Morgunblaðið - 11.05.1999, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1999 D 11
i
ALÞINGISKOSNINGAR
Fylgi Frjálslynda flokksins var
vanmetið í skoðanakönnunum
Félagsvísinda-
stofnun fér næst
úrslitunum
FYLGI Fijálslynda flokksins
var vanmetíð í nær öllum
skoðanakönnunum sem
gerðar voru fyrir kosning-
arnar. Sjálfstæðisflokkurinn fékk hins
vegar ívið lakari kosningu en flestar
kannanir höfðu bent til að hann fengi.
Könnun sem Félagsvísindastofhun
gerði fyrir Morgunblaðið og birt var á
kjördag fór næst úrslitunum.
I nær öllum könnunum sem gerð-
ar voru fyrir kosningar fékk Frjáls-
lyndi flokkurinn innan við 3% stuðn-
ing. Eina undantekningin er könnun
sem DV gerði 23. apríl, en hún sýndi
flokkinn með 4,5% fylgi. F-listinn
fékk hins vegar 4,2% í kosningunum.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur yfírleitt
fengið meiri stuðning í könnunum en
kosningum. Síðustu kosningar voru
þó undantekning því þá bætti hann
heldur við fylgi sitt frá því sem kann-
anir höfðu bent til að hann fengi.
Núna fékk flokkurinn heldur minna
fylgi en skoðanakannanir höfðu verið
að spá honum. Munurinn er þó ekki
nema 1-2 prósentustig.
Framsóknarflokkurinn fékk 17,3-
18,7% fylgi í könnunum sem gerðar
voru í síðustu vikunni fyrir kosning-
ar. Eina undantekningin er síðasta
könnun DV sem gerði ráð fyrir að
flokkurinn fengi 21,2% fylgi. Síðustu
kannanir Félagsvísindastofnunar og
Gallup sýndu Framsóknarflokkinn
með heldur minna fylgi en hann fékk
í kosningunum.
Flestar kannanir sem gerðar voru
í vikunni fyrir kosningar sýndu Sam-
fylkinguna með 27-29% fylgi. Síðasta
könnun DV benti til að framboðið
fengi 25,2% fylgi, en það fékk hins
vegar 26,8% fylgi í kosningunum. Al-
mennt er útkoma S-listans því held-
ur slakari en kannanir höfðu bent til.
Vinstrihreyfmgin var að mælast
með 7,5-8,7% í könnunum sem gerð-
ar voru í vikunni fyrir kosningar.
Eina undantekningin var síðasta
könnun Félagsvísindastofnunar sem
sýndi 9,4% stuðning við U-listann.
Niðurstaðan varð 9,1% fylgi í kosn-
ingunum. Flokkurinn fékk því ívið
betri útkomu en flestar skoðana-
kannanir bentu til að hann fengi.
Mest frávik hjá DV
Séu síðustu skoðanakannanir sem
gerðar voru fyrir kosningar bornar
saman við úrslit kosninganna kemur
Hlutfallslegt fylgi
á landsvísu
í síðustu könnunum
fyrir kosningar
og úrslitin 1999
Síðustu skoðanakannanir
og úrslit kosninga 1999
------RÚV/Gallup, 7. mai
-----Mbl./Félagsv.st., 8. mai
I — Kosningar, 8. mai
Framsóknarflokkur Sjálfstæðisflokkur
Samfylking Vinstrihr. - grænt framb. Frjálslyndi flokkur
Samanburður á fráviki síðustu kannana
fjölmiðlanna frá úrslitum kosninganna
Morgunblaðið/ Félagsv.stofnun frávik RÚV/ Gallup frávik DV frávik Kosninga- úrslit
Framsóknarflokkur 17,8% 0,6 17,3% 1.1 21,2% 2,8 18,4%
Sjálfstæðisflokkur 42,6% 1,9 42,7% 2,0 42,8% 2,1 40,7%
Frjálslyndi flokkur 2,2% 2,0 2,5% 1,7 2,9% 1,3 4,2%
Samfylking 27,6% 0,8 28,9% 2,1 25,2% 1,6 26,8%
Vinstrihr. - grænt framb. 9,4% 0,3 7,5% 1,6 7,5% 1,6 9,1%
í Ijós að könnun Félagsvísindastofn-
unar fór næst úrslitunum. Frávikið í
könnunum stofnunarinnar frá úrslit-
unum er á bilinu 0,6-2%. Hjá Gallup
er frávikið 1,6-2,1%. Hjá DV er frá-
vikið 0,6-2,8%.
Karl Sigurðsson, hjá Félagsvís-
indastofnun, sagði að almennt mætti
segja að kannanir sem gerðar eru
næst kjördegi ættu að gefa réttari
mynd af afstöðu kjósenda en hinar
sem gerðar eru fyrr. Núna hefði Fé-
lagsvísindastofnun gert sína síðustu
könnun á fimmtudegi og föstudegi
fyrir kosningar, en venjulega hefðu
þær verið gerðar á miðvikudegi.
Karl sagði að almennt virtust
kannanirnar eiga það sameiginlegt
að hafa vanmetið fylgi Frjálslynda
flokksins og ofmetið fylgi Sjálfstæð-
isflokksins.
, ^ Morgunblaðið/RAX
DAVIÐ Oddsson forsætisráðherra var íbygginn þegar hann var búinn að selja krossinn á kjörseðilinn.
sæktist eftir ráðherraembætti í Ijósi
úrslitanna á Norðurlandi vestra.
„Það er auðvitað allt til í spilunum.
Við erum að byrja að ræða þessi
mál og vitum ekki hvernig ráðu-
neyti munu skiptast en ef þannig
vill verkast er ég að sjálfsögðu til-
búinn í það. Maður er ekki í stjóm-
málum til þess að forðast að verða
ráðherra,“ sagði Hjálmar.
Árni M. Mathiesen
Vinstri upp-
stokkun í
stað samein-
ingar
„ÉG ER mjög
ánægður með nið-
urstöðuna. Út-
koman er sú
besta nokkru
sinni, að undan-
skildum kosning-
unum 1974, og
það er auðvitað
ánægjulegt,“ seg-
ir Árni M. Mathiesen þingmaður og
oddviti sjálfstæðismanna í Reykja-
neskjördæmi. Árni tók við 1. sæti
listans af Ólafi G. Einarssyni og
verður 1. þingmaður kjördæmisins,
eins og Ólafur var áður.
Góðar niðurstöður þakkar Árni
góðum lista, velgengni í baráttunni
og styrktri stöðu flokksins í sveitar-
stjómarmálum. „En lykillinn að
góðri niðurstöðu hér eins og annars
staðar á landinu er auðvitað fyrst og
fremst forystan í landsmálum."
Um aðrar niðurstöður segir Árni
að útkoma Samfylkingarinnar sýni
að ekki hafi verið um að ræða sam-
einingu á vinstrivængnum, heldur
aðeins uppstokkun. „Það mistókst
að sameina vinstriflokkana í einn
flokk,“ segir Ámi. „Forystumenn
Samfylkingarinnar höfðu vonast til
að til vinstri við þá yrði aðeins mjög
lítill flokkur, en svo varð ekki. Þetta
varð því uppstokkun, ekki samein-
ing.“
Sjálfur átti Ami heldur ekki von
á svo góðu gengi hjá vinstri-græn-
um, hafði spáð þeim 5-8 prósenta
fylgi. „68-kynslóðinni hefur ekki lið-
ið vel í Alþýðubandalaginu, það var
of róttækt fyrir hana, þegar hún elt-
ist,“ segir Árni. „Framhaldið fer
eftir forystunni. Það mistókst með
talsmanninn, sem Sighvatur Björg-
vinsson útnefndi. Síðan urðu marg-
vísleg upphlaup, sem leiddu til þess
að Margrét náði aldrei neinum tök-
um.“
Um niðurstöðu Framsóknar segir
Ámi að Framsókn geti vel við unað.
Hún hafi haldið fylginu frá kosning-
unum 1991, þó bæði vinstri-grænir
og Samfylkingin hafi sótt fast á.
„Það er erfitt að vera miðjuflokkur,
en þeir fengu hrundið ásókninni.
Uppstokkunin á vinstrivængnum
hefur varla áhrif á stöðu þeirra til
lengdar."
Sturla Bððvarsson
Besta út-
koman um
langt skeið
„ÞETTA er besta útkoma hjá okkur
sjálfstæðismönnum á Vesturlandi
allar götur frá því
að kjördæma-
breytingin var
gerð. Ég er mjög
ánægður með
það,“ segir Sturla
Böðvarsson, efsti
maður á lista
Sjálfstæðisflokks-
ins á Vesturlandi
en hann verður nú fyrsti þingmaður
kjördæmisins og tekur við þeirri
stöðu af Ingibjörgu Pálmadóttur,
heilbrigðisráðherra og efsta manni
Framsóknarflokksins.
„Mér finnst þetta vera viðurkenn-
ing á störfum okkar á kjörtímabil-
inu og einnig er þetta vel skipu-
lagðri kosningabaráttu að þakka,“
sagði Sturla.
Hann sagði einnig að Sjálfstæðis-
flokkurinn gæti mjög vel við unað
að hafa fengið yfír 40% atkvæða yfír
landið allt. „Það að fara yfir 40% er
mjög góður árangur. Þetta er því
hin besta niðurstaða," sagði Sturla.
Aðspurður um stjórnarsamstarf
sagðist Sturla telja eðlilegt að sjálf-
stæðismenn ræddu við framsóknar-
menn. „Stjómin heldur velli og það
er eðlilegt að fyrsta skrefíð sé að
ræða við þá,“ sagði hann.
Sturla var spui'ður hvort hann
myndi sækjast eftir ráðherraemb-
ætti í ljósi útkomu flokksins á Vest-
urlandi. „Ég hef litið á það sem
skyldu mína sem þingmanns að
bregðast við því kalli ef sú yrði nið-
urstaðan. Ég er að sjálfsögðu reiðu-
búinn til þess. Niðurstaða kosning-
anna veikir mig ekld,“ segir Sturla.
Árni Johnsen
Efnahags-
stjórnin
lykillinn að
öllu öðru
ÁRNI Johnsen
tók við oddvita-
sæti sjálfstæðis-
manna á Suður-
landi af Þorsteini
Pálssyni og er
eftir kosningarn-
ar 1. þingmaður
kjördæmisins
eins og Þorsteinn
var. Árni sagði að
hann væri ánægður með niðurstöð-
una, þótt ekki hefði náðst það mark-
mið að bæta við þingmanni í kjör-
dæminu. Árni tók við oddvitasætinu
af Þorsteini Pálssyni.
„Þetta leggst vel í mig og heildar-
útkoman var góð,“ sagði Ámi. „Við
voram mjög nærri okkar marki að
ná þriðja manni. Það vantaði aðeins
herslumuninn. En við bætum við
okkur þremur prósentum og þetta
er mjög öflug kosning og góð.“
Hann sagði að þrátt fyrir góða
viðbót í fylgi frá kosningunum 1995
hefði það ekki skilað sér í hringekju
uppbótarþingsæta. „Það skilar sér
þá annars staðar, en við nutum þess
ekld.“
Árni kvað úrslitin almennt ekki
vera fjarri því, sem hann hefði búist
við, og ekkert kæmi sér á óvart, ef
undan væri skilinn árangur Frjáls-
lynda flokksins. „Ég hafði reiknað
með heldur minni hlutdeild hans á
Vestfjörðum,“ sagði hann. „Mér
finnst staða Vestfirðinga vera
þannig að það sé ekki hagstætt fyrir
þá að vera að markaðssetja sig á
áhrifalausum svæðum.“
Hann sagði að samhentur hópur
hefði unnið fyrir Sjálfstæðisflokkinn
um allt kjördæmið og keyrt hefði
verið á alhliða stefnu hans um
áframhaldandi árangur.
„Okkar markmið er að hafa
áfram þessa grandvallarefnahags-
stjóm á landinu,“ sagði Árni þegar
hann var spurður um markmiðin á
komandi kjörtímabili. „Það er lyldll-
inn að öllum öðram þáttum, hvort
sem það er í atvinnulífi, menningu,
eða fjölskyldulífi almennt."
Halldór Blöndal
Gamall
draumur
rættist
„ÞÓTT það hafi
alltaf verið gam-
all draumur okk-
ar sjálfstæðis-
manna að verða
stærsti flokkur-
inn á Norðurlandi
eystra, hafði ég
ekki sannfæringu
fyrir því fyrir-