Morgunblaðið - 11.05.1999, Side 4
4 D ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ALÞINGISKOSNINGAR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÞEGAR Sverrir Hermannsson, formaður Frjálslynda flokksins, fór að kjósa mætti hann
Geir H. Haarde, varaformanni Sjálfstæðisflokksins, sem var að koma frá því að kjósa.
Þeir heilsuðust vingjarnlega þótt þeir eigi ekki lengur samleið í pólitík.
Morgunblaðið/RAX
LOGREGLAN aðstoðaði kjósendur sem komu á kjörstað jafnframt því sem hún fylgdist
með að allt færi fram í samræmi við lög og reglur.
Morgunblaðið/RAX
UNGIR jafnt sem gamlir lögðu leið sína á kjörstað. Þeir yngstu fengu hins vegar ekki að kjósa.
Guðjón A. Kristjánsson
Úrslitin
komu ekki
á óvart
GUÐJÓN Arnar
Kristjánsson,
sem skipaði
fyrsta sæti á lista
Frjálslynda
flokksins á Vest-
fjörðum, er í hópi
nýkjörinna þing-
manna á Alþingi
og er að nýaf-
stöðnum kosningum fjórði þingmað-
ur Vestfjarða.
Þakklæti til stuðningsmanna og
samverkafólks síns er Guðjóni efst í
huga að fengnum úrslitum, sem
komu honum ekki á óvart að hans
sögn.
„Við frambjóðendumir gerðum
þetta ekki einir, það var fjöldi fólks
sem vann með okkur og studdi okk-
ur og við þökkum því alveg sérstak-
lega fyrir vel unnin störf og
skemmtilega samvinnu. Þetta var
mjög skemmtileg og málefnaleg
kosningabarátta,“ segir Guðjón.
„Við héldum okkur við okkar mál-
efni og gerðum fólki grein fyrir því
hversu alvarlegum augum við litum
á það ef menn ættu að sitja í
óbreyttu ástandi á Vestfjörðum,"
segir hann.
Um fylgið við Frjálslynda flokk-
inn á Vestfjörðum segir Guðjón að
það hafl verið í samræmi við vænt-
ingar og að hans sögn áttu Frjáls-
lyndir aldrei átt von á minna en 15%
fylgi, en samkvæmt lokatölum fékk
Frjálslyndi flokkurinn 17,7% kjör-
fylgi í Vestfjarðakjördæmi.
„Það hefðu verið vonbrigði að
fara niður fyrir 15% fylgi miðað við
þann stuðning sem við þóttumst
finna fyrir í kjördæminu, enda held
ég að það hafi allt skilað sér sem
bjuggumst við. Ég fann mjög fljót-
lega að við höfðum fólk með okkur
og það kom mér ekkert á óvart að
við skyldum ná þessum árangri."
Árni Steinar
Jóhannsson
Átti ekki
von á kjöri
„ÉG átti ekki von á þessu, við vorum
fyrst og fremst að berjast fyrir því
að koma Steingrími J. Sigfússyni inn
með glæsilegri kosningu,“ segir Ámi
Steinar Jóhannson umhverfísstjóri á
Akureyri, sem kjörinn hefur verið
nýr inn á þing, sem sjötti þingmaður
Norðurlandslgör-
dæmis eystra.
Hann skipaði ann-
að sætið á lista
Vinstrihreyfing-
arinnar - græns
framboðs. Að-
spurður hvað hafi
valdið úrslitunum
í kjördæminu seg-
ir Ámi Steinar að sterk pólitísk
staða Steingríms J. hafi haft sitt að
segja ásamt öðru.
„Steingrímur er náttúrulega
landsþekktur og langbesti þingmað-
ur kjördæmisins að mínu mati,
þannig að auðvitað hafði það gríðar-
leg áhrif, en við hin sem vomm á
listanum skemmdum ekki fyrir hon-
um,“ segir Ami Steinar. „Fyrst og
fremst keyrðum við inn á að fá
myndarlega kosningu fyrir Stein-
grím en það átti ekki nokkur maður
von á því að við færum tveir inn.“
Áður en úrslitin lágu fyrir átti
Árni Steinar einkum von á því að
verða varaþingmaður Steingríms J.
Sigfússonar og geta með því móti
komið inn á þing stuttan tíma í einu,
en stunda sitt starf eftir sem áður
sem umhverfisstjóri Akureyrarbæj-
ar eins og hann hefur gert síðastlið-
in tólf ár. Hann segir það hins vegar
ekkert launungarmál að í þingstörf-
um sínum muni hann leggja lang-
mesta áherslu á byggðamál og seg-
ist hann vilja fá auknar fjárveiting-
ar í opinberar framkvæmdir á
Akureyri og Norðurlandi eystra.
Þuríður Backman
Meira fylgi
en ég hafði
vænst
„ÉG er ánægð
fyrir hönd allra
sem hafa talað
fyrir málstað
vinstri hreyfing-
arinnar því við
höfum ekki haft
aðstöðu til að
koma okkur á
framfæri með
auglýsingum,"
segir Þuríður Backman, nýkjörinn
þingmaður Vinstrihreyfingarinnar
- Græns framboðs í Áusturlands-
kjördæmi. Hún segir að fylgi
Vinstrihreyfingarinnar - Græns
framboðs hafi verið mun meira en
hún hafði vænst.
„Við eigum eftir að styrkja okkar
hóp enn frekar þegar við náum að
tala betur fyrir okkar málstað. Það
voru ýmis mál sem komust aldrei
almennilega á dagskrá hjá okkur í
kosningabaráttunni, svo sem
menntamál, heilbrigðismál og önnur
mál sem snúa að byggðinni hér.
Umræðuefnin voru dálítið bundin af
stóriðju og jarðgöngum,“ segir
Þuríður.
Hún segir að úrslitin hafi verið
miklu betri_ en hún hafði vænst í
upphafi. „Ég fór persónulega í
framboð til þess að tala fyrir þess-
um málstað og gerði mér aldrei
gi-illur um að það yrði til annars en
að safna atkvæðum. En þegar mað-
ur gefur kost á sér er það til þess að
ná árangri og nú blasir við að taka
sæti á þingi," segir Þuríður.
Hún segir að úrslitin hafi mikil
áhrif á persónulega hagi sína.
„Þetta leggst hins vegar vel í mig
og auðvitað hefði ég aldrei farið út í
þetta nema með góðum stuðningi
fjölskyldunnar," sagði Þuríður.
Drífa Hjartardóttir
Hefðum
viljað
þriðja
manninn
„ÉG er afskap-
lega ánægð með
hvað flokkurinn
hefur komið vel út
úr kosningunum.
Við höfum aukið
fylgi okkar á Suð-
urlandi um 3 pró-
sentustig sem er
mjög gott en við
hefðum gjaman
viljað ná inn þriðja manninum," seg-
ir Drífa Hjartardóttir, annar maður
á lista Sjálfstæðisflokksins á Suður-
landi, sem nú tekur sæti á Aiþingi.
Drífa segir að það hafi komið sér
illa fyrir sjálfstæðismenn á Suður-
landi hve vel flokkurinn hafi komið
út úr skoðanakönnun skömmu fyrir
kosningar.
„Ég tel að skoðanakönnunin hafi
skemmt fyrir okkur og haft áhrif á
niðurstöðumar hér í Suðurlands-
kjördæmi. Við hefðum kannski feng-
ið meiri aukningu á Suðurlandi hefð-
um við ekki fengið svo góða niður-
stöðu í skoðanakönnun nokkmm
dögum fyrir kosningar,“ sagði Diifa.
Skoðanakönnunin sem Drífa vitn-
ar tii benti til þess að Sjálfstæðis-
flokkurinn fengi þrjá þingmenn
kjörna auk uppbótarþingmanns og
telur Drífa að þessi bjartsýna spá
hafi komið niður á fylgi Sjálfstæðis-
flokksins. Spáin hafi verið algjör-
lega óraunhæf.
Drífa hefur setið á þingi sem
varaþingmaður og kveðst hún
hlakka mikið til starfsins. „Ég hef
mestan áhuga á byggða- og atvinnu-
málum ásamt málefnum landbúnað-
arins og mun sinna þessum málum
af kostgæfni “
Jón Bjarnason
S
Anægja yfír
sterku og
góðu fylgi
JÓN Bjarnason, skólameistari á
Hólum í Hjaltadal, sem skipaði
fyrsta sæti á lista Vinstrihreyfíng-
arinnar - græns framboðs í Norður-
landskjördæmi Vestra, segir það
leggjast vel í sig að fara á þing sem
nýr þingliði eftir kosningaúrslitin.
Jón kemur inn á þing sem fimmti
þingmaður kjördæmisins og í hans
huga er efst
þakklæti til þess
fólks sem hann
segir að hafi borið
til hans það
traust að fela
honum forystu á
lista Vinstrihreyf-
ingarinnar
græns framboðs.
„Síðan er líka ánægja yfir því að
þessi flokkur skuli fá svona sterkt
og gott fylgi um allt land og ég vil
lýsa yfir ánægju minni með hversu
vel þessi pólitíska hreyfing hefur
farið af stað sem sýnir að hún á
þarna erindi," segir Jón.
„í kosningabaráttunni lögðum við
áherslu á málefni á landsvísu og
málefni kjördæmisins og þau mál-
efni sem þessi hreyfing stendur fyr-
ir. Við lögðum áherslu á atvinnumál
kjördæmisins, við erum það kjör-
dæmi sem hefur orðið hvað mestur
fólksflutningur úr á undanfórnum
átta árum og lögðum áherslu á fjöl-
breytni atvinnulífs," segir Jón.
„Við lögðum áherslu á það að
sjávarbyggðirnar fengju aðgang að
fiskimiðunum á grunnslóð og fengju
líka trygga hlutdeild til fiskjarins
víðar þannig að það yrði meira at-
vinnuöryggi til að fólk í héraðinu
fengi meira vald yfir framtíð sinni
en það hefur núna.“
Jóhann Ársælsson
Getum
unað vel við
okkar hlut
„ÉG ER mjög sáttur og ánægður
með stöðuna hérna. Ég hefði viljað
II
■
í