Morgunblaðið - 11.05.1999, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1999 D 15
ALÞINGISKOSNINGAR
síður verður þessi niðurstaða að telj-
ast ósigur. Framboðið virðist hafa
verið að tapa alla kosningabaráttuna
og fær heldur verri útkomu en flest-
ar skoðanakannanir voru að spá fyr-
ir kosningar.
Það er ekki síst útkoman í
Reykjavík og Reykjanesi sem hlýt-
ur að valda stuðningsmönnum Sam-
fylkingarinnar vonbrigðum, en í
upphafí kosningabaráttunar virtist
sem framboðið hefði nokkuð sterka
stöðu í þessum kjördæmum. A
Reykjanesi töpuðu Samfylkingar-
flokkarnir manni til Sjálfstæðis-
flokksins og í Reykjavík fengu þeir
6 þingmenn en höfðu 9 á síðasta
kjörtímabili. Ljóst má vera að
Vinstrihreyfíngin hefur náð tU sín
verulegu fylgi sem frambjóðendur
Samfylkingarinnar vonuðust til að
skilaði sér til þeirra. Þetta skýrir
hins vegar ekki tU fulls fylgistap
Samfylkingarflokkanna í þessum
kjördæmum.
Segja má að Samfylkingin hafi
verið í vöm mest alla kosningabar-
áttuna. Forystumönnum hennar
gekk illa að útskýra skattastefnu
framboðsins og hvaða stjórnkerfí
það vUdi skapa í sjávarútvegsmálum.
Vandamál frambjóðenda flokksins
var m.a. það að þeim tókst ekki að
láta umræðuna snúast um stefnu
Sjálfstæðisflokksins og stjómarinn-
ar vegna þess að stefna Sjálfstæðis-
flokksins var varlega orðuð, stutt og
hnitmiðuð. Forystumenn Samfylk-
ingarinnar hefðu hins vegar átt að
geta náð taki á andstæðingnum, t.d.
með því að beina athyglinni að lands-
fundarsamþykktum Sjálfstæðis-
flokksins.
Samfylkingin var stofnuð í þeim
tUgangi að sameina vinstrimenn. Sú
spuming hlýtur að vakna hvort það
hafí tekist þegar til hliðar við hana
hefur myndast stjómmálaflokkur
með rúmlega 9% fylgi. Það er einnig
ljóst að stuðningsmenn Samfylking-
arinnar eiga mikið starf óunnið við
að skipuleggja og byggja upp hið
nýja stjórnmálaafl. Eitt af því sem
þar kemur tU álita er hver eigi að
vera í forystu fyrir þessu afli tU
framtíðar.
Signr fyrir U- og F-lista
Einn af sigurveguranum í kosn-
ingunum hlýtur að teljast Vinstri-
hreyfingin - Grænt framboð. Skoð-
anakannanir sýndu að flokkurinn
var í sókn alla kosningabaráttuna
og má af því draga þá ályktun að
barátta flokksins hafi verið betur
heppnuð en kosningabarátta Sam-
fylkingarinnar. Sigur Steingríms J.
Sigfússonar, foi-manns Vinstri-
hreyfingarinnar, í Norðurlandskjör-
dæmi eystra er sérlega glæsilegur,
en hann skilaði tveimur þingmönn-
um. Útkoman í Reykjavík, á Aust-
urlandi, Vesturlandi og Norðurlandi
vestra var einnig góð. Nokkra at-
hygli vekur að flokkurinn náði ekki
inn manni á Reykjanesi, en það end-
urspeglar hugsanlega að einhverju
leyti að Alþýðubandalagið hefur alla
tíð haft frekar veika stöðu í kjör-
dæminu.
Vinstrihreyfingunni hefur á
undraskömmum tíma tekist að
byggja upp heilsteyptan flokk. Þó
uppbyggingarstarfinu sé ekki lokið
má segja að flokkurinn sé kominn
lengra á þessari braut en Samfylk-
ingin.
Árangur Frjálslynda flokksins er
betri en flestir höfðu reiknað með
fyrir kosningar. Segja má að flokk-
urinn hafi náð markmiði sínu, að
koma mönnum á þing. Sigur Guðjóns
A. Kristjánssonar á Vestfjörðum er
glæsilegur. Færa má rök fyrir því að
uppreisn sjálfstæðiskvenna á Vest-
fjörðum vegna skipanar framboðs-
listans hafi að þessu leyti reynst ör-
lagarík, en sem kunnugt er tapaði
Guðjón með einu atkvæði í kosningu
um þriðja sæti á lista Sjálfstæðis-
flokksins í vetur. Guðjón sagði sig þá
úr flokknum og bauð sig fram fyrir
Frjálslynda.
Þingmenn Frjálslynda flokksins,
Guðjón og Sverrir Hermannsson,
hafa nú tækifæri til að koma aðal-
baráttumáli sínu, stjórnkerfi fisk-
veiða, á dagskrá. Ef flokkurinn á að
lifa lengur en eitt kjörtímabil verður
hann hins vegar að auka fylgi sitt
vegna þess að samkvæmt nýjum
kosningalögum fá einungis þefr
flokkar kjörna menn á Alþingi sem
fá 5% fylgi eða meira í kosningum.
REYKJAVIK Fylgi í Alþingiskosningum 1991,1995 og 1999
46,3% 457%
’91 '95 '99 ’91 '95 '99 ’99 '99
B D F H
'99 '99 '95
U S+U AGJV
VESTURLAND Fylgi i Alþingiskosningum 1991,1995 og 1999
'91 '95 '99 '91 '95 ’99 ’99 '99 ’99 ’99 ’99 ’95
B D F H S U S+U agjv
NL. VESTRA Fylgi í Alþingiskosningum 1991,1995 og 1999
45
€
30,3% 60,8
-28,t
31,9%
-34,2*...
40----38J»
35-3^3
30
25“
20-
15-
10
5
0
'91 '95 '99 '91 ’95 ’99 ’99 ’99 ’99 '99 ’99 ’95
B D F H S U S+U agjv
24,8%
I
9.4«
1
3ji% 0,2% u
AUSTURLAND Fylgi í Alþingiskosningum 1991,1995 og 1999
46,9«
-38^%-
32,2%
30,6%
26,3%
21,3
22,5
5 1,2 j
1 1,0»
■ 0,2%
'91 '95 '99 '91 '95 ’99 ’99 ’99 '99 ’99 '99 ’95
B D F H S U S+U agjv
REYKJANES Fylgi í Alþingiskosningum 1991,1995 og 1999
'91 '95 '99 '91 '95 ’99 ’99 ’99 '99 ’99 '99 '95
B D F H S U S+U agjv
VESTFIRÐIR Fylgi í Alþingiskosningum 1991,1995 og 1999
'91 '95 ’99 '91 '95 '99 '99 '99 '99 ’99 ’99 '95
B D F H S U S+U agjv
SUÐURLAND Fyigi í Alþingiskosningum 1991,1995 og 1999
45
■seal/
36,5% 36,0%
33Í
31,6%
0,3% 2^%
-28,9«
'91 '95 '99 ’91 '95 '99 ’99 '99 '99 '99 ’99 ’95
B D F H S U S+U agjv
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
tapaði fylgi í kosningunum á laug-
ardaginn miðað við seinustu kosn-
ingar í öllum lyördæmum landsins
nema á Vestfjörðum þar sem hann
bætti umtalsverðu við sig og á
Suðurlandi þar sem hann hélt
svipuðu fylgi og hann fékk í kosn-
ingunum 1995. Víðast hvar fékk
Framsóknarflokkurinn þó svipað
fylgi nú og hann fékk í kosningun-
um árið 1991. Hann fékk þó tölu-
vert minna fylgi á Norðurlandi
Miklar sveifiur
eystra og nokkru minna fylgi á
Austurlandi og Norðurlandi
vestra í kosningnnum á laugar-
daginn en hann fékk í þessum
kjördæmum 1991.
Sjálfstæðisflokkurinn jók við
fylgi sitt í öllum kjördæmum
landsins nema á Vestfjörðum mið-
að við seinustu kosningar 1995.
Sjálfstæðisflokkurinn bætti hlut-
fallslega mestu við fylgi sitt á
Reykjanesi (5,4 prósentustigum).
Samanlagt fylgi Samfylkingar-
innar og Vinstrihreyfingai'innar-
græns framboðs varð minna en Al-
þýðubandalag, Alþýðuflokkur,
Kvennalisti og Þjóðvaki fengu sam-
tals í kosningunum 1995 í Reykja-
vík, á Reykjanesi og á Vestíjörð-
um. Samanlagt fylgi Samfylkingar
og Vinstrihreyfingarinnar varð
hins vegar nokkru meira í öðrum
lqördæmum landsins en flokkamir
fjórir fengu í seinustu kosningum. ^
Samfylkingin hlaut minna fylgi í
kosningunum á laugardagiim en
samanlagt fylgi A-flokkanna,
Kvennalista og Þjóðvaka 1995 í öll-
um kjördæmum landsins nema á
Suðurlandi en þar fékk Samfylk-
ingin 28,7% samanborið við 28,9%
samanlagt fylgi flokkanna Qögurra
í kosningunum 1995.