 1966 til 1970
stjórnaði ég og gerði handrit að
mörgum kvikmyndum og sjónvar-
psþáttum en mest af þessu efni
var innan ramma barnaefnis. Á
þessum tíma var sjónvarpsefnis-
gerð því ríkur þáttur í minni
vinnu, ég gerði milli 20 og 30
myndir í allt. Síðan þróuðust mín
mál inn á aðrar brautir og ég fjar-
lægðist þetta verk. Ég varð árið
1970 framkvæmdastjóri Æskulýðs-
ráðs Reykjavíkur og varð svo dag-
skrárstjóri Sjónvarps 1979. Það er
ekki fyrr en núna, eftir að ég er
orðinn eftirlaunamaður, að ég gat
sinnt þessu verkefni þegar það aft-
ur skaut upp kollinum. Ég vann
þetta með mönnum sem ég staraði
mikið með í lok sjöunda áratugar-
ins, Þórarinn Guðnason kvik-
myndatökumaður og ég unnum vel
saman sem teymi. Oddur Gústafs-
son annaðist hljóð 1969. Auðvitað
er myndin svart-hvít eins og gerð-
ist á þessum tíma. Þessar myndir
voru allar teknar í svart-hvítu,“
segir Hinrik. Þess ber að geta að
hljóðvinnslu myndarinnar Konurn-
ar á ströndinni annaðist Agnar
Einarsson. Tónlist í myndinni er
eftir þá feðga Isólf Pálsson og Pál
Isólfsson. Þulir eru Guðmundur
Ingi Kristjánsson og Ragnheiður
Elín Clausen. Grafík er í höndum
Guðrúnar Ragnarsdóttur og um
klippingu sér Ragnheiður Thor-
steinsson.
Menningarlíf var
blómlegl á Stokkseyri
En hvað með arfleifðina frá
Stokkseyri? „Menningarumhverfið
á Stokkseyri hafði óneitanlega
mikil áhrif á mig,“ segir Hinrik.
„Að sínu leyti til, miðað við stöðu
mála í landinu á fyrri hluta ald-
arinnar, var á Stokkseyri blómlegt
og nokkuð frumlegt menningarlíf á
mínum uppvaxtarárum og raunar
hafði svo verið allt frá því um alda-
mótin 1900. Þarna voru nokkuð
margir aðilar sem höfðu metnað og
getu til að skila frá sér menningar-
verki, þráin var sterk hjá sumu
þessu fólki til þess að afkasta ein-
hverju á því sviði. Isólfur Pálsson
er góður fulltrúi þessa fólks og sá
sem náði lengst í þessum efnum,
en frændur hans og bræður voru í
sama hópi. Ég kynntist ekki ísólfi
en ég kynntist konu hans Þuríði,
hún var mjög eftirminnileg kona. I
myndinni Konurnar á ströndinni
er flutt tónlist þeirra feðga, Isólfs
og Páls.
Myndin kannski eftirtektar-
verðari núna en fyrir 30 árum
Konurnar í myndinni voru alls-
endis ótengdar innbyrðis. Frásögn
þeirra átti frá upphafi að vera
hryggjarliður í þessari umfjöllun
sem átti síðan að festa töluvert
hold á, minna varð úr þessu í upp-
hafi en áætlað var, en myndin ger-
ir eigi að síður grein fyrir hvert
markmiðið var með þessari upp-
töku. Það er ákaflega ánægjulegt
að Sjónvarpið skuli hafa látið ljúka
þessu. Efnislega hefur ekkert ver-
ið tekið upp í viðbót við gömlu tök-
urnar nema hvað við fórum austur
í sumar sem leið og í vetur og tók-
um myndir til tengingar þessum
köflum sem til voru frá 1969. Eng-
in söguskýring er í myndinni frá
öðrum en þessum konum sjálfum,
þær eru sögumenn og frásegjend-
ur og ég leyfi mér að segja að þær
séu eftirminnilegar sem slíkar.
Þrjátiu ár er langur tími í mann-
sævi, og líka langur tími í list, ekki
síst er hann langur í sögu sjón-
varps á Islandi. Núna finnst mér
þetta vera nokkuð ánægjuleg
málalok - hefði myndinni verið
lokið á þeim tíma sem áætlað var
hefði hún verið sýnd árið 1971. En
ég er ekki frá því að hún sé að
sumu leyti eftirtekarverðari núna
en hún hefði verið þá - hún á
kannski enn meira erindi nú en
hún hefði átt þá.“
Skógrækt-
arnám-
skeiðum
fjölgað
vegna að-
sóknar
í VOR hefur Skógræktarfélag ís-
lands gengist fyrir hagnýtum
skóg- og trjáræktamámskeiðum
fyrir áhugafólk. Leiðbeinandi á
námskeiðunum er Björn Jónsson,
fyrrverandi skólastjóri, en hann
hefur mikla reynslu af skógrækt á
jörð sinni, Sólheimum í Land-
broti.
Á námskeiðunum leiðbeinir
Bjöm ræktunarfólki varðandi
verkfæri og áhöld, gróðursetn-
ingu, áburðargjöf, illgresiseyð-
ingu og umhirðu svo nokkur
helstu atriði séu nefnd. Hann
leggur mikla áherslu á að fólk
setji sér markmið í upphafi rækt-
unarinnar. Allir eigi að geta rækt-
að fallegan útivistarskóg á
skömmum tíma með því að beita
réttum vinnubrögðum.
Námskeiðin hafa verið afar fjöl-
sótt, ekki síst af sumarhús'aeig-
endum. Því hefur verið ákveðið að
bæta við námskeiði dagana 3. og 4.
maí og ættu áhugasamir að hafa
samband við Skógræktarfélag ís-
lands. Þessi námskeið era hluti af
samstarfi Skógræktarfélags Is-
lands og Búnaðarbanka íslands.
Ferðafélagið
með páska-
ferðir
FERÐAFÉLAG íslands stendur
fyrir fjallaferðum um páskana.
Það er hefðbundið að félagið
leggi leið sína í Landmannalaugar
og Þórsmörk yfir hátíðarnar og
frá því verður ekki bragðið. Boðið
verður upp á skíðagönguferð í
Landmannalaugar 20.-22. apríl og
verður farangur fluttir til og frá
Sigöldu. Það er nægur snjór á
þessum slóðum og færi gott og
ekki spillir fyrir að hafa heita
laugina til að baða sig eftir góðan
skíðadag. Þá verður haldið í Þórs-
mörk. Sú ferð stendur 22.-24. ap-
ríl.
STÆMJfí A MOfíEUUHIMM
,Besta sýningin í bænum... frábær, ótrúlega mögnuð...“K.B.J. Bylgjan
.... beint í hjartastað..." S.H. Mbl.
.Flugeldasýning í Iðnó... lifir lengi í minningunni..." H.F. DV
.Virkilega skemmtileg sýning... mæli hiklaust með henni..." G.B. RÚV
.... tvímælalaust verk sem óhætt er að mæla með...“ G.S. Dagur
5303030
Vörðufélagar fá 25% afslátt
IÐNÓ - Vonarstræti -101 Reykjavík sími 5 30 30 30 - fax 5 30 30 31 idno@ldno.is - www.idno.ls
Landsbsnkmn
STANLEY
■
Merki sem þú þekkir
og getur treyst
Glæsilegar útihuröir
klæddar rústfríu stáli
í miklu úrvali ásamt
mörgum tegundum
af gleri (þrefalt gler)
BYGGÐU ÞITT HÚS SJÁLFUR - VERSLAÐU HJÁ ÁHÚS
Kanadískír framtíðar-
gluggar úr harðplasti
Kostirnir við gluggana eru:
Ekkert viðhald, búnir til eins
og þú vilt hafa þá, þreföld
þétting á fögum, gluggarnir
koma glerjaðir, flugnanet,
K-gler jafnast á við þrefalt gler,
gráta ekki, notað er P.V.C.-
efni sem gefur 100% árangur.
Vinyl-harðplast. Oluggarnir
eru slagregnsprófaðir hjá R.B.
og stóðust þeir prófið 100%.
Leirdal 18,190 Vogar
sími/fax 424 6735, gsm 868 8396
GEYNIIÐ AUGLÝSINGUNA
GET BOÐIÐ UTANHÚSSKLÆÐN-
INGAR OG ÝMISLEGT FLEIRA.
ÁHÚS - Innflutningur á viðhalds-
fríu efni á hús - Leitið tilboða
Hugljómun sjálfsþekkingar
„The Enlightenment intensive“
í kyrrð fjallanna 31. maí til 3. júní.
Þetta einstaka hugleiðslunámskeið hefur sl. 32 ár
hjálpað þúsundum manna til aukinnar
sjálfsþekkingar og betra lífs.
Nánari upplýsingar og skráning i sima 562 0037 og 869 9293.
Sending komin!
TILBOÐ: Borð og 6 stólar.
Borð íoo x 160 sm og 6 stólar Kr. 69.00.-
Borð 100 x 190 sm og 6 stólar Kr. 79.00.-
Borð 100 x 220 sm og 6 stólar Kr. 89.00.-
Öll borðstofuborð á tilboði sporöskjulöguð eða köntuð.
3 gerðir stóla.
*
p
[jf*
t?
mm
SÓFABORÐ: 120x70x45 sm
TILBOÐSVERÐ
Kr. 19.900.-
Pantanir óskast sóttar.
Lítið á mörg önnur góð húsgagnatilboð.
Nokkur lítið gölluð húsgögn á
TOMBÓLUVERÐI! -****
(M
KRISTALL
Faxafeni simi: 568 4020 HUSGAGNADEILD
Fasteignir á Netinu ^mbl.is
ALLTAf= eiTTH\SA& NÝT7