Morgunblaðið - 11.05.1999, Page 6
6 D ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ALÞINGJSKOSNINGAR
Morgunblaðið/RAX
SJALFSTÆÐISMENN brostu breitt og fögnuðu nánast öllum tölum enda voru þær mjög jákvæðar fyrir flokkinn. Hér
fagna frambjóðendur flokksins í Reykjavfk góðum sigri. F.v. Stefanía Óskarsdóttir og alþingismennirnir Ásta Möller,
Sólveig Pétursdóttir og Geir Haarde.
Morgunblað/Jón Svavarsson
MIKIL fagnaðarlæti brutust út á kosningavöku Frjálslynda flokksins þegar fyrstu tölur frá Vestíjörðum bárust. Formað-
ur flokksins, Sverrir Hermannsson, fékk klapp á bakið og koss á kinnina frá stuðningsmönnum.
Hlátur og
grátur á
kosninga-
vökum
STJÓRNMÁLAFLOKKARNIR efndu til kosningavöku á
kosninganóttina þar sem stuðningsmenn flokkanna fylgd-
ust með úrslitunum. Góð stemmning var hjá flestum
flokkum nema Framsóknarflokknum sem tapaði talsverðu
fylgi í kosningunum. Einnig voru tilfinningar blendnar
hjá Samfylkingunni.
Mikil spenna var á kosningaskrifstofunum og náði hún
hámarki um kl. 22 þegar fyrstu tölur komu frá Reykja-
nesi. Tölurnar gáfii til kynna að útkoma Framsóknar-
flokksins yrði betri og staða Sjálfstæðisflokksins yrði
heldur Iakari en kannanir höfðu bent til. Þetta breyttist
hins vegar í næstu tölum.
Einnig ríkti mikil eftirvænting eftir tölum frá Vest-
fjörðum, en það kjördæmi varð síðast til að birta tölur.
Tölurnar sýndu mikið fylgi við Frjálslynda flokkinn og
urðu þær tii þess að skipting þingsæta breyttist frá fyrstu
tölum.
Þegar leið á nóttina lágu heildarúrslit nokkurn veginn
fyrir, en spennan jókst hins vegar um hvar jöfnunarsætin
lentu. Frambjóðendur voru að detta út og inn á þing fram
eftir nóttu. Á kosningavöku Samfylkingarinnar í Reykja-
vík ríkti t.d. mikil spenna um hvort Merði Árnasyni tækist
að ná þingsæti, en hann varð að láta sér lynda að gefa það
eftir til Gísla Einarssonar.
Framsóknarmenn í Reykjavík voru ekki ánægðir með
útkomu flokksins, en þeir gátu þó glaðst yfir því undir
morgun að Ólafur Örn Haraldsson náði kjöri, en kosning
hans varð hins vegar til þess að flokkurinn missti mann á
Norðurlandi.
Sjálfstæðismenn í Reykjavík gátu fagnað því að 9. mað-
ur listans, Ásta Möller, náði kjöri, en um tíma leit úr fyrir
að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, sem var í 10. sætinu, yrði
einnig þingmaður, en það gekk ekki eftir. Tölurnar á
Vestfjörðum urðu hins vegar til þess að flokkurinn bætti
ekki við sig tveimur mönnum eins og fyrstu tölur gáfu til
kynna. Stuðningsmenn Fij'álslynda flokksins voru að von-
um glaðir yfir úrslitunum enda tókst þeim það sem fæstir
höfðu trú á, að fá tvo menn kjörna.
sókn gegn fólksfækkuninni, sem
Kristján nefnir þjóðarvanda.
Hann segist hiklaust vilja fara í
sértækar aðgerðir gagnvart lands-
byggðinni, sem fela í sér auknar
niðurgreiðslur, lækkun húshitunar-
kostnaðar, 100% jöfnun á aðstöðu
unglinga til að sækja framhalds-
skóla.
„Síðan held ég að í fískveiði-
stjórnunarkerfmu verði byggða-
kvóti að fá aukið vægi og einhver
kvóti tengjast meira ákveðnum
byggðum sem eiga mjög í vök að
verjast vegna þess að allur kvóti er
farinn.“
Gunnar I. Birgisson
Niðurstöður í
samræmi við
væntingar
„MEÐ kosning-
unum er dómur
kjósenda kominn
og hægt að sjá
hvað þeir kunna
sérstaklega að
meta,“ segir
Gunnar I. Birgis-
son, nýkjörinn
þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjaneskjör-
dæmi. Gunnar Ingi sat á þingi sem
varamaður í tvær vikur 1992 og
segist því þekkja húsið.
5,5 prósentustiga fylgisaukn-
ingu flokksins í Reykjaneskjör-
dæmi þakkar Gunnar vel unninni
kosningabaráttu flokksins í kjör-
dæminu og sterkum lista. Fram-
bjóðendur hafí farið vítt og breitt
um kjördæmið og heimsótt megn-
ið af öllum fyrirtækjum þar. „Við
fundum góðan anda og niðurstöð-
urnar eru í samræmi við vænting-
arnar.“
Um niðurstöðurnar almennt
segir Gunnar að þær sýni ánægju
með forystu Sjálfstæðisflokks og
Davíðs Oddssonar. „Skilaboð
kjósenda eru greinilega að þeir
vilja áframhaldandi forystu
flokksins og Davíðs og ég vona að
svo verði. Flokkurinn hefur alls
staðar bætt við sig, nema á Vest-
fjörðum og er alls staðar stærstur
nema á Austurlandi. Niðurstöð-
urnar eru því skýrar."
Það sem kemur Gunnari á óvart
er tap Framsóknarflokksins, sem
þarf að sjá af mörgum þingmönn-
um. „Það er langt í frá að þeir eigi
þetta skilið, en eftir góða kosningu
1995 mátti kannski búast við
þessu.“
Hið óvænta í niðurstöðunum er,
að mati Gunnars, að frjálslyndir
skyldu koma mönnum á þing, en
um það vilji hann hafa sem fæst
orð. Urslit Samfylkingarinnar seg-
ir Gunnar sýna að kjósendur vilji
ekki vinstrivænginn til valda. ,Að
lokum vona ég að hér verið sama
stjórn og áður. Það væri landi og
þjóð fyrir bestu.“
Þorgerður K.
Gunnarsdóttir
Sterk stjórn
og sterkur
leiðtogi
„STERK ríkisstjóm og Davíð
Oddsson, sem að mínu mati er einn
helsti stjómmála-
leiðtogi aldarinn-
ar, er skýringin á
góðum úrslitum
Sj álfstæðisflokks-
ins. Davíð Odds-
son er sigurveg-
ari kosninganna,"
segir Þorgerður
K. Gunnarsdóttir,
nýkjörinn þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjaneskjördæmi.
Sterku framboði og samhentum
hópi frambjóðenda flokksins og
þeirra sem störfuðu að framboðinu í
Reykjaneslqördæmi þakkar hún
góða niðurstöðu þar.
Þau mál, sem kjósendur kjör-
dæmisins höfðu mestan áhuga á
segir Þorgerður vera atvinnumál
og samgöngumál, auk skattkerfis-
ins í heild og skattabreytinga.
„Fólk var almennt mjög opið og já-
kvætt á fundunum.“
Það kom Þogerði á óvart að
Samfylkingin skyldi ekki hljóta
betri útkomu, bæði almennt og í
kjördæmi hennar, þar sem Al-
þýðuflokkurinn hafi löngum haft
mjög sterka stöðu. „Skýringin er
einfaldlega slæm frammistaða
Samfylkingarinnar. Stefna þeirra
var illa sett fram. Það skildi eng-
inn hvað þau áttu við.“
Einnig kom Þorgerði á óvart
gott gengi Frjálslynda flokksins og
að flokkurinn skyldi koma tveimur
mönnuin á þing. Annai’ sigurvegari
kosninganna að mati Þorgerðar er
Steingrímur J. Sigfússon, leiðtogi
Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs. „Önnur úrslit voru eftir
bókinni."
Þingmennskan leggst vel í Þor-
gerði. „Þetta er mikið starf, sem
ég ætla að leysa af hendi af trú-
rækni og skyldurækni. Mér
reyndari menn segja mér að það
sé góður starfsandi í þinginu al-
mennt.“
Einar Már Sigurðarson
Næsta skref
að stofna
flokk
„VIÐ erum nokk-
uð ánægð með út-
komuna hér þrátt
fyrir að við hefð-
um viljað sjá
hærri tölur,“ seg-
ir Einar Már Sig-
urðarson, sem
náði kjöri á þing
fyrir Samfylking-
una á Austur-
landi. Samfylkingin fékk 21,2% fylgi
í kjördæminu.
„Við erum afar stoltir af því að
okkur tókst að lækka fylgi Fram-
sóknarflokksins um 8,5%. Það er
býsna góður árangur þó að á tíma-
bili liti út fyrir að það yrði meira.
Það er ljóst að þeim hefur tekist á
seinustu dögunum að ná til sín aftur
einhverju fólki sem hafði hugsað sér
að kjósa okkur,“ sagði Einar.
Hann sagði einnig að nú væri
mikilvægum áfanga náð fyrir Sam-
fylkinguna í íslenskum stjórnmálum
þar sem fram væri komið sterkt
stjómmálaafl sem væri komið til að
vera. Einar sagði að næsta skref
Samfylkingarfólks væri að bretta
upp ermar og snúa sér að formlegri
stofnun stjórnmálaflokks og hefja
undirbúning fyrir næstu kosningar.
Aðspurður um útkomu Samfylk-
ingarinnar á landinu öllu sagðist
Einar Már vera sáttur við niður-
stöðuna þrátt fyrir að menn hafi
vonast til að fá meira fylgi. „Við
urðum einnig fyrir því að það er
hræðsla í öllum og þess vegna var
kannski ráðist að okkur af meiri
heift en venjulegt er. Að okkur
stóðu spjótin víða og gerðar voru
meiri kröfur til okkar en annarra
s.s. um útlistanir á stefnu.“
Einar Már er að taka sæti á Al-
þingi í fyrsta sinn sem aðalmaður
en hann kom inn á þing sem vara-
þingmaður Alþýðubandalagsins á
kjörtímabilinu 1991-1995.
Hjörleifur Guttormsson
Úrslitin
marka
þáttaskil
„MÍN fyrstu við-
brögð eru ánægja
og þakklæti. Mér
fínnst framboðið
hafa skilað besta
árangri sem
sanngjamt var að
vænta af okkur í
Vinstri hreyfing-
unni - Grænu
framboði," segir
Hjörleifur Guttormsson, sem skip-
aði 3. sæti á U-listanum í Reykjavík
þar sem flokkurinn fékk tvo menn
kjörna. Hjörleifur lætur því af þing-
mennsku eftir að hafa setið á Al-
þingi fyrir Alþýðubandalagið á
Austurlandi síðan 1978.
Hjörleifur segir að það marki á
sinn hátt ákveðin þáttaskil að U-
listinn hafí náð svo sterkri fótfestu í
byrjun og að málefnin sem flokkur-
inn standi fyrir skuli fá slíkan
hljómgi’unn sem raun beri vitni.
„Auðvitað hefði ég viljað sjá fleiri
úr þessari vösku sveit inni á þingi
en það reyndist ekki vera innistæða
fyrir því. Persónulega þótti mér